{"id":1664,"date":"2022-05-25T10:20:10","date_gmt":"2022-05-25T10:20:10","guid":{"rendered":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/?p=1664"},"modified":"2025-03-21T17:52:50","modified_gmt":"2025-03-21T17:52:50","slug":"aftur-i-heimahagann","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/aftur-i-heimahagann\/","title":{"rendered":"Aftur \u00ed heimahagann"},"content":{"rendered":"\n<aside class=\"other-formats\">A\u00f0rar \u00fatg\u00e1fur: <a title=\"Aftur \u00ed heimahagann (PDF)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/ebooks\/is\/pdf\/aftur-i-heimahagann.pdf\">PDF<\/a> | <a title=\"Back Where I Belong (english)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/en\/back-where-i-belong\/\">english<\/a><\/aside>\n\n\n<div class=\"wp-block-image is-resized\">\n<figure class=\"alignright size-medium\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?resize=300%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"Aftur \u00ed heimahagann \u2014 Myndskreyting B\u00f6rkur Sigurbj\u00f6rnsson\" class=\"wp-image-1665\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?resize=300%2C300&amp;ssl=1 300w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?resize=150%2C150&amp;ssl=1 150w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?resize=768%2C768&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?resize=900%2C900&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?resize=500%2C500&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?w=1025&amp;ssl=1 1025w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndskreyting B\u00f6rkur Sigurbj\u00f6rnsson<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>\u00c9g l\u00edt \u00fat um gluggann og inn \u00ed gr\u00e1an vetrardag. D\u00f6kk sk\u00fd hanga l\u00e1gt \u00e1 himnafestingunni, en \u00feessa stundina kemur hvorki rigning n\u00e9 snj\u00f3r \u00far lofti. Um akbrautina utan gluggans, aka b\u00edlar fram hj\u00e1 \u00ed samfelldri bunu og kasta sk\u00edtugu slabbi upp \u00e1 gangst\u00e9ttirnar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g er \u00ed st\u00f3rborginni. \u00c9g er \u00ed Reykjav\u00edk. \u00dea\u00f0 veit \u00e9g fyrir v\u00edst. \u00c9g hef veri\u00f0 h\u00e9r um d\u00e1l\u00edti\u00f0 skei\u00f0. \u00c9g hef dvali\u00f0 h\u00e9r vikum saman, m\u00e1nu\u00f0um, e\u00f0a jafnvel \u00e1rum. \u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki me\u00f0 vissu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g l\u00edt \u00ed \u00e1tt fr\u00e1 glugganum og rannsaka umhverfi mitt. Beint fyrir framan mig, \u00ed hinum enda herbergisins, er komm\u00f3\u00f0a. Vi\u00f0 hennar hli\u00f0 er r\u00fam, snyrtilega upp\u00e1b\u00fai\u00f0 hv\u00edtu teppi. Veggirnir allt \u00ed kring eru einnig hv\u00edtir. Inni \u00ed m\u00ednum litla heimi er allt hreint og hv\u00edtt, en \u00fear fyrir utan r\u00e6\u00f0ur gr\u00e1myglan r\u00edkjum. Hva\u00f0 hefur or\u00f0i\u00f0 um alla liti l\u00edfs m\u00edns? Grasi\u00f0 gr\u00e6na, bl\u00e1an himininn, gulu bl\u00f3min&#8230;<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g l\u00edt \u00e1 hendur m\u00ednar, \u00e1 gamalt hrukk\u00f3tt skinni\u00f0. Erfi\u00f0i l\u00edfsins hefur teki\u00f0 sinn toll. \u00c9g er ekki lengur sterki b\u00f3ndinn sem \u00e9g \u00e1\u00f0ur var. \u00c9g kreppi hnefana og slaka svo \u00e1 \u00feeim aftur. \u00dea\u00f0 leynist enn\u00fe\u00e1 styrkur \u00ed l\u00edkamanum. \u00c9g legg l\u00f3fana \u00e1 st\u00f3larmana, \u00fdti m\u00e9r upp og geng \u00ed h\u00e6g\u00f0um m\u00ednum \u00fevert yfir herbergi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g str\u00fdk yfir komm\u00f3\u00f0una. Eins og hendur m\u00ednar \u00fe\u00e1 hefur gamall vi\u00f0urinn l\u00e1ti\u00f0 \u00e1 sj\u00e1. \u00c9g loka augunum og geng inn \u00ed vinnusk\u00farinn \u00fear sem hann fa\u00f0ir minn er a\u00f0 p\u00fassa vi\u00f0. \u00c9g fylgist me\u00f0 honum t\u00edmunum saman \u00fear sem hann umbreytir hr\u00e1um efnivi\u00f0inum \u00ed \u00feessa fallegu komm\u00f3\u00f0u. Fyrir t\u00edu \u00e1ra guttann sem \u00e9g er, \u00fe\u00e1 vir\u00f0ist handverki\u00f0 eins og galdur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g opna augun og l\u00edt yfir lj\u00f3smyndasafni\u00f0 sem brei\u00f0ir \u00far s\u00e9r ofan \u00e1 komm\u00f3\u00f0unni. \u00c9g tek upp einn rammann og held honum \u00ed skj\u00e1lfandi h\u00f6ndunum. \u00dearna erum vi\u00f0, saman fyrir utan b\u00e6inn okkar, ung og brosandi. \u00c9g er \u00ed gr\u00e1um jakkaf\u00f6tum og rj\u00f3mahv\u00edtri skyrtu. \u00de\u00fa ert \u00ed bl\u00e1um kj\u00f3l me\u00f0 hv\u00edta svuntu. \u00c9g veit a\u00f0 kj\u00f3llinn er bl\u00e1r, jafnvel \u00fe\u00f3tt lj\u00f3smyndin s\u00e9 svarthv\u00edt. \u00c9g keypti hann \u00ed kaupf\u00e9laginu hausti\u00f0 eftir a\u00f0 vi\u00f0 giftum okkur. Hann var fyrsta gj\u00f6fin sem \u00e9g gaf \u00fe\u00e9r sem eiginkonu, manstu?<\/p>\n\n\n\n<p>Myndin er tekin \u00e1 fyrsta br\u00fa\u00f0kaupsafm\u00e6linu okkar. Lj\u00f3smyndarinn er danskur. Hann er \u00e1 fer\u00f0alagi um eyjuna, festandi \u00edslenskt sveital\u00edf \u00e1 filmu og stoppar vi\u00f0 b\u00e6inn okkar, ef til vill fyrir tilviljun, ef til vill af \u00e1settu r\u00e1\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvers vegna bj\u00f3\u00f0um vi\u00f0 ykkur ekki til sm\u00e1 veislu \u00ed tilefni dagsins?\u201c spyr\u00f0 \u00fe\u00fa t\u00falk lj\u00f3smyndarans. \u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 baka p\u00f6nnuk\u00f6kur og hella upp \u00e1 n\u00fdtt kaffi. \u00cd dag h\u00f6ldum vi\u00f0 upp \u00e1 fyrsta br\u00fa\u00f0kaupsafm\u00e6li\u00f0 okkar. Vi\u00f0 giftum okkur \u00ed fyrra. N\u00e1kv\u00e6mlega \u00e1 \u00feessum degi.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 me\u00f0an vi\u00f0 bor\u00f0um talar \u00fe\u00fa linnulaust um l\u00edfi\u00f0 vi\u00f0 fj\u00f6r\u00f0inn, landslagi\u00f0, f\u00f3lki\u00f0, ve\u00f0ri\u00f0, si\u00f0ina.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 a\u00f0 l\u00edta vi\u00f0 hj\u00e1 Snj\u00f3lfi,\u201c segir \u00fe\u00fa. \u201eHann er kynlegur kvistur, gamall einb\u00fai&#8230; Ef \u00fei\u00f0 fari\u00f0 yfir h\u00e1lsinn \u00fearna og ni\u00f0ur \u00ed dalinn hinum megin, \u00fe\u00e1 g\u00e6tu\u00f0 \u00fei\u00f0 komi\u00f0 auga \u00e1 villt hreind\u00fdr&#8230; \u00dei\u00f0 eru\u00f0 heppnir a\u00f0 hann bl\u00e6s \u00far nor\u00f0vestri \u00ed dag. \u00dea\u00f0 er kannski \u00ed kaldari kantinum en l\u00edti\u00f0 \u00e1 bl\u00e1an himininn! Hugsi\u00f0 ykkur ef hann bl\u00e9si \u00far su\u00f0austri. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri hl\u00fdrra, en tv\u00edm\u00e6lalaust rigning&#8230; St\u00f3ri steinninn \u00fearna vi\u00f0 veginn er st\u00e6rsta \u00e1lfabygg\u00f0in vi\u00f0 fj\u00f6r\u00f0inn. Vegager\u00f0armennirnir \u00feor\u00f0u ekki a\u00f0 snerta hann. \u00deess vegna tekur vegurinn svona st\u00f3ran sveig fram hj\u00e1 honum&#8230;\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Aumingja t\u00falkurinn hefur t\u00e6plega r\u00fam til a\u00f0 b\u00edta \u00ed p\u00f6nnuk\u00f6kuna s\u00edna, en lj\u00f3smyndarinn hl\u00fdtur a\u00f0 vir\u00f0a frumkv\u00e6\u00f0i \u00feitt, \u00fev\u00ed hann sendir okkur myndina alla lei\u00f0ina fr\u00e1 Kaupmannah\u00f6fn sem \u00feakkl\u00e6tisvott.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g legg rammann fr\u00e1 m\u00e9r \u00e1 komm\u00f3\u00f0una, sn\u00fd m\u00e9r vi\u00f0 og held til baka \u00fevert yfir g\u00f3lfi\u00f0. \u00dea\u00f0 situr ungur ma\u00f0ur \u00ed n\u00e6sta st\u00f3l vi\u00f0 minn. Hann l\u00edtur til m\u00edn og brosir. Hann er \u00ed gr\u00e1um jakkaf\u00f6tum og hv\u00edtri skyrtu. \u00c9g er ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann l\u00edti \u00fat n\u00e6stum eins og \u00e9g \u00e1 lj\u00f3smynd danska lj\u00f3smyndarans. Hann er eins og draugur sj\u00e1lfs m\u00edns, \u00ed heims\u00f3kn fr\u00e1 li\u00f0num t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g geng yfir til hans, h\u00e6gt og r\u00f3lega, eitt skref \u00ed einu. \u00deegar \u00e9g kemst \u00e1 lei\u00f0arenda sn\u00fd \u00e9g m\u00e9r vi\u00f0, legg hendurnar varlega \u00e1 arma st\u00f3lsins og l\u00e6t mig s\u00edga ni\u00f0ur \u00ed s\u00e6ti\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg hverra manna ert \u00fe\u00fa, ungi ma\u00f0ur?\u201c spyr \u00e9g og sn\u00fd m\u00e9r \u00ed \u00e1tt a\u00f0 unga manninum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAfi, \u00feetta er \u00e9g, Emil,\u201c svarar hann. \u201eSonur S\u00f3leyjar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g loka augunum og s\u00e9 S\u00f3leyju hlaupandi um gr\u00f6sugar hl\u00ed\u00f0arnar ofan vi\u00f0 b\u00e6inn. H\u00fan er fimm \u00e1ra. \u00dea\u00f0 er vor. \u00c9g er a\u00f0 gera vi\u00f0 gaddav\u00edrsgir\u00f0ingu sem skemmdist \u00ed fannfergi vetrarins\u2014vetrarins 1944 til 1945. Snj\u00f3inn t\u00f3k seint upp. Heybirg\u00f0irnar kl\u00e1ru\u00f0ust n\u00e6stum. Rau\u00f0ka d\u00f3 \u00feann veturinn, lj\u00f3sbr\u00fana \u00e6rin me\u00f0 ry\u00f0rau\u00f0a blettinn \u00e1 enninu. \u00cd gegnum \u00e1rin haf\u00f0i h\u00fan veri\u00f0 uppspretta hraustra og sterkra lamba.<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00f3ley hleypur til m\u00edn brosandi. \u00c9g s\u00e9 gle\u00f0ina sk\u00edna \u00far augum hennar. H\u00fan er saklaus og \u00f3me\u00f0vitu\u00f0 um aflei\u00f0ingar vetrarhar\u00f0indanna.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSj\u00e1\u00f0u, pabbi, \u00e9g fann s\u00f3ley,\u201c segir h\u00fan og hl\u00e6r. \u201eBl\u00f3mi\u00f0 mitt. En n\u00fa er \u00fea\u00f0 \u00feitt. \u00c9g gef \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eK\u00e6rar \u00feakkir!\u201c \u00c9g tek vi\u00f0 bl\u00f3minu og f\u00e6ri \u00fea\u00f0 upp a\u00f0 brj\u00f3stinu \u00fear sem \u00fea\u00f0 l\u00edmist vi\u00f0 lopapeysuna. \u201e\u00de\u00fa veist \u00e9g \u00e1 n\u00fa \u00feegar fallegustu s\u00f3leyna \u00ed \u00f6llum heiminum.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g veit,\u201c svarar S\u00f3ley og ypptir \u00f6xlum, um lei\u00f0 og h\u00fan sn\u00fdr s\u00e9r vi\u00f0 og heldur leik s\u00ednum \u00e1fram, hoppandi \u00e1 milli steina og \u00fe\u00fafna. H\u00fan hleypur um, bankar \u00e1 steina og heilsar hulduf\u00f3lkinu sem \u00fear b\u00fdr.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g opna augun og l\u00edt \u00e1 unga manninn sem situr vi\u00f0 hli\u00f0 m\u00e9r. Svo \u00feetta er sonur hennar S\u00f3leyjar litlu. \u00c9g get \u00edmynda\u00f0 m\u00e9r \u00fea\u00f0. Hann hefur s\u00f6mu augun og sama brosi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eH\u00fan er n\u00fa farin, h\u00fan amma \u00fe\u00edn,\u201c segi \u00e9g vi\u00f0 d\u00f3ttursoninn. \u201eInnan skamms mun \u00e9g halda af sta\u00f0 austur til \u00feess a\u00f0 vera vi\u00f0 jar\u00f0arf\u00f6rina.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn&#8230; jar\u00f0arf\u00f6r \u00f6mmu var fyrir m\u00e1nu\u00f0i s\u00ed\u00f0an,\u201c svarar ungi ma\u00f0urinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g loka augunum og s\u00e9 litlu kirkjuna ofan vi\u00f0 b\u00e6inn. \u00c9g er a\u00f0 sl\u00e1 fl\u00f6tina framan vi\u00f0 gu\u00f0sh\u00fasi\u00f0. \u00cdslenski f\u00e1ninn b\u00e6rist \u00ed haustgolunni. \u00dea\u00f0 er flagga\u00f0 \u00ed h\u00e1lfa st\u00f6ng. \u00c9g er a\u00f0 gera kirkjuna kl\u00e1ra fyrir jar\u00f0arf\u00f6r. \u00c9g l\u00edt ni\u00f0ur eftir t\u00faninu \u00ed \u00e1tt a\u00f0 b\u00e6num og hugsa til \u00fe\u00edn. \u00de\u00fa ert \u00ed eldh\u00fasinu, \u00f6nnum kafin vi\u00f0 a\u00f0 baka p\u00f6nnuk\u00f6kur og hella upp \u00e1 kaffi. Me\u00f0 sorg \u00ed hjarta ert \u00fe\u00fa a\u00f0 undirb\u00faa erfidrykkju. \u00dar kirkjugar\u00f0inum heyrist moksturshlj\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 taka gr\u00f6f.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g man daginn greinilega. Hann fa\u00f0ir \u00feinn heldur af sta\u00f0 til a\u00f0 g\u00e6ta neta \u00fati \u00e1 fir\u00f0inum. \u00dea\u00f0 er r\u00f3legt haustve\u00f0ur \u00ed lofti. \u00c9g geri mig kl\u00e1ran til a\u00f0 fara me\u00f0 \u00fat \u00e1 fj\u00f6r\u00f0inn en er kalla\u00f0ur til a\u00f0 hj\u00e1lpa Snj\u00f3lfi gamla vi\u00f0 a\u00f0 koma s\u00ed\u00f0asta heyinu \u00ed h\u00fas. \u201eFar\u00f0u og hj\u00e1lpa\u00f0u Snj\u00f3lfi gamla,\u201c segir fa\u00f0ir \u00feinn. \u201e\u00c9g s\u00e9 um netin.\u201c Um mi\u00f0jan dag tekur upp sterkan vind og \u00fea\u00f0 byrjar a\u00f0 rigna. Enginn veit n\u00e1kv\u00e6mlega hva\u00f0 gerist \u00fati \u00e1 fir\u00f0inum en fa\u00f0ir \u00feinn n\u00e6r ekki aftur \u00ed land.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g opna augun og l\u00edt \u00fat um gluggann. \u00c9g er \u00ed Reykjav\u00edk. \u00dea\u00f0 snj\u00f3ar. H\u00e6gfara b\u00edlaumfer\u00f0 l\u00ed\u00f0ur um g\u00f6tuna handan glersins. L\u00f6ng b\u00edlar\u00f6\u00f0 sniglast \u00e1fram. B\u00edlstj\u00f3rarnir vir\u00f0ast eir\u00f0arlausir og \u00e9g skynja spennu \u00ed loftinu. \u00deeir horfa \u00f3\u00feolinm\u00f3\u00f0ir fram fyrir sig og vilja a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum n\u00e1 \u00e1fangasta\u00f0 hra\u00f0ar en ve\u00f0ur leyfir.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sn\u00fd h\u00f6f\u00f0inu fr\u00e1 glugganum og vir\u00f0i fyrir m\u00e9r hv\u00edtm\u00e1la\u00f0 herbergi\u00f0. \u00dea\u00f0 situr ungur ma\u00f0ur \u00ed st\u00f3lnum vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00e9r. Lj\u00f3st h\u00e1ri\u00f0, bl\u00e1 augun og vingjarnlegt brosi\u00f0 minna \u00e1 mig sj\u00e1lfan \u00feegar \u00e9g var \u00e1 hans aldri.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg hverra manna ert \u00fe\u00fa, ungi ma\u00f0ur?\u201c spyr \u00e9g til \u00feess a\u00f0 svala forvitni minni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g er Emil. Barnabarn \u00feitt. Sonur S\u00f3leyjar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g loka augunum. \u00c9g stend \u00e1 n\u00fdsleginni fl\u00f6tinni fyrir framan kirkjuna. \u00dea\u00f0 er sumar. S\u00f3lin sk\u00edn og \u00edslenski f\u00e1ninn blaktir letilega vi\u00f0 h\u00fan \u00ed h\u00e6gum andvaranum. S\u00f3ley og \u00e9g g\u00f6ngum h\u00f6nd \u00ed h\u00f6nd \u00ed \u00e1tt til kirkju. \u00c9g er \u00ed sunnudagsf\u00f6tunum og h\u00fan er \u00ed hv\u00edtum kj\u00f3l. Vi\u00f0 l\u00edtum hvort \u00e1 anna\u00f0 og brosum. \u00c9g \u00e1 b\u00e1gt me\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed hversu hratt h\u00fan hefur umbreyst, fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera ung st\u00falka sem hoppar \u00e1 milli \u00fe\u00fafna \u00ed brekkunni fyrir ofan b\u00e6inn, yfir \u00ed a\u00f0 vera ung kona sem er vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 ganga inn kirkjug\u00f3lfi\u00f0\u2014inn \u00ed n\u00fdjan kafla l\u00edfsins\u2014inn \u00ed hj\u00f3naband. \u00c9g opna augun og vir\u00f0i d\u00f3tturson minn fyrir m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er fallegt af \u00fe\u00e9r a\u00f0 koma \u00ed heims\u00f3kn,\u201c segi \u00e9g vi\u00f0 hann. \u201eKemur \u00fe\u00fa langt a\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei, \u00e9g b\u00fd \u00ed Vesturb\u00e6num. \u00dea\u00f0 er bara nokkurra m\u00edn\u00fatna akstur.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg h\u00fan m\u00f3\u00f0ir \u00fe\u00edn? Hva\u00f0a fr\u00e9ttir getur \u00fe\u00fa sagt m\u00e9r af henni?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eH\u00fan skrapp bara \u00fat \u00e1 ganginn til a\u00f0 tala vi\u00f0 hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0inginn. H\u00fan kemur aftur eftir sm\u00e1stund.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 heyra. \u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 hafa S\u00f3leyju litlu n\u00e1l\u00e6gt. S\u00e9rstaklega n\u00fana \u00feegar \u00fe\u00fa hefur fer\u00f0ast yfir m\u00f3\u00f0una miklu. \u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 geta s\u00e9\u00f0 kunnuglegt andlit.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eH\u00fan amma \u00fe\u00edn er n\u00fa farin,\u201c segi \u00e9g vi\u00f0 Emil. \u201eInnan skamms mun \u00e9g leggja \u00ed hann, austur, til a\u00f0 vera vi\u00f0staddur jar\u00f0arf\u00f6rina.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Emil brosir og kinkar kolli. Ef til vill er \u00fea\u00f0 \u00feess vegna sem hann er \u00ed heims\u00f3kn. Hann mun keyra mig austur \u00e1 eftir. \u00c9g hlakka til a\u00f0 berja sveitina augum. \u00c9g hlakka til a\u00f0 sn\u00faa til baka og vera \u00fe\u00e9r vi\u00f0 hli\u00f0 \u00ed kyrr\u00f0inni vi\u00f0 fj\u00f6r\u00f0inn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g loka augunum og stend \u00fati \u00e1 t\u00fani, me\u00f0 orf og lj\u00e1 \u00ed h\u00f6ndum. \u00c9g er a\u00f0 sl\u00e1 gras undir heitri \u00e1g\u00fasts\u00f3linni. \u00c9g l\u00edt upp \u00ed \u00e1tt a\u00f0 b\u00e6num og s\u00e9 hvar \u00fe\u00fa kemur gangandi yfir t\u00fani\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHv\u00edl\u00edkur d\u00fdr\u00f0ardagur, elskan m\u00edn!\u201c segir \u00fe\u00fa \u00feegar \u00fe\u00fa n\u00e1lgast. \u201e\u00c9g er me\u00f0 h\u00e1degismatinn. Brau\u00f0, p\u00f6nnuk\u00f6kur og kaffi.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g legg lj\u00e1inn fr\u00e1 m\u00e9r og heilsa \u00fe\u00e9r me\u00f0 kossi. Vi\u00f0 setjumst ni\u00f0ur hj\u00e1 st\u00f3ra steinunum, mi\u00f0ja vegu \u00e1 t\u00faninu, og \u00e9g tek til matar m\u00edns. \u00c9g er reglulega svangur eftir erfi\u00f0i morgunsins. \u00c1 me\u00f0an \u00e9g geri brau\u00f0inu og kaffinu skil, \u00fe\u00e1 talar \u00fe\u00fa um efni\u00f0 sem \u00fe\u00fa \u00e6tlar a\u00f0 f\u00e1 \u00far kaupf\u00e9laginu \u00ed haust\u2014um gluggatj\u00f6ldin sem \u00fe\u00fa \u00e6tlar a\u00f0 skipta \u00fat. \u00c1\u00f0ur en langt um l\u00ed\u00f0ur hef \u00e9g loki\u00f0 vi\u00f0 matinn og kyssi \u00feig \u00ed kve\u00f0juskyni \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fa heldur aftur uppeftir til b\u00e6jarins. T\u00edminn m\u00e1 ei fara til spillis. \u00dea\u00f0 er ekki v\u00edst hversu lengi \u00feurrkurinn varir. \u00c9g tek upp lj\u00e1inn og sn\u00fd m\u00e9r aftur a\u00f0 sl\u00e6tti.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g opna augun. S\u00f3ley situr \u00ed st\u00f3lnum vi\u00f0 hli\u00f0 m\u00e9r. H\u00fan er ekki litla st\u00falkan sem h\u00fan \u00e1\u00f0ur var heldur fullor\u00f0in kona. Ungur ma\u00f0ur stendur vi\u00f0 hli\u00f0 hennar. Hann minnir mig \u00e1 sj\u00e1lfan mig \u00feegar \u00e9g var \u00e1 hans aldri. Hann minnir mig \u00e1 S\u00f3leyju \u00feegar h\u00fan var \u00e1 hans aldri. \u00deetta hl\u00fdtur a\u00f0 vera sonur hennar, hann Emil.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er kominn t\u00edmi til a\u00f0 halda \u00e1 braut,\u201c segi \u00e9g. \u201e\u00dea\u00f0 er kominn t\u00edmi fyrir mig a\u00f0 halda aftur \u00ed sveitina.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deau brosa b\u00e6\u00f0i til m\u00edn og S\u00f3ley g\u00e6lir vi\u00f0 gamla, \u00e6\u00f0abera h\u00f6nd m\u00edna. \u00c9g brosi til baka og loka augunum. \u00c9g finn kyrr\u00f0ina f\u00e6rast yfir mig. \u00c9g er \u00e1 lei\u00f0inni til baka\u2014aftur \u00ed heimahagann.<\/p>\n\n\n\n<aside class=\"wp-block-group book-ad has-text-color has-background\" style=\"color:#000000;background-color:#257ea9\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-media-text is-stacked-on-mobile\" style=\"grid-template-columns:33% auto\"><figure class=\"wp-block-media-text__media\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"778\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=778%2C1024&#038;ssl=1\" alt=\"Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga \u2014 K\u00e1puh\u00f6nnun Ana Pi\u00f1eyro\" class=\"wp-image-1578 size-full\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=778%2C1024&amp;ssl=1 778w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=228%2C300&amp;ssl=1 228w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=768%2C1011&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=900%2C1185&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=500%2C658&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 778px) 100vw, 778px\" \/><\/figure><div class=\"wp-block-media-text__content\">\n<h4 class=\"wp-block-heading\">Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga<\/h4>\n\n\n\n<p>\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga <\/em>f\u00e6st sem kilja hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.co.uk\/dp\/9935946606\/\">Amazon<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.barnesandnoble.com\/w\/tala-u-vi-kunnuga-b-rkur-sigurbj-rnsson\/1133064553\">Barnes and Noble<\/a>. Rafb\u00e6kur f\u00e1st hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.com\/dp\/B07WQP3JVS\">Kindle Store<\/a>, <a href=\"https:\/\/books.apple.com\/us\/book\/tala%C3%B0u-vi%C3%B0-%C3%B3kunnuga\/id1476987961\">Apple Books<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.kobo.com\/gb\/en\/ebook\/talau-vi-okunnuga\">Kobo<\/a>, og <a href=\"https:\/\/www.storytel.com\/is\/is\/books\/tala%C3%B0u-vi%C3%B0-%C3%B3kunnuga-2028498\">Storytel<\/a>.<\/p>\n\n\n\n<p>Ennig m\u00e1 styrkja h\u00f6fundinn \u00ed gegnum <a href=\"https:\/\/patreon.com\/UrbanVolcano\">Patreon<\/a> og <a href=\"https:\/\/buymeacoffee.com\/borkur\">Buy Me a Coffee<\/a> e\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa b\u00f3kinni einkunn \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.goodreads.com\/book\/show\/47872659-tala-u-vi-kunnuga\">Goodreads<\/a>.<\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-buttons is-horizontal is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-buttons-is-layout-499968f5 wp-block-buttons-is-layout-flex\">\n<div class=\"wp-block-button has-custom-width wp-block-button__width-50\"><a class=\"wp-block-button__link has-text-color has-background wp-element-button\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/taladu-vid-okunnuga\/\" style=\"border-radius:50px;color:#ffffff;background-color:#000000\">n\u00e1nari uppl\u00fdsingar<\/a><\/div>\n<\/div>\n<\/div><\/aside>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. Emil heims\u00e6kir afa sinn sem er \u00e1 fer\u00f0alagi um t\u00edmann og r\u00fami\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":1665,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":true,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[59,71],"class_list":["post-1664","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-minningar","tag-veikindi-og-heilsa","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/aftur-i-heimahagann.png?fit=1025%2C1025&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1664","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1664"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1664\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2430,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1664\/revisions\/2430"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1665"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1664"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1664"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1664"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}