{"id":1655,"date":"2022-04-06T08:58:12","date_gmt":"2022-04-06T08:58:12","guid":{"rendered":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/?p=1655"},"modified":"2025-03-21T17:51:23","modified_gmt":"2025-03-21T17:51:23","slug":"thad-sem-vid-thraum-ad-thra","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/thad-sem-vid-thraum-ad-thra\/","title":{"rendered":"\u00dea\u00f0 sem vi\u00f0 \u00fer\u00e1um a\u00f0 \u00fer\u00e1"},"content":{"rendered":"\n<aside class=\"other-formats\">A\u00f0rar \u00fatg\u00e1fur: <a title=\"\u00dea\u00f0 sem vi\u00f0 \u00fer\u00e1um a\u00f0 \u00fer\u00e1 (PDF)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/ebooks\/is\/pdf\/thad-sem-vid-thraum-ad-thra.pdf\">PDF<\/a> | <a title=\"What We Want to Want (english)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/en\/what-we-want-to-want\/\">english<\/a><\/aside>\n\n\n<div class=\"wp-block-image is-resized\">\n<figure class=\"alignright size-medium\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?resize=300%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"\u00dea\u00f0 sem vi\u00f0 \u00fer\u00e1um a\u00f0 \u00fer\u00e1 \u2014 Myndskreyting B\u00f6rkur Sigurbj\u00f6rnsson\" class=\"wp-image-1656\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?resize=300%2C300&amp;ssl=1 300w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?resize=150%2C150&amp;ssl=1 150w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?resize=768%2C768&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?resize=900%2C900&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?resize=500%2C500&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?w=1025&amp;ssl=1 1025w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndskreyting B\u00f6rkur Sigurbj\u00f6rnsson<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>Valur loka\u00f0i \u00fatidyrahur\u00f0 \u00edb\u00fa\u00f0arblokkarinnar \u00e1 eftir s\u00e9r og skalf \u00feegar hann m\u00e6tti ferskum \u00edslenskum sumarandvaranum. Eftir a\u00f0 hafa b\u00fai\u00f0 erlendis \u00ed einn og h\u00e1lfan \u00e1ratug, \u00e1tti hann \u00ed erfi\u00f0leikum me\u00f0 a\u00f0 venja sig \u00e1 a\u00f0 sumardagar k\u00f6llu\u00f0u ekki sj\u00e1lfkrafa \u00e1 stuttermabol\u2014jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri h\u00e1sumar. Valur leit upp \u00e1 milli blokkanna \u00fear sem hann gisti \u00feessa vikuna. Himinninn var gr\u00e1r. \u00de\u00f3 a\u00f0 ve\u00f0ri\u00f0 v\u00e6ri ekki eins og Valur \u00e1tti a\u00f0 venjast n\u00fa til dags, gat \u00fea\u00f0 vart veri\u00f0 d\u00e6miger\u00f0ara mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 hnattst\u00f6\u00f0u og \u00e1rst\u00edma. \u00deetta var einn \u00feessara daga \u00fear sem \u00f3v\u00edst var hvort hann myndi haldast \u00feurr e\u00f0ur ei, en eitt var v\u00edst, \u00fea\u00f0 \u00e1tti eftir a\u00f0 vera sk\u00fdja\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Ve\u00f0ri\u00f0 var einn af \u00feeim \u00fe\u00e1ttum sem Valur \u00feyrfti a\u00f0 taka me\u00f0 \u00ed reikninginn ef hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 flytja til baka til Reykjav\u00edkur. Hann yr\u00f0i a\u00f0 fullvissa sig um a\u00f0 hann g\u00e6ti s\u00e6tt sig vi\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 yr\u00f0u ekki eins margir s\u00f3lardagar \u00ed Reykjav\u00edk og hann var vanur a\u00f0 nj\u00f3ta, hvort sem \u00fea\u00f0 var \u00ed Amsterdam e\u00f0a Barsel\u00f3na. \u00dea\u00f0 yr\u00f0u tv\u00edm\u00e6lalaust fleiri dagar \u00fear sem himinninn v\u00e6ri hulinn sk\u00fdjum. Meiri rigning. Meiri snj\u00f3r. Meira slabb. \u00dea\u00f0 yr\u00f0i meira um \u00feennan endalausa, \u00f3\u00e1kve\u00f0na regn\u00fa\u00f0a sem h\u00e9ngi \u00ed loftinu d\u00f6gum saman \u00e1n \u00feess a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 upp vi\u00f0 sig hvort hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 falla sem rigning e\u00f0a ekki. Hann \u00feyrfti a\u00f0 b\u00faa sig undir \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00fea\u00f0 g\u00e6tu li\u00f0i\u00f0 vikur \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e6ist almennilega til s\u00f3lar. \u00dea\u00f0 var satt a\u00f0 hann kvarta\u00f0i stundum undan k\u00e6fandi sumarhitanum vi\u00f0 Mi\u00f0jar\u00f0arhafi\u00f0, en hann var\u00f0 a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 \u00feegar allt kom til alls \u00fe\u00e1 var ve\u00f0urfari\u00f0 \u00ed Barsel\u00f3na betra en b\u00e6\u00f0i \u00ed Amsterdam og Reykjav\u00edk. \u00dea\u00f0 var einnig einn af f\u00e1um kostum vi\u00f0 t\u00ed\u00f0u fer\u00f0al\u00f6gin milli Barsel\u00f3na og Amsterdam a\u00f0 hann gat vali\u00f0 a\u00f0 ey\u00f0a nokkrum aukad\u00f6gum \u00e1 skrifstofunni \u00ed Hollandi ef hitinn \u00ed Katal\u00f3n\u00edu var yfir\u00feyrmandi.<\/p>\n\n\n\n<p>Valur gekk yfir b\u00edlast\u00e6\u00f0i\u00f0 milli \u00edb\u00fa\u00f0arblokkanna og fann s\u00e9r lei\u00f0 \u00ed \u00e1tt a\u00f0 Borgart\u00fani. \u00deetta var a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum einn \u00fe\u00e9ttbygg\u00f0asti hluti Reykjav\u00edkur og \u00e6tti samkv\u00e6mt borgarfr\u00e6\u00f0unum a\u00f0 vera i\u00f0andi af mannl\u00edfi. Hins vegar voru f\u00e1ir \u00e1 ferli \u00e1 \u00feessum \u00feri\u00f0judagsmorgni. Eina l\u00edfsmarki\u00f0 var st\u00f6\u00f0ugur straumur b\u00edla upp og ni\u00f0ur Borgart\u00fani\u00f0. \u00deegar hann hugsa\u00f0i \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 var \u00feetta d\u00e6migert g\u00f6tul\u00edf \u00ed Reykjav\u00edk. \u00de\u00e6r f\u00e1u hr\u00e6\u00f0ur sem f\u00f3ru \u00fat \u00far h\u00fasi h\u00e9ldu sig \u00ed b\u00edlum s\u00ednum. Hva\u00f0 var \u00fea\u00f0 sem batt samlanda hans svona r\u00e6kilega vi\u00f0 b\u00edla? L\u00edka\u00f0i \u00feeim svona vel vi\u00f0 \u00fe\u00e1 e\u00f0a var f\u00f3lki\u00f0 einfaldlega fast \u00ed \u00e1standi \u00fear sem borgarskipulagi\u00f0, me\u00f0 dreif\u00f0ri bygg\u00f0 og st\u00f3rum \u00fathverfum, ger\u00f0i \u00feeim ekki kleift a\u00f0 brj\u00f3tast \u00fat \u00far \u00feessum v\u00e9lb\u00fanu st\u00e1lb\u00farum? Ef til vill var \u00feetta eins og hin eil\u00edfa togstreita milli uppruna h\u00e6nunnar og eggsins. Annars vegar notu\u00f0ust f\u00e1ir vi\u00f0 sj\u00e1lfb\u00e6ran samg\u00f6ngum\u00e1ta, \u00fear sem innvi\u00f0i vanta\u00f0i. Hins vegar \u00feor\u00f0i enginn stj\u00f3rnm\u00e1lama\u00f0ur a\u00f0 fj\u00e1rfesta \u00ed innvi\u00f0um fyrir sj\u00e1lfb\u00e6ran samg\u00f6ngum\u00e1ta, \u00fear sem notendurnir voru of f\u00e1ir\u2014kj\u00f3sendurnir of f\u00e1ir, og atkv\u00e6\u00f0in of f\u00e1. Hva\u00f0 sem hverju lei\u00f0 \u00fe\u00e1 var Valur ekki miki\u00f0 fyrir b\u00edla og velti fyrir s\u00e9r hvort hann myndi sakna g\u00f6tul\u00edfsins \u00ed \u00feeim tveimur borgum sem hann var a\u00f0 hugsa um a\u00f0 sn\u00faa baki vi\u00f0. Hann myndi sakna i\u00f0andi mannl\u00edfsins \u00e1 torgum og gangst\u00e9ttum Barsel\u00f3na, litlu s\u00e9rverslananna sem voru allar \u00ed g\u00f6nguf\u00e6ri, gr\u00e6nmetissalans, sl\u00e1trarans, v\u00ednb\u00fa\u00f0arinnar. Hann myndi sakna \u00feess a\u00f0 hj\u00f3la um Amsterdam, g\u00f6ngut\u00faranna me\u00f0fram s\u00edkjunum, \u00fear sem s\u00edbreytilegir h\u00fasgaflar veittu hina mestu skemmtun og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst lautarfer\u00f0anna \u00ed Vondelpark. Hann myndi sakna borganna \u00fear sem leikrit l\u00edfsins var sett upp \u00ed almenningsr\u00fdmum\u2014ekki a\u00f0eins innandyra, hvort sem \u00fea\u00f0 voru \u00fatidyr e\u00f0a dyr b\u00edla. Hann \u00edmynda\u00f0i s\u00e9r hversu \u00f3l\u00edkt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ef hann v\u00e6ri \u00e1 g\u00f6ngu um Barsel\u00f3na \u00ed dag. Hann myndi setjast ni\u00f0ur \u00e1 kaffih\u00fasi vi\u00f0 i\u00f0andi torg og f\u00e1 s\u00e9r kaffibolla \u00e1 me\u00f0an hann nyti \u00feess a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3lki\u00f0 \u00fear sem \u00fea\u00f0 f\u00e9kkst vi\u00f0 s\u00ednar \u00fatr\u00e9ttingar \u00ed mi\u00f0morgunss\u00f3linni. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 segja ef hann v\u00e6ri ekki \u00e1 \u00feri\u00f0judagsmorgunfundi.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar Valur kom a\u00f0 opna sv\u00e6\u00f0inu vi\u00f0 H\u00f6f\u00f0a, stoppa\u00f0i hann um stund til \u00feess a\u00f0 l\u00edta yfir fj\u00f6llin handan <em>sundanna bl\u00e1u<\/em>. \u00dats\u00fdni\u00f0 sem haf\u00f0i veitt m\u00f6rgu lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ldinu andagift. Fj\u00f6llin sem borgarsk\u00e1ldi\u00f0 l\u00fdsti sem fj\u00f3lubl\u00e1um draumum \u00e1 vorkv\u00f6ldi. Fjallas\u00fdnin, sundin, eyjarnar\u2014\u00fea\u00f0 var varla h\u00e6gt a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r betri ramma fyrir borg. Reykjav\u00edk var \u00fe\u00e9ttb\u00fdli \u00ed n\u00e1nd vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruna\u2014\u00f3snortnu v\u00ed\u00f0lendurnar sem voru \u00e1n vafa eitt helsta a\u00f0dr\u00e1ttarafl \u00cdslands, ekki einungis fyrir fer\u00f0amennina heldur einnig fyrir Val sj\u00e1lfan. Hann elska\u00f0i endalausa \u00fats\u00fdni\u00f0 yfir \u00f3bygg\u00f0ir. Fri\u00f0s\u00e6la n\u00e1tt\u00faruna. \u00dea\u00f0 var sannarlega au\u00f0velt a\u00f0 komast upp \u00ed fj\u00f6llin \u00ed n\u00e1grenni Barsel\u00f3na. P\u00fdreneafj\u00f6llin voru ekki nema \u00ed nokkurra t\u00edma lestarf\u00e6ri. \u00dea\u00f0 var hins vegar ekki \u00fea\u00f0 sama\u2014fjall e\u00f0a fjall. \u00dea\u00f0 var ekki sama einangrunartilfinning \u00e1 \u00cdber\u00eduskaganum og \u00e1 \u00edslenska h\u00e1lendinu. L\u00edkt og Valur kunni ekki vi\u00f0 mannleysi\u00f0 \u00e1 g\u00f6tum Reykjav\u00edkur, \u00fe\u00e1 kunni hann ekki vi\u00f0 mannmerg\u00f0ina \u00ed P\u00fdreneafj\u00f6llunum. Hann ger\u00f0i s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var \u00f6fgama\u00f0ur \u00ed \u00feeim efnum. Fyrir honum voru einungis tv\u00e6r tilvistarst\u00f6\u00f0ur, annars vegar st\u00f3rborgin me\u00f0 mannfj\u00f6lda og \u00fe\u00e9ttsetnu g\u00f6tul\u00edfi og hins vegar \u00f3snortin n\u00e1tt\u00fara, \u00fear sem hann gat veri\u00f0 einn s\u00edns li\u00f0s e\u00f0a me\u00f0 f\u00e1mennum en g\u00f3\u00f0mennum vinah\u00f3pi, \u00e1n \u00feess a\u00f0 miklar l\u00edkur v\u00e6ru \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 rekast \u00e1 anna\u00f0 f\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p>Valur hlakka\u00f0i reglulega miki\u00f0 til fer\u00f0arinnar sem hann \u00e1tti \u00ed v\u00e6ndum \u00ed n\u00e6stu viku. Hann var a\u00f0 fara me\u00f0 vinah\u00f3pnum \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0 um Hornstrandir, \u00fear sem \u00feeir \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 verja \u00e1tta d\u00f6gum, gangandi um \u00f3bygg\u00f0ir, fjarri borgum og b\u00e6jum, \u00e1n \u00feess a\u00f0 koma vi\u00f0 \u00e1 einu einasta bygg\u00f0u b\u00f3li. \u00deetta yr\u00f0i ganga \u00e1 landam\u00e6rum n\u00fat\u00edmasi\u00f0menningarinnar og \u00f3bygg\u00f0ar \u00edsbrei\u00f0u Nor\u00f0urp\u00f3lsins. Valur sakna\u00f0i \u00feessara fer\u00f0a. H\u00f3purinn f\u00f3r a\u00f0 minnsta kosti \u00ed tv\u00e6r vikulangar fer\u00f0ir \u00e1 \u00e1ri, og \u00feess \u00e1 milli voru margar styttri helgarfer\u00f0ir. Valur reyndi a\u00f0 n\u00e1 \u00ed a\u00f0 minnsta kosti eina af l\u00f6ngu fer\u00f0unum, en var\u00f0 a\u00f0 missa af \u00f6llum helgarfer\u00f0unum. \u00dea\u00f0 yr\u00f0i hins vegar leikur einn a\u00f0 taka upp \u00fer\u00e1\u00f0inn ef hann flytti til Reykjav\u00edkur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar Valur kom ni\u00f0ur \u00e1 Laugaveg lifna\u00f0i yfir g\u00f6tunni og fleiri voru \u00e1 ferli. \u00dea\u00f0 var \u00fe\u00f3 mestmegnis um fer\u00f0amenn a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Hann \u00e1tti \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a sig hvort hann teldi sj\u00e1lfan sig heimamann e\u00f0a fer\u00f0amann. A\u00f0 einhverju leyti var umhverfi\u00f0 kunnuglegt en \u00e1 sama t\u00edma var \u00fea\u00f0 einnig afar framandi. Hann \u00e1tti erfitt me\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 tengingu vi\u00f0 sta\u00f0inn. Svo margt haf\u00f0i breyst \u00e1 undanf\u00f6rnum fimmt\u00e1n \u00e1rum. Samf\u00e9lagi\u00f0 haf\u00f0i \u00fer\u00f3ast og hann haf\u00f0i \u00feroskast. \u00dea\u00f0 var eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00edslenskt samf\u00e9lag sem hann gat ekki tengt sig vi\u00f0. Hann naut \u00feess a\u00f0 lifa h\u00f3flegum l\u00edfsst\u00edl \u00ed l\u00edtilli \u00edb\u00fa\u00f0, \u00e1n muna\u00f0ar \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u00f6rbylgjuofn, sj\u00f3nvarp, upp\u00fevottav\u00e9l e\u00f0a \u00feurrkara. Hann \u00e1tti hvorki b\u00edl n\u00e9 h\u00fasn\u00e6\u00f0isl\u00e1n. Hlutirnir voru \u00f6\u00f0ruv\u00edsi \u00e1 \u00cdslandi. Honum fannst sem \u00e6tlast v\u00e6ri til a\u00f0 allir v\u00e6ru steyptir \u00ed sama m\u00f3ti\u00f0, \u00fear sem hver og einn \u00e1tti sitt h\u00fas og gar\u00f0, b\u00f6rn og b\u00edla, upp\u00fevottav\u00e9lar og hunda. Val langa\u00f0i til a\u00f0 lifa sveigjanlegu l\u00edfi\u2014vera frj\u00e1ls til a\u00f0 fer\u00f0ast\u2014frj\u00e1ls til a\u00f0 lifa \u00ed n\u00fainu \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 hugsa um framt\u00ed\u00f0ina. Hann var hr\u00e6ddur um a\u00f0 ef hann flytti til Reykjav\u00edkur \u00fe\u00e1 myndi hann steypa f\u00e6turna fasta \u00ed \u00f3frj\u00f3an \u00edslenskan jar\u00f0veg.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dar Bankastr\u00e6ti t\u00f3k Valur stefnuna \u00e1 h\u00f6fnina \u00fear sem Harpa, tilt\u00f6lulega n\u00fdja t\u00f3nlistarh\u00fasi\u00f0, st\u00f3\u00f0. Hann staldra\u00f0i vi\u00f0 \u00e1 Arnarh\u00f3li og virti bygginguna fyrir s\u00e9r. H\u00fasi\u00f0 sj\u00e1lft var \u00e1hrifamiki\u00f0 glerh\u00fdsi undir \u00e1hrifum fr\u00e1 sexhyrndu stu\u00f0labergi sem fannst svo v\u00ed\u00f0a \u00ed \u00edslenskri n\u00e1tt\u00faru. N\u00e1nasta umhverfi var hins vegar ekki eins t\u00f6frandi\u2014blanda af au\u00f0um byggingarl\u00f3\u00f0um og gapandi holum, sem bi\u00f0u \u00feess a\u00f0 vera fylltar af undurst\u00f6\u00f0um n\u00fdrra bygginga. \u00dea\u00f0 voru n\u00fa li\u00f0in fj\u00f6gur \u00e1r fr\u00e1 hruninu 2008, sem haf\u00f0i sett mestalla uppbyggingu \u00e1 \u00eds, og \u00fea\u00f0 voru ekki m\u00f6rg merki um a\u00f0 s\u00e1 klaki myndi br\u00e1\u00f0na \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum. Torgi\u00f0 fyrir framan t\u00f3nleikah\u00f6llina var eins ni\u00f0urdrepandi og byggingin sj\u00e1lf var uppl\u00edfgandi. N\u00e6stum allt torgi\u00f0 var \u00feaki\u00f0 sv\u00f6rtu malbiki, ekki \u00f3svipu\u00f0u st\u00e6r\u00f0arinnar b\u00edlast\u00e6\u00f0i. Til \u00feess a\u00f0 b\u00edlstj\u00f3rar ruglu\u00f0ust ekki \u00ed r\u00edminu, var st\u00f3rum steinsteypukubbum komi\u00f0 fyrir \u00e1 v\u00ed\u00f0 og dreif. Valur kunni a\u00f0 meta hi\u00f0 d\u00e6miger\u00f0a \u00edslenska landslag, me\u00f0 sv\u00f6rtum s\u00f6ndum eins langt og auga\u00f0 eyg\u00f0i, en \u00feetta var ekki r\u00e9tti sta\u00f0urinn fyrir ey\u00f0im\u00f6rk. R\u00e9tt eins og \u00edslensku sandarnir s\u00fdna mannf\u00f3lkinu ekki mikla gestrisni, \u00fe\u00e1 var \u00feetta malbikshaf afar fr\u00e1hrindandi. \u00deetta var mi\u00f0borgin. \u00dearna \u00e6tti a\u00f0 vera vin fyrir f\u00f3lk. \u00dea\u00f0 voru a\u00f0 v\u00edsu nokkrir bekkir \u00e1 stangli um torgi\u00f0 en ekkert sem gat la\u00f0a\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r skemmtilegt borgarl\u00edf. Enginn gr\u00f3\u00f0ur. Ekkert kaffih\u00fas. Ekkert. Valur var\u00f0 dapur. Hann \u00f3ska\u00f0i \u00feess svo heitt a\u00f0 hann g\u00e6ti falli\u00f0 fyrir Reykjav\u00edk. Hann \u00fer\u00e1\u00f0i a\u00f0 vera spenntur. \u00dea\u00f0 myndi gera \u00e1kv\u00f6r\u00f0un hans um a\u00f0 flytja til borgarinnar \u00feeim mun au\u00f0veldari.<\/p>\n\n\n\n<p>Valur hristi af s\u00e9r vonbrig\u00f0in og gekk yfir L\u00e6kjartorg, inn Hafnarstr\u00e6ti og \u00ed \u00e1tt a\u00f0 Listasafni Reykjav\u00edkur. Hann \u00feurfti a\u00f0 hreinsa hugann\u2014beina \u00fe\u00f6nkunum \u00ed a\u00f0rar \u00e1ttir. Hann \u00feurfti a\u00f0 h\u00e6tta um stund a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r b\u00faferlaflutningum, og listasafn var tilvali\u00f0 til \u00feess a\u00f0 dreifa huganum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">* * *<\/p>\n\n\n\n<p>Jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri sk\u00fdja\u00f0ur sumarmorgunn, og fer\u00f0amannat\u00edmabili\u00f0 \u00ed h\u00e1marki, \u00fe\u00e1 var hann einn \u00ed st\u00f3rum salnum. \u00de\u00f6gnin var alger, ef fr\u00e1 var tali\u00f0 \u00edskri\u00f0 undan g\u00famm\u00eds\u00f3lum sk\u00f3nna \u00feegar hann gekk yfir glansandi lakka\u00f0 steinsteypug\u00f3lfi\u00f0. Valur fann hvernig slakna\u00f0i \u00e1 spennunni sem safnast haf\u00f0i upp \u00ed l\u00edkamanum undanfarna daga. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 g\u00f3\u00f0 hugmynd a\u00f0 heims\u00e6kja safni\u00f0. \u00deema s\u00fdningarinnar, sem var \u00ed gangi \u00feessa stundina, var list \u00far hversdagsl\u00edfinu. Augl\u00fdst markmi\u00f0 hennar var a\u00f0 leita l\u00ednunnar \u00e1 milli \u00feess sem vi\u00f0 k\u00f6llum listaverk og hluta sem vi\u00f0 \u00e1l\u00edtum hversdagslega \u00ed okkar daglega l\u00edfi.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd salnum mi\u00f0jum stoppa\u00f0i Valur vi\u00f0 nokku\u00f0 venjulegan h\u00e6gindast\u00f3l sem st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 skiltis \u00fear sem gestir voru be\u00f0nir um a\u00f0 sitja ekki \u00e1 listaverkinu. Val var\u00f0 stars\u00fdnt \u00e1 st\u00f3linn. Var \u00feetta listmunur e\u00f0a einungis hluti af hinu daglega l\u00edfi? \u00deetta var sannarlega \u00e1leitin spurning. Hva\u00f0 er eiginlega list? Gat venjulegur st\u00f3ll \u00ed mi\u00f0jum sal veri\u00f0 list? St\u00f3llinn var kl\u00e1rlega h\u00f6nnun. En list? Hvar l\u00e1gu m\u00f6rkin milli listar og h\u00f6nnunar? Milli h\u00f6nnunar og framlei\u00f0slu? Var h\u00f6nnunin til sta\u00f0ar \u00ed hverju framleiddu eintaki, e\u00f0a a\u00f0eins \u00ed frumger\u00f0inni? Plat\u00f3 hef\u00f0i \u00f6rugglega haft svar vi\u00f0 \u00fev\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEr \u00feetta list?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Val var brug\u00f0i\u00f0. Hann haf\u00f0i ekki heyrt neinn ganga inn \u00ed salinn og r\u00f6ddin virtist eiga uppt\u00f6k s\u00edn r\u00e9tt fyrir aftan hann. Valur sneri s\u00e9r vi\u00f0 og st\u00f3\u00f0 augliti til auglitis vi\u00f0 konu sem st\u00f3\u00f0 \u00ed nokkurra feta fjarl\u00e6g\u00f0. H\u00fan var undir me\u00f0alh\u00e6\u00f0 og grannvaxin. Hnotubr\u00fant h\u00e1ri\u00f0 var klippt stutt \u00ed kinnbeinah\u00e6\u00f0. Gr\u00e1bl\u00e1 augun f\u00f6ngu\u00f0u athygli hans, eins og seglar. H\u00fa\u00f0in var lj\u00f3s og sl\u00e9tt. H\u00fan brosti. \u00cd a\u00f0ra r\u00f6ndina var h\u00fan barnsleg \u00ed \u00fatliti en \u00fea\u00f0 var eitthva\u00f0 vi\u00f0 hana sem f\u00e9kk hann til a\u00f0 geta s\u00e9r til um a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri \u00e1 hans aldri\u2014v\u00e6ri n\u00fdlega skri\u00f0in yfir \u00ferj\u00e1t\u00edu og fimm \u00e1ra marki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSatt best a\u00f0 segja, \u00fe\u00e1 hef \u00e9g ekki hugmynd,\u201c svara\u00f0i Valur eftir a\u00f0 hann haf\u00f0i jafna\u00f0 sig eftir sjokki\u00f0. \u201e\u00c9g var eiginlega a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed n\u00e1kv\u00e6mlega s\u00f6mu spurningu. \u00c9g \u00e1 erfitt me\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 st\u00f3l \u00ed mi\u00f0ju herbergi sem listmun. Ef \u00feetta er list getur hva\u00f0 sem er kallast list. Er \u00fea\u00f0 ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g er ekki viss um a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 s\u00e9 svona einfalt,\u201c sag\u00f0i konan, um lei\u00f0 og h\u00fan f\u00e6r\u00f0i sig n\u00e6r, og gekk \u00ed kringum st\u00f3linn til \u00feess a\u00f0 l\u00edta betur \u00e1 hann. \u201eEf til vill er listin ekki \u00ed st\u00f3lnum sj\u00e1lfum. Listama\u00f0urinn g\u00e6ti veri\u00f0 a\u00f0 hvetja okkur til \u00feess a\u00f0 l\u00edta lengra en \u00e1 st\u00f3linn og spyrja okkur annarra spurninga. Er \u00fea\u00f0 ekki of \u00fer\u00f6ng t\u00falkun a\u00f0 einbl\u00edna einungis \u00e1 st\u00f3linn sem listaverk? Getur listin ekki falist \u00ed samspilinu \u00e1 milli st\u00f3lsins og skiltisins? \u00cd m\u00f3thverfunni sem sk\u00f6pu\u00f0 er me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leyfa f\u00f3lki ekki a\u00f0 nota st\u00f3linn \u00ed \u00fev\u00ed hlutverki sem hann var framleiddur til a\u00f0 \u00fej\u00f3na? Ef til vill er tilgangur listamannsins einmitt s\u00e1 a\u00f0 f\u00e1 okkur til \u00feess a\u00f0 gera upp \u00e1 milli tveggja andst\u00e6\u00f0ra kosta. Kannski vill hann a\u00f0 vi\u00f0 setjumst \u00ed st\u00f3linn jafnvel \u00fe\u00f3tt okkur s\u00e9 sagt a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 ekki.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Konan lauk hringfer\u00f0 sinni um st\u00f3linn og settist. Valur f\u00e9kk g\u00e6sah\u00fa\u00f0 og fi\u00f0ring \u00ed magann. \u201e\u00de\u00fa getur ekki gert \u00feetta,\u201c hv\u00edsla\u00f0i hann, og leit \u00ed kringum sig til \u00feess a\u00f0 athuga hvort hann s\u00e6i \u00f6ryggisver\u00f0i. \u201eEinhver g\u00e6ti s\u00e9\u00f0 til \u00fe\u00edn!\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g efa \u00fea\u00f0,\u201c sag\u00f0i konan og glotti. \u201e\u00c9g held a\u00f0 listama\u00f0urinn vilji hvetja \u00feig til \u00feess a\u00f0 hugsa um m\u00f3thverfuna milli \u00feess sem \u00fe\u00fa \u00e6ttir a\u00f0 gera og \u00feess sem \u00feig langar a\u00f0 gera. Milli \u00feess sem \u00fe\u00fa heldur a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e6ttir a\u00f0 gera og \u00feess sem \u00feig virkilega langar til \u00feess a\u00f0 gera. \u00deess sem \u00feig langar a\u00f0 langa og \u00feess sem \u00feig raunverulega langar. F\u00f3lk er alltaf a\u00f0 spyrja sig rangra spurninga. \u00c1kaft \u00ed a\u00f0 spyrja sig spurninganna sem lei\u00f0a \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u sem \u00fea\u00f0 vill komast a\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eErt \u00fe\u00fa listakonan?\u201c spur\u00f0i Valur, sem haf\u00f0i r\u00f3ast l\u00edti\u00f0 eitt vi\u00f0 grunsemdirnar a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri allt hluti af s\u00fdningunni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00fa manst \u00fe\u00e1 ekkert eftir m\u00e9r, er \u00fea\u00f0 nokku\u00f0?\u201c spur\u00f0i konan og star\u00f0i \u00e1 hann me\u00f0 \u00feessum d\u00e1lei\u00f0andi, gr\u00e1bl\u00e1u augum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei, \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 gera \u00fea\u00f0?\u201c vi\u00f0urkenndi Valur og hugsa\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r hvort konan v\u00e6ri fyrrverandi bekkjarf\u00e9lagi \u00far menntask\u00f3la e\u00f0a jafnvel grunnsk\u00f3la. Nei, hann gat ekki fyrir nokkurn mun sta\u00f0sett hana \u00ed minninu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00deetta er \u00e9g, Ugla,\u201c sag\u00f0i h\u00fan. \u201eManstu ekki? \u00c6skuvinkona \u00fe\u00edn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eUgla?\u201c Val var brug\u00f0i\u00f0. Atbur\u00f0ar\u00e1sin haf\u00f0i veri\u00f0 ruglingsleg hinga\u00f0 til en n\u00fana t\u00f3k botninn \u00far og allt var\u00f0 afar s\u00farreal\u00edskt. \u201eUgla? \u00d3s\u00fdnilega vinkona m\u00edn \u00far \u00e6sku?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eL\u00edt \u00e9g \u00fat fyrir a\u00f0 vera \u00f3s\u00fdnileg \u00ed \u00fe\u00ednum augum?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei,\u201c j\u00e1ta\u00f0i Valur, \u00fe\u00f3 ekki fyllilega sannf\u00e6r\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00e1 myndi \u00e9g heldur kj\u00f3sa a\u00f0 \u00fe\u00fa kalla\u00f0ir mig bara&#8230;,\u201c h\u00fan t\u00f3k s\u00e9r sm\u00e1 umhugsunarfrest, \u201e&#8230;einfaldlega vinkonu \u00fe\u00edna.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Valur \u00feag\u00f0i og star\u00f0i \u00e1 konuna sem sat \u00ed h\u00e6gindast\u00f3lnum andsp\u00e6nis honum. H\u00fan star\u00f0i \u00e1 m\u00f3ti, glottandi. Valur loka\u00f0i augunum og anda\u00f0i dj\u00fapt. Ugla, \u00edmynda\u00f0a vinkona hans \u00far \u00e6sku. Hann brosti. Hann haf\u00f0i ekki hugsa\u00f0 til hennar \u00ed langan t\u00edma. Satt best a\u00f0 segja \u00e1tti hann engar eigin minningar um hana. Hann mundi einungis fr\u00e1sagnir foreldra sinna sem \u00feau h\u00f6f\u00f0u endurteki\u00f0 svo oft. S\u00f6gurnar um \u00fea\u00f0 hvernig \u00feau l\u00e9ku s\u00e9r saman, hann og Ugla. S\u00f6gurnar um \u00fea\u00f0 \u00feegar hann ba\u00f0 foreldrana a\u00f0 leggja \u00e1 bor\u00f0 fyrir Uglu \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 bor\u00f0a me\u00f0 \u00feeim. S\u00f6gurnar af \u00fev\u00ed \u00feegar h\u00fan fer\u00f0a\u00f0ist me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni, \u00fear til eitt sumari\u00f0 \u00feegar \u00feau voru \u00e1 fer\u00f0alagi um \u00cdrland, \u00fe\u00e1 hvarf h\u00fan. Hann h\u00e6tti a\u00f0 minnast \u00e1 hana. Hann h\u00e6tti a\u00f0 leika vi\u00f0 hana. H\u00fan virtist hafa horfi\u00f0 gersamlega \u00far huga hans\u2014h\u00e6tti a\u00f0 vera hluti af \u00edmyndu\u00f0um heimi hans. Enginn vissi hva\u00f0 haf\u00f0i bundi\u00f0 enda \u00e1 vinskap \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p>Valur opna\u00f0i augun aftur. Ugla var enn \u00e1 sama sta\u00f0. H\u00fan sat \u00ed h\u00e6gindast\u00f3lnum, halla\u00f0i s\u00e9r aftur og star\u00f0i \u00e1 hann.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvers vegna f\u00f6rum vi\u00f0 ekki eitthvert og f\u00e1um okkur \u00ed glas,\u201c sag\u00f0i h\u00fan og st\u00f3\u00f0 upp \u00far st\u00f3lnum. \u201e\u00dea\u00f0 er heilmiki\u00f0 sem vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 rekja \u00fea\u00f0 helsta sem \u00e1 okkar daga hefur drifi\u00f0 s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 s\u00e1umst s\u00ed\u00f0ast.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">* * *<\/p>\n\n\n\n<p>Valur og Ugla yfirg\u00e1fu listasafni\u00f0 og h\u00e9ldu aftur \u00fat \u00ed kaldan sumarmorguninn. \u00dea\u00f0 var enn\u00fe\u00e1 klukkut\u00edmi til h\u00e1degis og \u00fea\u00f0 yr\u00f0i ekki nokkurt m\u00e1l a\u00f0 finna hlj\u00f3\u00f0l\u00e1tan sta\u00f0 til a\u00f0 tala saman. Valur stakk upp \u00e1 a\u00f0 \u00feau f\u00e6ru \u00e1 veitingasta\u00f0inn \u00ed gamla F\u00e1lkah\u00fasinu \u00ed Hafnarstr\u00e6ti. Sta\u00f0urinn var n\u00e1l\u00e6gt, og satt best a\u00f0 segja, einn af f\u00e1um st\u00f6\u00f0um sem Valur \u00feekkti \u00ed mi\u00f0b\u00e6num. Hann var of sjaldan \u00e1 landinu til \u00feess a\u00f0 halda \u00ed vi\u00f0 t\u00ed\u00f0ar breytingar \u00e1 veitingasta\u00f0asvi\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 skella m\u00e9r \u00e1 kl\u00f3setti\u00f0,\u201c sag\u00f0i Ugla \u00feegar \u00feau h\u00f6f\u00f0u fundi\u00f0 s\u00e9r \u00feokkalegt bor\u00f0 vi\u00f0 glugga, me\u00f0 \u00fats\u00fdni \u00fat \u00e1 Ing\u00f3lfstorg.<\/p>\n\n\n\n<p>Valur settist ni\u00f0ur og sko\u00f0a\u00f0i v\u00ednlistann. Hann var enginn s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur \u00feegar kom a\u00f0 v\u00edni en kanna\u00f0ist vi\u00f0 tv\u00e6r rau\u00f0v\u00ednsfl\u00f6skur sem voru \u00ed bo\u00f0i, sp\u00e6nska Crianza fr\u00e1 Rioja og argent\u00ednska Malbec fr\u00e1 Mendoza.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVi\u00f0 \u00e6tlum a\u00f0 f\u00e1 fl\u00f6sku af Malbec,\u201c sag\u00f0i Valur vi\u00f0 \u00fej\u00f3ninn \u00feegar hann kom yfir a\u00f0 bor\u00f0inu. \u201eOg tv\u00f6 gl\u00f6s.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Valur gat ekki anna\u00f0 en brosa\u00f0. \u00deetta var eins og \u00ed fr\u00e1s\u00f6gnum foreldra hans \u00feegar hann fann sig kn\u00fainn til a\u00f0 bi\u00f0ja s\u00e9rstaklega um a\u00f0 lagt yr\u00f0i \u00e1 bor\u00f0 fyrir Uglu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c1 \u00e9g a\u00f0 koma me\u00f0 v\u00edni\u00f0 strax, e\u00f0a \u00e1 \u00e9g a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir sessunautnum?\u201c spur\u00f0i \u00fej\u00f3nninn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eKomdu endilega me\u00f0 \u00fea\u00f0 strax,\u201c svara\u00f0i Valur. \u201eVi\u00f0 komum saman. H\u00fan f\u00f3r bara \u00e1 kl\u00f3setti\u00f0 og kemur eftir sm\u00e1stund.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eA\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u, au\u00f0vita\u00f0,\u201c sag\u00f0i \u00fej\u00f3nninn og lyfti br\u00fanum. \u201eEins og \u00fe\u00e9r hentar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dej\u00f3nninn kom til baka me\u00f0 v\u00ednfl\u00f6skuna og tv\u00f6 gl\u00f6s. Hann hellti sm\u00e1l\u00f6gg \u00ed anna\u00f0 glasi\u00f0 og leyf\u00f0i Val a\u00f0 smakka. Valur l\u00e9t v\u00edni\u00f0 r\u00falla eftir tungunni \u00ed augnablik \u00e1\u00f0ur en hann sam\u00feykkti \u00fea\u00f0. \u00dej\u00f3nninn fyllti glasi\u00f0 og h\u00e9lt s\u00ed\u00f0an \u00e1fram a\u00f0 sinna \u00f6\u00f0rum gestum. Valur n\u00e6ldi \u00ed fl\u00f6skuna og hellti h\u00e1lffullt glas fyrir Uglu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvert er tilefni\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa ert staddur \u00e1 \u00cdslandi \u00feessa stundina?\u201c spur\u00f0i Ugla \u00feegar h\u00fan kom til baka af kl\u00f3settinu. \u201e\u00c9g haf\u00f0i fr\u00e9tt a\u00f0 \u00fe\u00fa v\u00e6rir \u00ed Barsel\u00f3na, e\u00f0a var \u00fea\u00f0 Amsterdam?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00fa, \u00fea\u00f0 er r\u00e9tt, \u00e9g b\u00fd mestmegnis \u00ed Barsel\u00f3na en er einnig miki\u00f0 \u00ed Amsterdam, vinnunnar vegna. Er bara \u00ed heims\u00f3kn h\u00e9r \u00e1 landi.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eFyrir Amsterdam og Barsel\u00f3na,\u201c sag\u00f0i Ugla og lyfti glasinu til \u00feess a\u00f0 sk\u00e1la. \u201eHlj\u00f3mar eins og f\u00ednasta blanda.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSk\u00e1l,\u201c sag\u00f0i Valur og lyfti s\u00ednu glasi. \u201e\u00dea\u00f0 er r\u00e9tt. En \u00fe\u00fa? Varst \u00fe\u00fa ekki \u00e1 \u00cdrlandi \u00feegar vi\u00f0 s\u00e1umst seinast?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00fa, vi\u00f0 s\u00e1umst \u00fear, en annars \u00e1 \u00e9g m\u00e9r ekki fastan samasta\u00f0. \u00c9g fer\u00f0ast um. \u00c9g fer \u00feanga\u00f0 sem m\u00edn er \u00fe\u00f6rf. \u00c9g dvel vanalega \u00ed stuttan t\u00edma \u00e1 hverjum sta\u00f0. N\u00fana er \u00e9g \u00ed verkefni \u00ed Reykjav\u00edk. \u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 stoppa stutt. En \u00fe\u00fa?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g ver\u00f0 \u00ed r\u00faman h\u00e1lfan m\u00e1nu\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVi\u00f0skipti e\u00f0a d\u00e6gradv\u00f6l?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eB\u00e6\u00f0i. \u00c9g er a\u00f0 fara \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0 me\u00f0 vinum m\u00ednum \u00ed n\u00e6stu viku, en \u00e9g er einnig \u00e1 landinu vegna atvinnut\u00e6kif\u00e6ris. \u00c9g f\u00f3r \u00ed vi\u00f0tal hj\u00e1 \u00edslensku fyrirt\u00e6ki \u00ed g\u00e6r.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Valur fann fyrir fi\u00f0rildum \u00ed maganum \u00feegar honum var\u00f0 hugsa\u00f0 til atvinnuvi\u00f0talsins. Var hann virkilega svona stressa\u00f0ur yfir \u00fev\u00ed hvort hann fengi starfi\u00f0? E\u00f0a var maginn a\u00f0eins a\u00f0 kvarta yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann v\u00e6ri a\u00f0 drekka rau\u00f0v\u00edn fyrir h\u00e1degismat? Satt best a\u00f0 segja haf\u00f0i hann enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til \u00feess a\u00f0 hafa \u00e1hyggjur. Hann haf\u00f0i fari\u00f0 \u00ed miklu erfi\u00f0ari vi\u00f0t\u00f6l fyrr \u00e1 ferlinum. \u00deetta haf\u00f0i veri\u00f0 barnaleikur \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 var eins og starfsl\u00fdsingin hef\u00f0i veri\u00f0 skrifu\u00f0 til a\u00f0 passa n\u00e1kv\u00e6mlega vi\u00f0 menntun hans og starfsreynslu. Vi\u00f0tali\u00f0 haf\u00f0i gengi\u00f0 eins og \u00ed s\u00f6gu og hann haf\u00f0i fundi\u00f0 g\u00f3\u00f0an anda \u00e1 me\u00f0al starfsf\u00f3lksins. Kemistr\u00edan haf\u00f0i veri\u00f0 r\u00e9tt a\u00f0 svo m\u00f6rgu leyti. Ef eitthva\u00f0 var \u00fe\u00e1 leit \u00feetta of vel \u00fat til a\u00f0 vera satt. Um var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a gl\u00e6n\u00fdtt sprotafyrirt\u00e6ki \u00e1 svi\u00f0i efnaverkfr\u00e6\u00f0i \u00fear sem hann g\u00e6ti einbeitt s\u00e9r hundra\u00f0 pr\u00f3sent a\u00f0 tilraunum me\u00f0 n\u00e1tt\u00faruleg efni undir \u00e1hrifum fr\u00e1 \u00edslenskum jar\u00f0hitasv\u00e6\u00f0um. Varan var bygg\u00f0 \u00e1 hugmynd sem hann haf\u00f0i veri\u00f0 sj\u00e1lfur a\u00f0 g\u00e6la vi\u00f0 \u00ed nokkurn t\u00edma. \u00deetta yr\u00f0i mikil breyting fr\u00e1 n\u00faverandi starfi hj\u00e1 st\u00f3rum, al\u00fej\u00f3\u00f0legum efnarisa, \u00fear sem hann eyddi meiri t\u00edma \u00e1 lei\u00f0inlegum fundum og \u00ed innanh\u00fassp\u00f3lit\u00edk heldur en a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 efnafr\u00e6\u00f0ina sj\u00e1lfa.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eVong\u00f3\u00f0ur?\u201c spur\u00f0i Ugla og trufla\u00f0i hugsanir hans.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eUm hva\u00f0?\u201c Valur haf\u00f0i gleymt \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri \u00e1 sta\u00f0num, og hva\u00f0 \u00feau h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 a\u00f0 tala um.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eUm starfi\u00f0, au\u00f0vita\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00d3, j\u00e1. Nei. \u00c9g meina j\u00e1. B\u00e6\u00f0i. J\u00e1 og nei. \u00c9g er \u00e1 milli steins og sleggju. \u00c1 annan b\u00f3ginn er \u00e9g vong\u00f3\u00f0ur um a\u00f0 \u00e9g f\u00e1i starfi\u00f0. \u00c1 hinn b\u00f3ginn&#8230; \u00c9g veit ekki&#8230; \u00de\u00e1 vona \u00e9g a\u00f0 \u00e9g f\u00e1i \u00fea\u00f0 ekki. \u00deetta er svol\u00edti\u00f0 fl\u00f3ki\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEr starfi\u00f0 ekki n\u00f3gu \u00e1hugavert?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei, \u00fea\u00f0 er ekki m\u00e1li\u00f0. \u00c9g meina j\u00e1, \u00fea\u00f0 er \u00e1hugavert. Ef eitthva\u00f0 er, \u00fe\u00e1 er \u00feetta draumastarfi\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSvo, \u00fea\u00f0 er nokku\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 \u00fe\u00fa munir f\u00e1 \u00fea\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, \u00fea\u00f0 held \u00e9g.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er fr\u00e1b\u00e6rt!\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAf hverju ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g yr\u00f0i a\u00f0 flytja til Reykjav\u00edkur.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 er a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 flytja til Reykjav\u00edkur?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki. \u00c9g er ekki viss um a\u00f0 m\u00e9r l\u00edki vi\u00f0 borgina. \u00c9g er ekki viss um a\u00f0 \u00e9g passi lengur inn \u00ed \u00edslenskan hugsunarh\u00e1tt.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvers vegna ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g kann vel vi\u00f0 einfaldan, borgaralegan l\u00edfsst\u00edlinn sem \u00e9g lifi \u00ed Barsel\u00f3na. \u00c9g n\u00fdt \u00feess a\u00f0 geta bor\u00f0a\u00f0 morgunmat \u00e1 kaffih\u00fasi \u00fati \u00e1 torgi allt \u00e1ri\u00f0 um kring.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHversu oft bor\u00f0ar \u00fe\u00fa morgunmat \u00fati \u00e1 torgi \u00ed Barsel\u00f3na?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eN\u00e6stum aldrei, \u00ed raun og veru.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er ekki m\u00e1li\u00f0. \u00deetta hefur meira me\u00f0 konsepti\u00f0 a\u00f0 gera. \u00c9g vil eiga v\u00f6lina. \u00c9g s\u00e9 mig bara ekki fyrir m\u00e9r \u00ed Reykjav\u00edk.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvers vegna ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er svo margt sem spilar inn \u00ed. \u00cd fyrsta lagi, \u00fe\u00e1 kann \u00e9g vi\u00f0 b\u00edllausan l\u00edfsst\u00edl. Foreldrar m\u00ednir b\u00faa \u00ed klukkut\u00edma fjarl\u00e6g\u00f0 fr\u00e1 Reykjav\u00edk. Vinir m\u00ednir eru dreif\u00f0ir \u00fat um allt h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0, \u00ed mi\u00f0b\u00e6num, \u00fathverfunum og n\u00e1grannasveitarf\u00e9l\u00f6gunum. \u00dea\u00f0 yr\u00f0i ge\u00f0veiki a\u00f0 komast \u00e1 milli sta\u00f0a.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvers vegna ertu \u00fe\u00e1 samt a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed a\u00f0 flytja?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00cd tv\u00f6 \u00e1r hef \u00e9g \u00ed og me\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 hugsa um \u00feetta, a\u00f0 flytja til baka til \u00cdslands. \u00c9g vil ey\u00f0a meiri t\u00edma me\u00f0 foreldrunum. \u00c9g \u00e1 \u00fe\u00e9ttan vinah\u00f3p h\u00e9rna. \u00c9g sakna hans. \u00c9g sakna \u00feess a\u00f0 vera me\u00f0 vinunum, \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0um \u00fati \u00ed n\u00e1tt\u00farunni.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g skil,\u201c sag\u00f0i Ugla og setti upp vingjarnlegt bros sem f\u00e9kk Val til \u00feess a\u00f0 slaka \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eM\u00e9r l\u00edkar hins vegar ekki vali\u00f0. \u00cd tv\u00f6 \u00e1r hef \u00e9g for\u00f0ast \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 svara spurningunni um \u00fea\u00f0 hvort \u00e9g geti hugsa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 b\u00faa \u00e1 \u00cdslandi, einfaldlega me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 minna mig \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru engin st\u00f6rf fyrir mig h\u00e9r. Engin st\u00f6rf sem henta beint minni reynslu, \u00fear er a\u00f0 segja. \u00c9g hef tali\u00f0 m\u00e9r tr\u00fa um a\u00f0 \u00e9g hafi s\u00e9rh\u00e6ft mig \u00fat af \u00edslenska vinnumarka\u00f0inum. \u00deannig hef \u00e9g ekki \u00feurft a\u00f0 velja \u00e1 milli heimsborgarinnar og heimaborgarinnar. \u00dea\u00f0 hefur \u00fev\u00ed aldrei veri\u00f0 neitt val. Svo haf\u00f0i \u00feetta n\u00fdja fyrirt\u00e6ki samband vi\u00f0 mig fyrir nokkrum vikum og bau\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 koma \u00ed vi\u00f0tal.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg \u00fear sem vi\u00f0tali\u00f0 gekk vel \u00fe\u00e1 getur \u00fe\u00fa ekki fali\u00f0 \u00feig lengur,\u201c h\u00e9lt Ugla \u00e1fram, \u00e1 me\u00f0an h\u00fan horf\u00f0i \u00ed augu Vals og las hugsanir hans. \u201e\u00de\u00fa getur ekki fali\u00f0 \u00feig \u00e1 bak vi\u00f0 afs\u00f6kunina a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9u engin st\u00f6rf vi\u00f0 \u00feitt h\u00e6fi \u00e1 \u00cdslandi. \u00de\u00fa ver\u00f0ur a\u00f0 gera upp hug \u00feinn. \u00de\u00fa ver\u00f0ur a\u00f0 taka \u00e1kv\u00f6r\u00f0un.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eN\u00e1kv\u00e6mlega!\u201c Innst inni vona\u00f0i Valur a\u00f0 svari\u00f0 vi\u00f0 atvinnuvi\u00f0talinu yr\u00f0i neikv\u00e6tt. Hann vona\u00f0i a\u00f0 hann v\u00e6ri ekki r\u00e9tti ma\u00f0urinn \u00ed starfi\u00f0 og yr\u00f0i \u00feess vegna hafna\u00f0. \u00de\u00e1 \u00feyrfti hann ekki a\u00f0 svara \u00f6llum \u00feessum erfi\u00f0u spurningum. Hann g\u00e6ti skoti\u00f0 \u00e1 frest \u00e1kv\u00f6r\u00f0uninni var\u00f0andi \u00fea\u00f0 hvort hann flytti til baka til \u00cdslands e\u00f0a yr\u00f0i \u00e1fram \u00ed Barsel\u00f3na. Honum fannst \u00feetta erfi\u00f0 sta\u00f0a. B\u00e1\u00f0ir m\u00f6guleikarnir h\u00f6f\u00f0u s\u00edna kosti og galla. Hvorugur var greinilega betri en hinn. \u201e\u00c9g vil ey\u00f0a meiri t\u00edma me\u00f0 fj\u00f6lskyldu og vinum en \u00e9g vil l\u00edka b\u00faa \u00ed raunverulegri borg.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 er raunveruleiki?\u201c spur\u00f0i Ugla.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEr \u00fea\u00f0 ekki kaldh\u00e6\u00f0nislegt a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir draga \u00fea\u00f0 \u00ed efa hva\u00f0 s\u00e9 raunveruleiki og hva\u00f0 ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eErtu a\u00f0 segja a\u00f0 \u00e9g tilheyri ekki raunveruleikanum?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 hreinlega ekki,\u201c andvarpa\u00f0i Valur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 sem \u00e9g er a\u00f0 reyna a\u00f0 segja er a\u00f0 stundum er ekki au\u00f0velt a\u00f0 greina \u00e1 milli \u00feess sem er raunverulegt og \u00feess sem er \u00fea\u00f0 ekki. Vi\u00f0 eigum oft \u00ed erfi\u00f0leikum me\u00f0 a\u00f0 greina \u00e1 milli \u00feess sem vi\u00f0 \u00fer\u00e1um a\u00f0 \u00fer\u00e1 og \u00feess sem vi\u00f0 raunverulega \u00fer\u00e1um.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g er ekki viss um a\u00f0 p\u00e6lingin s\u00e9 eins dj\u00fap e\u00f0a heimspekileg,\u201c sag\u00f0i Valur. \u201e\u00c9g held a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 sn\u00faist einfaldlega um skilyr\u00f0i sem ekki er h\u00e6gt a\u00f0 uppfylla samt\u00edmis. \u00cd \u00f6llu falli \u00fe\u00e1 var \u00e9g a\u00f0 reyna a\u00f0 taka m\u00e9r sm\u00e1fr\u00ed fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hugsa um \u00feetta. Getum vi\u00f0 skipt um umr\u00e6\u00f0uefni?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAu\u00f0vita\u00f0,\u201c sag\u00f0i Ugla. \u201eHvernig hefur br\u00f3\u00f0ir \u00feinn \u00fea\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eBr\u00f3\u00f0ir minn?\u201c Valur fann hvernig l\u00edkaminn spenntist, bl\u00f3\u00f0i\u00f0 streymdi fram \u00ed andliti\u00f0 og m\u00e1lr\u00f3murinn h\u00e6kka\u00f0i. \u201eHva\u00f0 kemur&#8230; kemur hann m\u00e1linu vi\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eR\u00f3legur. \u00c9g spur\u00f0i bara,\u201c sag\u00f0i Ugla og yppti \u00f6xlum. \u201e\u00c9g var bara forvitin \u00fear sem \u00e9g mundi eftir \u00fev\u00ed fr\u00e1 okkar fyrri fundum a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1ttir eldri br\u00f3\u00f0ur. \u00c1rinu eldri, var \u00fea\u00f0 ekki?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00fa, \u00e9g \u00e1tti eldri br\u00f3\u00f0ur,\u201c svara\u00f0i Valur. \u201e\u00c1 eldri br\u00f3\u00f0ur. \u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 hann hafi \u00fea\u00f0 gott.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSvo \u00fe\u00fa hefur ekki haft samband vi\u00f0 hann s\u00ed\u00f0an \u00fe\u00fa komst til landsins?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei,\u201c svara\u00f0i Valur og horf\u00f0i yfir torgi\u00f0. \u201e\u00c9g hef veri\u00f0 upptekinn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg s\u00fa sta\u00f0reynd a\u00f0 br\u00f3\u00f0ir \u00feinn giftist \u00e6sku\u00e1stinni \u00feinni\u2014\u00e1st l\u00edfs \u00fe\u00edns\u2014hefur ekkert me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 gera a\u00f0 \u00fe\u00fa efist um \u00fea\u00f0 hvort \u00fe\u00fa eigir a\u00f0 flytja til baka til \u00cdslands?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Valur loka\u00f0i augunum og fannst heimurinn hringsn\u00faast \u00ed h\u00f6f\u00f0i s\u00e9r. \u00deetta var ekki a\u00f0 eiga s\u00e9r sta\u00f0. Hann var ekki a\u00f0 taka vi\u00f0 lex\u00edu um l\u00edfi\u00f0 fr\u00e1 veru sem var ekki einu sinni raunveruleg\u2014fr\u00e1 einhverri \u00edmynda\u00f0ri veru, sem virtist geta valsa\u00f0 inn og \u00fat \u00far l\u00edfi hans eins og h\u00fan vildi \u00e1 nokkurra \u00e1ratuga fresti. Hva\u00f0 vissi h\u00fan um \u00fea\u00f0 hva\u00f0 hann hugsa\u00f0i, e\u00f0a hugsa\u00f0i ekki? Hva\u00f0 hann raunverulega \u00fer\u00e1\u00f0i, e\u00f0a \u00fer\u00e1\u00f0i a\u00f0 \u00fer\u00e1?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center\">* * *<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar Valur opna\u00f0i augun aftur og leit yfir bor\u00f0i\u00f0, \u00fe\u00e1 var Ugla horfin. Hann sat einungis andsp\u00e6nis h\u00e1lffullu rau\u00f0v\u00ednsglasi. Hann me\u00f0 t\u00f3mt rau\u00f0v\u00ednsglas \u00ed h\u00f6ndunum. Hann hellti s\u00ed\u00f0ustu dropunum \u00far fl\u00f6skunni \u00ed glasi\u00f0 sitt og halla\u00f0i s\u00e9r aftur \u00ed s\u00e6tinu. Hann fann \u00e1 s\u00e9r, en hugurinn var sk\u00fdrari en hann haf\u00f0i veri\u00f0 \u00e1\u00f0ur. Hann haf\u00f0i teki\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un. H\u00fan haf\u00f0i haft r\u00e9tt fyrir s\u00e9r \u00feegar allt kom til alls. Hann \u00feurfti ekki a\u00f0 b\u00ed\u00f0a frekari svara. Hann \u00e6tla\u00f0i ekki a\u00f0 taka starfinu, jafnvel \u00fe\u00f3tt honum by\u00f0ist \u00fea\u00f0. Hann var ekki tilb\u00fainn a\u00f0 flytjast til baka til Reykjav\u00edkur. Hann var ekki tilb\u00fainn a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 raunveruleikann.<\/p>\n\n\n\n<aside class=\"wp-block-group book-ad has-text-color has-background\" style=\"color:#000000;background-color:#257ea9\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-media-text is-stacked-on-mobile\" style=\"grid-template-columns:33% auto\"><figure class=\"wp-block-media-text__media\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"778\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=778%2C1024&#038;ssl=1\" alt=\"Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga \u2014 K\u00e1puh\u00f6nnun Ana Pi\u00f1eyro\" class=\"wp-image-1578 size-full\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=778%2C1024&amp;ssl=1 778w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=228%2C300&amp;ssl=1 228w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=768%2C1011&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=900%2C1185&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=500%2C658&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 778px) 100vw, 778px\" \/><\/figure><div class=\"wp-block-media-text__content\">\n<h4 class=\"wp-block-heading\">Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga<\/h4>\n\n\n\n<p>\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga <\/em>f\u00e6st sem kilja hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.co.uk\/dp\/9935946606\/\">Amazon<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.barnesandnoble.com\/w\/tala-u-vi-kunnuga-b-rkur-sigurbj-rnsson\/1133064553\">Barnes and Noble<\/a>. Rafb\u00e6kur f\u00e1st hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.com\/dp\/B07WQP3JVS\">Kindle Store<\/a>, <a href=\"https:\/\/books.apple.com\/us\/book\/tala%C3%B0u-vi%C3%B0-%C3%B3kunnuga\/id1476987961\">Apple Books<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.kobo.com\/gb\/en\/ebook\/talau-vi-okunnuga\">Kobo<\/a>, og <a href=\"https:\/\/www.storytel.com\/is\/is\/books\/tala%C3%B0u-vi%C3%B0-%C3%B3kunnuga-2028498\">Storytel<\/a>.<\/p>\n\n\n\n<p>Ennig m\u00e1 styrkja h\u00f6fundinn \u00ed gegnum <a href=\"https:\/\/patreon.com\/UrbanVolcano\">Patreon<\/a> og <a href=\"https:\/\/buymeacoffee.com\/borkur\">Buy Me a Coffee<\/a> e\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa b\u00f3kinni einkunn \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.goodreads.com\/book\/show\/47872659-tala-u-vi-kunnuga\">Goodreads<\/a>.<\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-buttons is-horizontal is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-buttons-is-layout-499968f5 wp-block-buttons-is-layout-flex\">\n<div class=\"wp-block-button has-custom-width wp-block-button__width-50\"><a class=\"wp-block-button__link has-text-color has-background wp-element-button\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/taladu-vid-okunnuga\/\" style=\"border-radius:50px;color:#ffffff;background-color:#000000\">n\u00e1nari uppl\u00fdsingar<\/a><\/div>\n<\/div>\n<\/div><\/aside>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. Valur stendur frammi fyrir \u00e1kv\u00f6r\u00f0un var\u00f0andi framt\u00ed\u00f0ina \u00feegar fort\u00ed\u00f0in bankar upp \u00e1.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":1656,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":true,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[69,6,64,62],"class_list":["post-1655","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-aeska","tag-barir-kaffihus","tag-gotulif","tag-list","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/thad-sem-vid-viljum-vilja.png?fit=1025%2C1025&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1655","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1655"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1655\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2429,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1655\/revisions\/2429"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1656"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1655"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1655"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1655"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}