{"id":1334,"date":"2021-10-27T12:58:38","date_gmt":"2021-10-27T12:58:38","guid":{"rendered":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/?p=1334"},"modified":"2025-03-21T17:45:32","modified_gmt":"2025-03-21T17:45:32","slug":"kaupsyslumadurinn-sem-gaf-gitarinn-sinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/kaupsyslumadurinn-sem-gaf-gitarinn-sinn\/","title":{"rendered":"Kaupsy\u0301sluma\u00f0urinn sem gaf gi\u0301tarinn sinn"},"content":{"rendered":"\n<aside class=\"other-formats\">A\u00f0rar \u00fatg\u00e1fur: <a title=\"Kaups\u00fdsluma\u00f0urinn sem gaf g\u00edtarinn sinn (PDF)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/ebooks\/is\/pdf\/kaupsyslumadurinn.pdf\">PDF<\/a> | <a title=\"The Businessman Who Gave His Guitar Away (english)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/en\/the-businessman-who-gave-his-guitar-away\/\">english<\/a><\/aside>\n\n\n<div class=\"wp-block-image is-resized is-style-default\">\n<figure class=\"alignright size-medium\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/kaupsyslumadurinn.png?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/kaupsyslumadurinn.png?resize=300%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"Kaups\u00fdsluma\u00f0urinn sem gaf g\u00edtarinn sinn \u2014 Myndskreyting B\u00f6rkur Sigurbj\u00f6rnsson\" class=\"wp-image-1335\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/kaupsyslumadurinn.png?resize=300%2C300&amp;ssl=1 300w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/kaupsyslumadurinn.png?resize=150%2C150&amp;ssl=1 150w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/kaupsyslumadurinn.png?resize=768%2C768&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/kaupsyslumadurinn.png?w=1025&amp;ssl=1 1025w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndskreyting B\u00f6rkur Sigurbj\u00f6rnsson<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>\u201eSe\u00f1or Manuel S\u00e1nchez, viltu vinsamlega hafa samband vi\u00f0 \u00fej\u00f3nustubor\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 fimmt\u00e1n,\u201c tilkynnti l\u00edtillega pirru\u00f0 r\u00f6dd \u00ed gegnum h\u00e1talarakerfi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>M\u00e9r var\u00f0 liti\u00f0 til \u00fej\u00f3nustubor\u00f0sins vi\u00f0 hli\u00f0 n\u00famer fimmt\u00e1n. \u00dear sat mi\u00f0aldra kona og skima\u00f0i yfir bi\u00f0sv\u00e6\u00f0i\u00f0 eins og fangav\u00f6r\u00f0ur \u00ed turni s\u00ednum, \u00ed leit a\u00f0 einhverri hreyfingu sem g\u00e6ti flokkast sem svar vi\u00f0 kalli hennar. Enginn st\u00f3\u00f0 upp. Enginn gaf sig fram.<\/p>\n\n\n\n<p>T\u00edu sinnum, e\u00f0a eitthva\u00f0 \u00e1l\u00edka, haf\u00f0i \u00feessi Manuel veri\u00f0 be\u00f0inn um a\u00f0 gefa sig fram vi\u00f0 starfsf\u00f3lk flugf\u00e9lagsins. Hva\u00f0 var \u00ed gangi? \u00c9g haf\u00f0i \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina eytt talsver\u00f0um t\u00edma \u00ed bi\u00f0 \u00e1 flugv\u00f6llum, en m\u00e9r haf\u00f0i aldrei veri\u00f0 bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 tala vi\u00f0 starfsf\u00f3lki\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0i\u00f0. A\u00f0 minnsta kosti ekki \u00ed gegnum h\u00e1talarakerfi\u00f0. Satt best a\u00f0 segja skildi \u00e9g ekki hvers vegna sumt f\u00f3lk \u00feurfti a\u00f0 vera kalla\u00f0 upp a\u00f0 hli\u00f0i \u00e1\u00f0ur en fari\u00f0 var a\u00f0 hleypa far\u00feegum um bor\u00f0. Haf\u00f0i flugf\u00e9lagi\u00f0 eitthva\u00f0 meira vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a var\u00f0andi b\u00f3kunina? Voru vi\u00f0skiptin ekki gengin \u00ed gegn? Far\u00feegarnir voru a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum \u00feegar innrita\u00f0ir \u00ed flugi\u00f0. Var einhver \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 sko\u00f0a \u00fe\u00e1 eitthva\u00f0 frekar?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g skildi ekki heldur hvers vegna \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist svo oft a\u00f0 f\u00f3lk m\u00e6tti ekki t\u00edmanlega\u2014hvers vegna nafn \u00feeirra \u00feurfti a\u00f0 vera endurteki\u00f0 \u00ed s\u00edfellu. Voru tengsl \u00fear \u00e1 milli? Haf\u00f0i f\u00f3lk, sem kalla\u00f0 var a\u00f0 innritunarbor\u00f0inu, \u00e1st\u00e6\u00f0u til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta ekki sj\u00e1 sig? E\u00f0a veitti \u00e9g ef til vill einungis \u00fev\u00ed f\u00f3lki athygli sem svara\u00f0i ekki og var \u00fev\u00ed kalla\u00f0 upp hva\u00f0 eftir anna\u00f0? \u00c9g haf\u00f0i ekki hugmynd. Heg\u00f0un og atferli t\u00fdndra flugfar\u00feega var ekki \u00e1 m\u00ednu s\u00e9rsvi\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g teyg\u00f0i mig eftir Burberry-le\u00f0urskjalat\u00f6skunni og t\u00f3k upp Moleskine-skrifblokkina m\u00edna \u00e1samt upp\u00e1halds Montblanc-pennanum m\u00ednum. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 nota t\u00edmann vel og \u00fatb\u00faa lista yfir \u00fea\u00f0 sem \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 gera \u00feegar \u00e9g k\u00e6mi aftur upp \u00ed h\u00e1sk\u00f3la. \u00c9g \u00e6tti a\u00f0 skrifa stutta sk\u00fdrslu fyrir vinnuf\u00e9lagana \u00fear sem \u00e9g deildi reynslu minni af r\u00e1\u00f0stefnunni. \u00c9g \u00feyrfti a\u00f0 gaumg\u00e6fa greinina eftir ranns\u00f3knarteymi\u00f0 fr\u00e1 Cornell. Fyrirlestur \u00feeirra haf\u00f0i veri\u00f0 afar \u00e1hugaver\u00f0ur. Ranns\u00f3knirnar virtust einstaklega vel \u00far gar\u00f0i ger\u00f0ar og framsetning ni\u00f0ursta\u00f0nanna haf\u00f0i \u00fear a\u00f0 auki veri\u00f0 mj\u00f6g skemmtileg. \u00dea\u00f0 virtist svo au\u00f0velt fyrir fr\u00e6\u00f0imenn fr\u00e1 r\u00f3tgr\u00f3nu h\u00e1sk\u00f3lunum \u00ed Nor\u00f0ur-Amer\u00edku a\u00f0 framrei\u00f0a hvert st\u00f3rvirki\u00f0 \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0ru. Ranns\u00f3knara\u00f0sta\u00f0a \u00feeirra var svo langt umfram \u00fea\u00f0 sem \u00e9g g\u00e6ti l\u00e1ti\u00f0 m\u00e9r dreyma um \u00ed Madr\u00edd. Bara ef \u00e9g fengi t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 vinna me\u00f0 einni af \u00feessum fr\u00e6gu stofnunum. \u00de\u00e1 g\u00e6ti \u00e9g \u00edmynda\u00f0 m\u00e9r sj\u00e1lfan mig s\u00e6kja fyrsta flokks r\u00e1\u00f0stefnu sem r\u00e6\u00f0uma\u00f0ur \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 vera einungis \u00e1horfandi eins og \u00e9g haf\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 r\u00e1\u00f0stefnunni \u00ed Santiago.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g leit upp fr\u00e1 skrifblokkinni og yfir bi\u00f0sv\u00e6\u00f0i\u00f0, \u00edmynda\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 horfa yfir \u00fe\u00e9ttsetinn r\u00e1\u00f0stefnusal, fullan af f\u00f3lki, sem bei\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00e9g h\u00e6fi kynningu m\u00edna \u00e1 byltingarkenndum ranns\u00f3knarni\u00f0urst\u00f6\u00f0um. \u00c9g s\u00e1 sj\u00e1lfan mig fyrir m\u00e9r \u00e1 svi\u00f0inu, kl\u00e6ddan \u00ed gr\u00e1 jakkaf\u00f6t, lj\u00f3sbl\u00e1a skyrtu og me\u00f0 v\u00ednrautt bindi. \u00c9g var \u00ed sv\u00f6rtum sk\u00f3m og svi\u00f0slj\u00f3sin gl\u00f6mpu\u00f0u af vel p\u00fassu\u00f0u le\u00f0rinu. \u00c9g r\u00e9tti \u00far bakinu, lyfti h\u00f6f\u00f0inu og r\u00e6skti mig. \u201eG\u00f3\u00f0an daginn herrar m\u00ednir og fr\u00far,\u201c h\u00f3f \u00e9g fyrirlesturinn. \u201e\u00dea\u00f0 er einst\u00f6k \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 vera staddur h\u00e9r \u00ed dag til a\u00f0 kynna sameiginlegt ranns\u00f3knarverkefni mitt og f\u00e9laga minna fr\u00e1 Cornell-H\u00e1sk\u00f3la.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSe\u00f1or Manuel S\u00e1nchez, viltu vinsamlega hafa samband vi\u00f0 \u00fej\u00f3nustubor\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 fimmt\u00e1n.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Tilkynningin kippti m\u00e9r \u00fat \u00far draumaheiminum, steypti m\u00e9r \u00far r\u00e6\u00f0up\u00faltinu og hlamma\u00f0i m\u00e9r ni\u00f0ur \u00ed s\u00e6ti\u00f0 \u00e1 bi\u00f0sv\u00e6\u00f0inu framan vi\u00f0 hli\u00f0 fimmt\u00e1n \u00e1 El Dorado al\u00fej\u00f3\u00f0aflugvellinum. Enn \u00e1 n\u00fd voru \u00feau a\u00f0 augl\u00fdsa eftir hinum dularfulla far\u00feega, Se\u00f1or Manuel S\u00e1nchez. Ef \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 ve\u00f0ja upp \u00e1 \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 setti \u00e9g m\u00edna peninga \u00e1 \u00fe\u00e1 tilg\u00e1tu a\u00f0 hann hef\u00f0i sofna\u00f0 vi\u00f0 eitthvert anna\u00f0 hli\u00f0 eftir a\u00f0 hafa drukki\u00f0 einum e\u00f0a tveimur of miki\u00f0. Hvernig gat f\u00f3lk annars t\u00fdnst \u00e1 flugv\u00f6llum? \u00dea\u00f0 var ekki eins og vi\u00f0 v\u00e6rum st\u00f6dd \u00ed mi\u00f0jum \u00f3bygg\u00f0um. A\u00f0 minnsta kosti ekki h\u00e9r \u00ed Bogot\u00e1. \u00dea\u00f0 gat veri\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk t\u00fdndist \u00e1 st\u00f3ru flugv\u00f6llunum me\u00f0 fj\u00f6lda flugst\u00f6\u00f0varbygginga og l\u00f6ngum g\u00f6ngum, sem li\u00f0u \u00e1fram eins og sn\u00e1kar \u00ed ey\u00f0im\u00f6rk, eins og \u00e1 Heathrow e\u00f0a Barajas, en ekki \u00e1 El Dorado.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 \u00e6tli hafi komi\u00f0 fyrir Se\u00f1or S\u00e1nchez?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g leit \u00e1 manninn sem haf\u00f0i \u00e1varpa\u00f0 mig. Hann sat m\u00e9r \u00e1 vinstri h\u00f6nd og halla\u00f0i s\u00e9r fram yfir tv\u00f6 au\u00f0 s\u00e6tin, sem voru \u00e1 milli okkar. Hann var l\u00e1gvaxinn me\u00f0 hringlaga andlit, s\u00f3lbr\u00fana h\u00fa\u00f0 og \u00feunnt svart h\u00e1ri\u00f0 greitt aftur en n\u00e1\u00f0i samt ekki a\u00f0 hylja almennilega skallablettinn aftast \u00e1 hnakkanum. Strj\u00e1lt en snyrtilega klippt yfirvaraskegg pr\u00fdddi efri v\u00f6rina. Hann kl\u00e6ddist d\u00f6kkbl\u00e1um, \u00far s\u00e9r gengnum \u00ed\u00fer\u00f3ttagalla, sem var n\u00fameri e\u00f0a tveimur of st\u00f3r fyrir grannan l\u00edkamann. Peysan var rennd ni\u00f0ur og \u00fea\u00f0 glytti \u00ed krumpa\u00f0an stuttermabol, sem g\u00e6ti hafa kallast hv\u00edtur fyrir nokkur hundru\u00f0 \u00fevottum s\u00ed\u00f0an. \u00dea\u00f0 sama var h\u00e6gt a\u00f0 segja um hr\u00f6rlega hlaupask\u00f3na \u00ed \u00f3skilgreindum lit. Bros mannsins gaf honum str\u00e1kslegt \u00fatlit, ef liti\u00f0 var framhj\u00e1 sk\u00f6kkum og kaffilitu\u00f0um t\u00f6nnunum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deekkir \u00fe\u00fa Se\u00f1or S\u00e1nchez?\u201c spur\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAllir \u00feekkja Se\u00f1or S\u00e1nchez,\u201c sag\u00f0i ma\u00f0urinn og brosti. \u201eS\u00e1nchez er afar algengt nafn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn \u00feekkir \u00fe\u00fa \u00feennan tiltekna Se\u00f1or S\u00e1nchez? Se\u00f1or Manuel S\u00e1nchez?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g efa \u00fea\u00f0. Eins og \u00e9g sag\u00f0i, \u00fe\u00e1 er S\u00e1nchez afar algengt nafn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g kinka\u00f0i kolli og bei\u00f0 \u00ed nokkur augnablik til a\u00f0 sj\u00e1 hvort ma\u00f0urinn hef\u00f0i \u00ed huga a\u00f0 halda \u00e1fram \u00feessum samr\u00e6\u00f0um, sem hinga\u00f0 til h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 frekar innihaldsr\u00fdrar. \u00dear sem hann s\u00fdndi engin merki um a\u00f0 halda \u00e1fram \u00fe\u00e1 sneri \u00e9g m\u00e9r aftur a\u00f0 tossalistanum m\u00ednum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g skrifa\u00f0i hj\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 bi\u00f0ja \u00d6lbu um a\u00f0 skila m\u00e9r m\u00ednu eintaki af annarri ritger\u00f0 John Locke um r\u00edkisvaldi\u00f0. M\u00e9r fannst \u00fea\u00f0 skr\u00fdti\u00f0 a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i ekki \u00feegar skila\u00f0 \u00fev\u00ed. H\u00fan var skarpur nemandi og \u00fear sem b\u00f3kin innih\u00e9lt kafla um eignarr\u00e9tt \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 kaldh\u00e6\u00f0nislegt a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i ekki virt minn eignarr\u00e9tt \u00e1 b\u00f3kinni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda henni fyrir sig \u00ed nokkrar vikur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c1 lei\u00f0inni til Mex\u00edk\u00f3borgar?\u201c spur\u00f0i ma\u00f0urinn \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i r\u00e9tt n\u00e1\u00f0 a\u00f0 snerta bla\u00f0i\u00f0 me\u00f0 pennanum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei,\u201c svara\u00f0i \u00e9g og ger\u00f0i m\u00e9r upp vingjarnlegt bros til \u00feess a\u00f0 hylma yfir pirringinn vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hafa veri\u00f0 trufla\u00f0ur einu sinni enn. \u201e\u00c9g er \u00e1 lei\u00f0inni til Madr\u00eddar. Flugi\u00f0 mitt er \u00fea\u00f0 n\u00e6sta fr\u00e1 \u00feessu hli\u00f0i. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 segja \u00e1 eftir fluginu til Mex\u00edk\u00f3borgar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHv\u00edtt bl\u00f3\u00f0 rennur um m\u00ednar \u00e6\u00f0ar, hreinn f\u00f3tbolti \u00ed hjarta m\u00e9r. <em>\u00a1Hala Madrid!<\/em>\u201c s\u00f6ng ma\u00f0urinn. \u201eHvernig fannst \u00fe\u00e9r K\u00f3lumb\u00eda?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g hef eiginlega ekki komi\u00f0 til K\u00f3lumb\u00edu,\u201c vi\u00f0urkenndi \u00e9g. \u201eVi\u00f0skipti m\u00edn vi\u00f0 Bogot\u00e1 eru a\u00f0eins \u00ed formi millilendingar. \u00c9g kom me\u00f0 morgunfluginu fr\u00e1 Santiago. Santiago de Chile.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAha, S\u00edle. Alvarlegt f\u00f3lk, S\u00edleb\u00faar. Stunda vel \u00edgrundu\u00f0 vi\u00f0skipti. Vissir\u00f0u? \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 l\u00e6ra margt um \u00fea\u00f0 hvernig f\u00f3lk stundar vi\u00f0skipti me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 horfa.\u201c Ma\u00f0urinn kinka\u00f0i kolli og benti me\u00f0 v\u00edsifingri og l\u00f6ngut\u00f6ng \u00e1 augun. \u201e\u00c9g hef veri\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 \u00fea\u00f0 hvernig f\u00f3lk stundar vi\u00f0skipti h\u00e9r \u00ed K\u00f3lumb\u00edu. Fylgst me\u00f0 heg\u00f0un f\u00f3lks, hvernig \u00fea\u00f0 kemur fram. Horft \u00e1 hvernig \u00fea\u00f0 hagar s\u00ednum vi\u00f0skiptatengslum. Verslunin h\u00e9r \u00ed K\u00f3lumb\u00edu er afar fr\u00e1brug\u00f0in \u00fev\u00ed hvernig vi\u00f0 gerum hlutina \u00ed Mex\u00edk\u00f3. Ertu sj\u00e1lfur kaups\u00fdsluma\u00f0ur? Varstu \u00ed vi\u00f0skiptaerindum \u00ed S\u00edle?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1 og nei,\u201c svara\u00f0i \u00e9g. \u201e\u00c9g er pr\u00f3fessor. Ranns\u00f3knarsvi\u00f0 mitt er vissulega vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0i, en \u00e9g stunda ekki vi\u00f0skipti \u00ed eiginlegum skilningi. Minn \u00e1hugi er a\u00f0allega af fr\u00e6\u00f0ilegum toga. \u00c9g var \u00e1 fr\u00e6\u00f0ilegri r\u00e1\u00f0stefnu \u00ed Santiago.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAha, ma\u00f0ur fr\u00e6\u00f0anna,\u201c sag\u00f0i ma\u00f0urinn, hnykla\u00f0i br\u00fdnnar og kinka\u00f0i kolli. \u201e\u00c9g var aldrei miki\u00f0 fyrir fr\u00e6\u00f0in. \u00dea\u00f0 var erfitt verk fyrir kennarana a\u00f0 reyna a\u00f0 tro\u00f0a \u00feekkingu \u00ed minn haus. Hann haf\u00f0i s\u00ednar eigin hugmyndir, kollurinn s\u00e1. \u00dea\u00f0 var einfaldlega ekki pl\u00e1ss fyrir b\u00f3kvit. Hef alltaf haft meiri \u00e1huga \u00e1 verki en b\u00f3kum. Sonur minn, \u00e1 hinn b\u00f3ginn, var t\u00f6lvunarfr\u00e6\u00f0inemi \u00ed Mex\u00edk\u00f3borg. G\u00f3\u00f0ur n\u00e1msma\u00f0ur. Snjall krakki. Toppeinkunnir. En ef til vill of snjall fyrir kennarana. Hann setti upp ve\u00f0m\u00e1las\u00ed\u00f0u og keyr\u00f0i hana \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lanetinu. Pr\u00f3fessorarnir h\u00f6f\u00f0u ekki mikinn skilning \u00e1 sl\u00edkri frumkv\u00f6\u00f0lastarfsemi. \u00deeir r\u00e1ku hann \u00far sk\u00f3lanum. Getur\u00f0u \u00edmynda\u00f0 \u00fe\u00e9r?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eM\u00e9r \u00feykir \u00fea\u00f0 leitt a\u00f0 heyra,\u201c laug \u00e9g og hugsa\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i svo sannarlega veri\u00f0 \u00e1 s\u00f6mu sko\u00f0un og mex\u00edk\u00f3skir kollegar m\u00ednir. H\u00e1sk\u00f3lastofnun var ekki r\u00e9tti sta\u00f0urinn til \u00feess a\u00f0 stunda vafas\u00f6m vi\u00f0skipti \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 ve\u00f0banka.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eL\u00edfi\u00f0 er of stutt til a\u00f0 lei\u00f0ast. \u00dea\u00f0 var gott m\u00e1l a\u00f0 hann var rekinn. Hann var of kl\u00e1r til a\u00f0 ey\u00f0a t\u00edmanum \u00ed kennslustundir. \u00dear a\u00f0 auki ger\u00f0i m\u00e1li\u00f0 okkur kleift a\u00f0 gerast vi\u00f0skiptaf\u00e9lagar. Fa\u00f0ir og sonur.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg hvers konar vi\u00f0skipti stundi\u00f0 \u00fei\u00f0?\u201c spur\u00f0i \u00e9g og reyndi a\u00f0 \u00edmynda m\u00e9r hvers konar vi\u00f0skipti ma\u00f0ur me\u00f0 hans kl\u00e6\u00f0abur\u00f0 g\u00e6ti m\u00f6gulega veri\u00f0 vi\u00f0ri\u00f0inn. \u201eVe\u00f0m\u00e1las\u00ed\u00f0u utan h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9lagsins?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei,\u201c svara\u00f0i ma\u00f0urinn og hl\u00f3. \u201eVi\u00f0 erum a\u00f0 setja upp fj\u00e1rm\u00e1lavefs\u00ed\u00f0u. Me\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0gj\u00f6f. R\u00e1\u00f0gj\u00f6f um fj\u00e1rfestingar og tryggingar. Einf\u00f6ld vefs\u00ed\u00f0a. Innihaldsr\u00edk en samt hnitmi\u00f0u\u00f0 og \u00ed takt vi\u00f0 t\u00edmann. \u00dea\u00f0 er marka\u00f0st\u00e6kif\u00e6ri \u00ed sl\u00edkri s\u00ed\u00f0u \u00ed Mex\u00edk\u00f3.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g kinka\u00f0i kolli og setti upp hughreystandi bros, jafnvel \u00fe\u00f3tt l\u00fdsing hans hef\u00f0i ekki hlj\u00f3ma\u00f0 sannf\u00e6randi. Um stundarsakir hvarfla\u00f0i a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra fyrir honum a\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1laheimurinn v\u00e6ri allt anna\u00f0 en einfaldur. Allar ranns\u00f3knir bentu til \u00feess a\u00f0 hann v\u00e6ri ekki h\u00e6gt a\u00f0 sk\u00fdra \u00fat me\u00f0 einfaldri vefs\u00ed\u00f0u. \u00c9g var hins vegar \u00e1kafur \u00ed a\u00f0 sn\u00faa m\u00e9r aftur a\u00f0 m\u00ednum m\u00e1lum og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta m\u00e1li\u00f0 kyrrt liggja, \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 hann ger\u00f0i sl\u00edkt hi\u00f0 sama.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eK\u00f3lumb\u00eda er einstaklega vi\u00f0kunnanleg,\u201c sag\u00f0i ma\u00f0urinn og \u00feurrka\u00f0i \u00fat allar vonir m\u00ednar um a\u00f0 samtalinu v\u00e6ri loki\u00f0. Hann virtist vera me\u00f0 a\u00f0rar hugmyndir, t\u00f6fra\u00f0i fram klunnalega vasamyndav\u00e9l \u00far einum vasa \u00ed\u00fer\u00f3ttagallans og f\u00e6r\u00f0i sig um eitt s\u00e6ti \u00ed \u00e1ttina til m\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deetta er a\u00f0altorgi\u00f0 \u00ed Chiquinquir\u00e1,\u201c h\u00e9lt hann s\u00f6gu sinni \u00e1fram, sneri myndav\u00e9larskj\u00e1num \u00ed \u00e1ttina til m\u00edn og fletti \u00ed gegnum myndirnar. \u201eOg \u00feetta er k\u00f6ttur sem \u00e9g s\u00e1 \u00ed hli\u00f0arg\u00f6tu.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g gat ekki s\u00e9\u00f0 miki\u00f0 af myndunum \u00fear sem myndav\u00e9lin var ekki alveg af n\u00fdjustu ger\u00f0 og skj\u00e1rinn var agnarsm\u00e1r. \u00c9g gat einungis gert m\u00e9r \u00ed hugarlund a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri ekki a\u00f0 missa af s\u00e9rlega miklu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deetta er undirrita\u00f0ur \u00ed s\u00ednum f\u00ednustu jakkaf\u00f6tum,\u201c b\u00e6tti hann vi\u00f0 og r\u00e9tti m\u00e9r myndav\u00e9lina\u2014a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum til \u00feess a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti sko\u00f0a\u00f0 myndina betur og sannreynt \u00f3tr\u00falega sta\u00f0h\u00e6fingu hans um kl\u00e6\u00f0abur\u00f0, \u201e\u00e1\u00f0ur en \u00feeim var stoli\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Myndin var tekin \u00e1 torgi \u00fear sem ma\u00f0urinn haf\u00f0i stillt s\u00e9r upp fyrir framan gosbrunn. Hann var \u00ed bl\u00e1um jakkaf\u00f6tum og sannarlega hv\u00edtri skyrtu. L\u00edkt og \u00ed\u00fer\u00f3ttagallinn \u00fe\u00e1 voru jakkaf\u00f6tin snj\u00e1\u00f0 og a\u00f0eins of st\u00f3r fyrir grannan l\u00edkamann. \u00cd annarri hendi h\u00e9lt hann \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttat\u00f6sku \u00far gervile\u00f0ri me\u00f0 gull-litu\u00f0u Adidas-merki. Aftan vi\u00f0 hnakka mannsins m\u00e1tti sj\u00e1 g\u00edtarh\u00e1ls teygja sig \u00fat \u00ed lofti\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvernig var f\u00f6tunum \u00fe\u00ednum stoli\u00f0?\u201c spur\u00f0i \u00e9g og r\u00e9tti honum myndav\u00e9lina til baka. Eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 manninn \u00ed f\u00f6tum sem g\u00e1tu vel talist \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 vera pr\u00fd\u00f0ilegur kl\u00e6\u00f0na\u00f0ur, \u00fe\u00e1 fannst m\u00e9r eins og \u00e9g g\u00e6ti n\u00e6stum \u00feekkt mig \u00ed honum. Ef til vill var hann kaups\u00fdsluma\u00f0ur eftir allt saman, jafnvel \u00fe\u00f3tt hann v\u00e6ri ekki af \u00feeim kal\u00edber sem \u00e9g var vanur a\u00f0 umgangast.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g var \u00ed sturtu \u00e1 gistiheimilinu einn morguninn \u00feegar \u00feeir st\u00e1lu jakkaf\u00f6tunum,\u201c \u00fatsk\u00fdr\u00f0i kaups\u00fdsluma\u00f0urinn og setti myndav\u00e9lina aftur \u00ed vasann. \u201eSem betur fer tek \u00e9g alltaf vegabr\u00e9fi\u00f0, veski\u00f0 og \u00f6nnur ver\u00f0m\u00e6ti og nau\u00f0synjar me\u00f0 m\u00e9r \u00ed sturtuklefann.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 hafa veri\u00f0 afar \u00f3heppilegt a\u00f0 jakkaf\u00f6tunum var stoli\u00f0,\u201c sag\u00f0i \u00e9g hughreystandi. Satt best a\u00f0 segja \u00fe\u00e1 vorkenndi \u00e9g manninum sannarlega fyrir a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 skipta yfir \u00ed \u00feennan subbulega \u00ed\u00fer\u00f3ttagalla.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei, nei. \u00deetta voru ekkert s\u00e9rstaklega f\u00edn jakkaf\u00f6t. Ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g \u00fearfnist f\u00ednna fata. E\u00f0a fata\u00farvals, ef \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 er fari\u00f0. \u00c9g vil fer\u00f0ast l\u00e9tt. \u00c9g h\u00f3f fer\u00f0alag mitt me\u00f0 t\u00f6sku og g\u00edtar en \u00feetta er allur farangurinn \u00ed lok fer\u00f0arinnar.\u201c Kaups\u00fdsluma\u00f0urinn lyfti upp hv\u00edtum, krumpu\u00f0um plastpoka sem leit \u00fat fyrir a\u00f0 vera n\u00e6stum t\u00f3mur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSt\u00e1lu \u00feeir einnig g\u00edtarnum?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei,\u201c svara\u00f0i kaups\u00fdsluma\u00f0urinn brosandi. \u201e\u00d6rl\u00f6g g\u00edtarsins&#8230; \u00fea\u00f0 er allt \u00f6nnur saga.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Eins og \u00e9g haf\u00f0i vona\u00f0 fyrir nokkrum m\u00edn\u00fatum a\u00f0 ma\u00f0urinn h\u00e9ldi kjafti, \u00fe\u00e1 gat \u00e9g ekki neita\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fana var \u00e9g or\u00f0inn eil\u00edti\u00f0 forvitinn a\u00f0 vita hva\u00f0 hef\u00f0i komi\u00f0 fyrir g\u00edtarinn og vona\u00f0i a\u00f0 kaups\u00fdsluma\u00f0urinn h\u00e9ldi m\u00e1li s\u00ednu \u00e1fram. Og \u00fea\u00f0 ger\u00f0i hann.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g var \u00e1 gangi eftir a\u00f0alg\u00f6tunni \u00ed \u00feorpi n\u00e1l\u00e6gt Chiquinquir\u00e1 \u00feegar \u00fatigangsma\u00f0ur gekk upp a\u00f0 m\u00e9r og sag\u00f0i: <em>Se\u00f1or, m\u00e1 bj\u00f3\u00f0a \u00fe\u00e9r upp \u00e1 besta matinn sem \u00feorpi\u00f0 hefur upp \u00e1 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a. Se\u00f1or, komdu me\u00f0 m\u00e9r til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 besta matinn sem h\u00e6gt er a\u00f0 f\u00e1 \u00e1 \u00feessum sl\u00f3\u00f0um.<\/em> \u00c9g fylgdi honum yfir g\u00f6tuna og inn \u00e1 l\u00edtinn fj\u00f6lskylduveitingasta\u00f0, settist ni\u00f0ur og panta\u00f0i m\u00e9r <em>bandeja paisa<\/em>. Getur\u00f0u \u00edmynda\u00f0 \u00fe\u00e9r? Mig, me\u00f0 st\u00e6r\u00f0arinnar <em>bandeja paisa?<\/em> En allt\u00e9nt&#8230; \u00fatigangsma\u00f0urinn settist ni\u00f0ur vi\u00f0 anna\u00f0 bor\u00f0 og \u00fej\u00f3nninn f\u00e6r\u00f0i honum bj\u00f3rglas. \u00c9g \u00e1leit a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri vi\u00f0skiptas\u00e1ttm\u00e1li. Ma\u00f0urinn t\u00e6ldi vi\u00f0skiptavini inn af g\u00f6tunni og f\u00e9kk bj\u00f3rglas a\u00f0 launum. \u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 fyrirkomulag sem \u00fei\u00f0 fr\u00e6\u00f0imennirnir kalli\u00f0 ar\u00f0b\u00e6ran hvata, e\u00f0a eitthva\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1ttina.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 g\u00e6ti veri\u00f0,\u201c sta\u00f0festi \u00e9g, frekar hissa yfir \u00feekkingu hans \u00e1 hugt\u00f6kum hagfr\u00e6\u00f0innar, \u00fe\u00f3tt \u00e9g hef\u00f0i sj\u00e1lfur ekki nota\u00f0 svo h\u00e1fleygt or\u00f0tak yfir jafn \u00f3merkileg vi\u00f0skipti.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dear sem \u00e9g bei\u00f0 eftir m\u00e1lsver\u00f0i m\u00ednum greip \u00e9g \u00ed g\u00edtarinn og spila\u00f0i lag sem fa\u00f0ir minn kenndi m\u00e9r \u00feegar \u00e9g var ungur. En \u00feegar maturinn kom \u00e1 bor\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1 lag\u00f0i \u00e9g g\u00edtarinn fr\u00e1 m\u00e9r. \u00datigangsma\u00f0urinn leit upp fr\u00e1 bj\u00f3rnum s\u00ednum og klappa\u00f0i. <em>\u00de\u00fa syngur afar vel, se\u00f1or.<\/em> \u00c9g \u00feakka\u00f0i honum fyrir h\u00f3li\u00f0 og bau\u00f0st til a\u00f0 l\u00e1na honum g\u00edtarinn \u00e1 me\u00f0an \u00e9g ger\u00f0i matnum skil. \u00datigangsma\u00f0urinn teyg\u00f0i sig eftir g\u00edtarnum, loka\u00f0i augunum og byrja\u00f0i a\u00f0 spila. Hann s\u00f6ng um l\u00edfi\u00f0 og hann s\u00f6ng um sorgina. R\u00f6dd hans var undurbl\u00ed\u00f0 og hlj\u00f3murinn afar fallegur. \u00c9g sn\u00e6ddi m\u00e1lsver\u00f0inn af mikilli \u00e1n\u00e6gju. \u00datigangsma\u00f0urinn haf\u00f0i haft r\u00e9tt fyrir s\u00e9r, \u00feetta var tv\u00edm\u00e6lalaust besta veislan sem bo\u00f0i\u00f0 var upp \u00e1 \u00ed b\u00e6num. G\u00f3\u00f0ur matur \u00ed bland vi\u00f0 h\u00e1g\u00e6\u00f0a t\u00f3nlistarskemmtun.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEftir matinn f\u00e6r\u00f0i \u00fej\u00f3nninn m\u00e9r kaffi og \u00fatigangsma\u00f0urinn ger\u00f0i sig l\u00edklegan til a\u00f0 skila g\u00edtarnum. <em>Eig\u00f0&#8217;ann,<\/em> sag\u00f0i \u00e9g, en hann malda\u00f0i \u00ed m\u00f3inn, sag\u00f0i \u00feetta vera minn g\u00edtar og hann v\u00e6ri ekki betlari. <em>En spila\u00f0u meira,<\/em> hvatti \u00e9g hann \u00e1fram, <em>spila\u00f0u \u00e1 me\u00f0an \u00e9g drekk kaffi\u00f0 mitt.<\/em> \u00datigangsma\u00f0urinn loka\u00f0i augunum \u00e1 n\u00fd og h\u00e9lt \u00e1fram \u00fear sem fr\u00e1 var horfi\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 syngja \u00fe\u00e1 tregafyllstu s\u00f6ngva sem \u00e9g hef nokkru sinni heyrt. \u00c1 me\u00f0an skellti \u00e9g \u00ed mig kaffinu, setti pening \u00e1 bor\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 gera upp m\u00e1lt\u00ed\u00f0ina og st\u00f3\u00f0 upp eins hlj\u00f3\u00f0lega og \u00e9g gat. \u00c9g l\u00e6ddist s\u00ed\u00f0an \u00fat af veitingasta\u00f0num og skildi g\u00edtarinn eftir \u00ed h\u00f6ndum \u00fatigangsmannsins.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eGafstu g\u00edtarinn fr\u00e1 \u00fe\u00e9r?\u201c skr\u00e6kti \u00e9g, virkilega hissa yfir \u00fev\u00ed hva\u00f0 hann gat veri\u00f0 k\u00e6rulaus um eigur s\u00ednar. Fyrst jakkaf\u00f6tin og svo g\u00edtarinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSvo sannarlega. \u00datigangsma\u00f0urinn \u00e1tti g\u00edtarinn miklu betur skili\u00f0 en \u00e9g. Hann haf\u00f0i miklu meiri sorgir a\u00f0 syngja um.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eFlug AV44 til Mex\u00edk\u00f3borgar er n\u00fa tilb\u00fai\u00f0 til brottfarar,\u201c glumdi \u00ed h\u00e1talarakerfinu og f\u00f3lk mynda\u00f0i bi\u00f0r\u00f6\u00f0 til \u00feess a\u00f0 komast um bor\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er n\u00fa \u00fea\u00f0,\u201c sag\u00f0i ma\u00f0urinn og st\u00f3\u00f0 upp. \u201eVi\u00f0skiptum m\u00ednum vi\u00f0 K\u00f3lumb\u00edu er loki\u00f0 a\u00f0 sinni. \u00dea\u00f0 er kominn t\u00edmi til a\u00f0 halda aftur heim \u00e1 lei\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 kv\u00f6ddumst og kaups\u00fdsluma\u00f0urinn gekk \u00ed h\u00e6g\u00f0um s\u00ednum \u00ed of st\u00f3rum \u00ed\u00fer\u00f3ttagallanum, me\u00f0 \u00far s\u00e9r genginn plastpokann \u00ed annarri hendi, \u00ed \u00e1tt a\u00f0 hli\u00f0i n\u00famer fimmt\u00e1n og hvarf inn i\u0301 mannhafi\u00f0. Hvarf innan um f\u00f3lki\u00f0 sem haf\u00f0i ra\u00f0a\u00f0 se\u0301r upp til a\u00f0 komast i\u0301 flugi\u00f0 til Mexi\u0301ko\u0301borgar.<\/p>\n\n\n\n<aside class=\"wp-block-group book-ad has-text-color has-background\" style=\"color:#000000;background-color:#257ea9\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-media-text is-stacked-on-mobile\" style=\"grid-template-columns:33% auto\"><figure class=\"wp-block-media-text__media\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"778\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=778%2C1024&#038;ssl=1\" alt=\"Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga \u2014 K\u00e1puh\u00f6nnun Ana Pi\u00f1eyro\" class=\"wp-image-1578 size-full\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=778%2C1024&amp;ssl=1 778w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=228%2C300&amp;ssl=1 228w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=768%2C1011&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=900%2C1185&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=500%2C658&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 778px) 100vw, 778px\" \/><\/figure><div class=\"wp-block-media-text__content\">\n<h4 class=\"wp-block-heading\">Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga<\/h4>\n\n\n\n<p>\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga <\/em>f\u00e6st sem kilja hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.co.uk\/dp\/9935946606\/\">Amazon<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.barnesandnoble.com\/w\/tala-u-vi-kunnuga-b-rkur-sigurbj-rnsson\/1133064553\">Barnes and Noble<\/a>. Rafb\u00e6kur f\u00e1st hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.com\/dp\/B07WQP3JVS\">Kindle Store<\/a>, <a href=\"https:\/\/books.apple.com\/us\/book\/tala%C3%B0u-vi%C3%B0-%C3%B3kunnuga\/id1476987961\">Apple Books<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.kobo.com\/gb\/en\/ebook\/talau-vi-okunnuga\">Kobo<\/a>, og <a href=\"https:\/\/www.storytel.com\/is\/is\/books\/tala%C3%B0u-vi%C3%B0-%C3%B3kunnuga-2028498\">Storytel<\/a>.<\/p>\n\n\n\n<p>Ennig m\u00e1 styrkja h\u00f6fundinn \u00ed gegnum <a href=\"https:\/\/patreon.com\/UrbanVolcano\">Patreon<\/a> og <a href=\"https:\/\/buymeacoffee.com\/borkur\">Buy Me a Coffee<\/a> e\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa b\u00f3kinni einkunn \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.goodreads.com\/book\/show\/47872659-tala-u-vi-kunnuga\">Goodreads<\/a>.<\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-buttons is-horizontal is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-buttons-is-layout-499968f5 wp-block-buttons-is-layout-flex\">\n<div class=\"wp-block-button has-custom-width wp-block-button__width-50\"><a class=\"wp-block-button__link has-text-color has-background wp-element-button\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/taladu-vid-okunnuga\/\" style=\"border-radius:50px;color:#ffffff;background-color:#000000\">n\u00e1nari uppl\u00fdsingar<\/a><\/div>\n<\/div>\n<\/div><\/aside>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. H\u00e1sk\u00f3lapr\u00f3fessor b\u00ed\u00f0ur eftir tengiflugi \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0aflugvellinum \u00ed Bogot\u00e1 \u00feegar hann dregst inn \u00ed samtal vi\u00f0 \u00f3kunnugan mann sem situr vi\u00f0 hli\u00f0 hans. Pr\u00f3fessorinn er til a\u00f0 byrja me\u00f0 argur yfir trufluninni en fyllist sm\u00e1m saman forvitni um s\u00f6guna sem sessunauturinn hefur a\u00f0 segja.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":1335,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":false,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[67,65],"class_list":["post-1334","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-bid","tag-flugvellir","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/kaupsyslumadurinn.png?fit=1025%2C1025&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1334","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1334"}],"version-history":[{"count":12,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1334\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2424,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1334\/revisions\/2424"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1335"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1334"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1334"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1334"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}