{"id":1696,"date":"2022-07-27T09:08:51","date_gmt":"2022-07-27T09:08:51","guid":{"rendered":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/?p=1696"},"modified":"2025-03-21T17:54:00","modified_gmt":"2025-03-21T17:54:00","slug":"okunnugir-kunningjar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/okunnugir-kunningjar\/","title":{"rendered":"\u00d3kunnugir kunningjar"},"content":{"rendered":"\n<aside class=\"other-formats\">A\u00f0rar \u00fatg\u00e1fur: <a title=\"\u00d3kunnugir kunningjar (PDF)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/ebooks\/is\/pdf\/okunnuglegir-kunningjar.pdf\">PDF<\/a> | <a title=\"Familiar Strangers (english)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/en\/familiar-strangers\/\">english<\/a><\/aside>\n\n\n<div class=\"wp-block-image is-resized\">\n<figure class=\"alignright size-medium\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?resize=300%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"\u00d3kunnugir kunningjar \u2014 Myndskreyting B\u00f6rkur Sigurbj\u00f6rnsson\" class=\"wp-image-1697\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?resize=300%2C300&amp;ssl=1 300w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?resize=150%2C150&amp;ssl=1 150w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?resize=768%2C768&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?resize=900%2C900&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?resize=500%2C500&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?w=1025&amp;ssl=1 1025w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndskreyting B\u00f6rkur Sigurbj\u00f6rnsson<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>Indri\u00f0i gekk vi\u00f0 hli\u00f0 eiginkonu sinnar um brei\u00f0ar dyrnar, inn \u00ed salinn \u00fear sem \u00e1rlegt j\u00f3labo\u00f0 fyrirt\u00e6kisins var \u00feegar \u00ed fullum gangi\u2014j\u00f3labo\u00f0 fyrirt\u00e6kisins hennar. Er h\u00fan gekk inn um hur\u00f0aropi\u00f0, r\u00e9tti Ellinor \u00far bakinu, lyfti h\u00f6kunni og h\u00e6g\u00f0i \u00e1 g\u00f6ngulaginu \u00fear sem h\u00fan skipti yfir \u00ed heilla\u00f0u-k\u00fannann g\u00edrinn. Indri\u00f0i fylgdi henni eftir \u00ed gegnum mannhafi\u00f0, \u00ed gegnum \u00f3endanlegt fl\u00f3\u00f0 af kve\u00f0jum og kurteisishjali&#8230; Hall\u00f3, hvernig hefur\u00f0u \u00fea\u00f0?&#8230; D\u00e1samlegt a\u00f0 sj\u00e1 \u00feig&#8230; \u00deetta er ma\u00f0urinn minn, Indri\u00f0i&#8230; Hvernig hafa b\u00f6rnin \u00fea\u00f0?&#8230; \u00de\u00fa manst eftir manninum m\u00ednum, Indri\u00f0a? K\u00fannarnir h\u00f6f\u00f0u t\u00e6plega n\u00e6gan t\u00edma til a\u00f0 l\u00edta \u00ed \u00e1ttina til hans og kinka kolli \u00ed vi\u00f0urkenningarskyni \u00e1\u00f0ur en Ellinor st\u00fdr\u00f0i samtalinu fr\u00e1 fj\u00f6lskylduv\u00e6nu kurteisishjali yfir \u00ed vi\u00f0skipti&#8230; \u00e9g s\u00e1 a\u00f0 s\u00ed\u00f0asti \u00e1rsfj\u00f3r\u00f0ungur var g\u00f3\u00f0ur&#8230; \u00c9g held \u00fea\u00f0 ver\u00f0i fleiri t\u00e6kif\u00e6ri fyrir samruna \u00feegar l\u00ed\u00f0ur fram \u00e1 n\u00e6sta sumar. Indri\u00f0a var alveg sama \u00fe\u00f3tt hann fengi litla athygli. Hann kunni sitt hlutverk. \u00deetta var ekki hans kv\u00f6ld. Hann var ekki mannger\u00f0in sem \u00e1 s\u00e9r s\u00edn eigin kv\u00f6ld. Hann var a\u00f0 \u00f6llu j\u00f6fnu \u00ed aukahlutverki, hluti af umhverfinu, hluti af mannfj\u00f6ldanum. Kv\u00f6ldi\u00f0 var Ellinor, og \u00fea\u00f0 st\u00f3\u00f0 svart \u00e1 hv\u00edtu \u00ed \u00f3skrifu\u00f0um hj\u00faskapars\u00e1ttm\u00e1lanum milli manns og konu a\u00f0 \u00feau styddu hvort anna\u00f0. Og \u00feau ger\u00f0u \u00fea\u00f0. Hvort \u00e1 sinn m\u00e1ta.<\/p>\n\n\n\n<p>Indri\u00f0i fylgdi Ellinor eftir um stund, uns hann var\u00f0 lei\u00f0ur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera eins og g\u00e6lud\u00fdr \u00ed bandi, n\u00e6ldi s\u00e9r \u00ed rau\u00f0v\u00ednsglas af bakka sveimandi \u00fej\u00f3ns og l\u00e9t sig flj\u00f3ta um mannhaf\u00f0i, \u00fat a\u00f0 vegg, \u00fear sem hann gat virt fyrir s\u00e9r fj\u00f6ldann, athuga\u00f0 hvort hann k\u00e6mi auga \u00e1 einhvern sem hann \u00feekkti, einhvern sem hann kanna\u00f0ist vi\u00f0, einhvern sem hann g\u00e6ti gengi\u00f0 upp a\u00f0 og hafi\u00f0 samr\u00e6\u00f0ur vi\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00fe\u00f3 ekki svo a\u00f0 hann \u00fearfna\u00f0ist einhvers til a\u00f0 tala vi\u00f0. Hann st\u00e6\u00f0i s\u00e6ll \u00ed \u00fatja\u00f0ri vettvangsins, vir\u00f0andi fyrir s\u00e9r f\u00f3lk, andlit \u00feess, l\u00edkamstj\u00e1ningu, samskiptin \u00e1 milli \u00feess. Hann v\u00e6ri \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 a\u00f0 fylgjast me\u00f0 f\u00e9lagslegri virkni salarins, eins og hann v\u00e6ri a\u00f0 horfa \u00e1 b\u00ed\u00f3mynd. Hins vegar lei\u00f0 honum \u00f3\u00fe\u00e6gilega \u00ed \u00feeirri st\u00f6\u00f0u. Ekki af \u00fev\u00ed hann \u00e6tti almennt erfitt me\u00f0 a\u00f0 vera \u00ed hlutverki \u00feess sem fylgist me\u00f0, heldur vegna \u00feess a\u00f0 f\u00f3lki finnst almennt \u00f3\u00fe\u00e6gilegt \u00feegar l\u00edfvera af \u00feeirra eigin tegund fylgist me\u00f0 \u00fev\u00ed. \u00deeim er sama um \u00f6ryggismyndav\u00e9larnar, vafrak\u00f6kurnar og sta\u00f0setningart\u00e6knina \u00ed fars\u00edmum\u2014e\u00f0a svo haf\u00f0i hann lesi\u00f0 \u00ed t\u00edmariti \u00e1 Netinu. F\u00f3lki finnst \u00f3\u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 vera undir eftirliti holds og bl\u00f3\u00f0s. \u00deeir sem gerast sekir um sl\u00edkt ath\u00e6fi eru taldir skr\u00fdtnir, l\u00e1gk\u00farulegir, annarlegir. Indri\u00f0i vildi ekki teljast fur\u00f0ufugl\u2014ekki \u00ed veislunni hennar Ellinor.<\/p>\n\n\n\n<p>Gestirnir virtust vera nokkurn veginn \u00feeir s\u00f6mu \u00e1r eftir \u00e1r. Indri\u00f0i kanna\u00f0ist vi\u00f0 eitt og eitt andlit en gat samt sem \u00e1\u00f0ur ekki komi\u00f0 auga \u00e1 nokkurn sem hann var n\u00e6gilega m\u00e1lkunnugur til \u00feess a\u00f0 hefja samr\u00e6\u00f0ur vi\u00f0, ekki a\u00f0 fyrra brag\u00f0i. \u00dea\u00f0 var talsvert um f\u00f3lk sem leit \u00fat fyrir a\u00f0 hafa \u00fe\u00f3nokkur pund \u00e1 milli handanna, f\u00f3lk \u00far vi\u00f0skiptal\u00edfinu, anna\u00f0hvort k\u00fannar e\u00f0a tilvonandi k\u00fannar l\u00f6gfr\u00e6\u00f0istofu Ellinor. \u00deetta var \u00fe\u00f3 ekki samkoma hinna ofurr\u00edku, enginn kom \u00ed \u00feyrlu, a\u00f0 minnsta kosti svo framarlega sem Indri\u00f0i vissi. \u00dea\u00f0 var einnig talsver\u00f0ur fj\u00f6ldi f\u00f3lks sem Indri\u00f0i leit \u00e1 sem almenning, vinir starfsf\u00f3lks l\u00f6gfr\u00e6\u00f0istofunnar, makar, makar vina starfsf\u00f3lks l\u00f6gfr\u00e6\u00f0istofunnar. Indri\u00f0i haf\u00f0i einu sinni hitt vin maka vinar maka eins eigandans. Umfram allt \u00fe\u00e1 var miki\u00f0 um Nor\u00f0menn.<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00e6ll, \u00e9g heiti James, sag\u00f0i ungur ma\u00f0ur sem haf\u00f0i lauma\u00f0 s\u00e9r upp a\u00f0 hli\u00f0 Indri\u00f0a \u00e1 me\u00f0an hann virti fyrir s\u00e9r mannhafi\u00f0. Indri\u00f0i, svara\u00f0i Indri\u00f0i. Norskur? J\u00e1. Veri\u00f0 lengi \u00ed Lund\u00fanum? Hversu langt var n\u00fa li\u00f0i\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00feau fluttu fr\u00e1 \u00d3sl\u00f3? Meira en \u00ferj\u00fa \u00e1r. \u00deetta var \u00feri\u00f0ja j\u00f3labo\u00f0 Indri\u00f0a \u00ed borginni. \u00dea\u00f0 voru \u00fe\u00e1 fj\u00f6gur \u00e1r s\u00ed\u00f0an Ellinor haf\u00f0i sagt Indri\u00f0i, elskan, komdu og sestu ni\u00f0ur, \u00e9g hef fr\u00e9ttir a\u00f0 f\u00e6ra. \u00dea\u00f0 voru \u00fe\u00e1 fj\u00f6gur \u00e1r s\u00ed\u00f0an Indri\u00f0i haf\u00f0i haldi\u00f0 a\u00f0 Ellinor v\u00e6ri vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 tilkynna honum a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri \u00f3l\u00e9tt. \u00dea\u00f0 var h\u00fan sem vildi ekki eignast b\u00f6rn. H\u00fan sag\u00f0i a\u00f0 b\u00f6rn p\u00f6ssu\u00f0u ekki vi\u00f0 \u00fe\u00e6r v\u00e6ntingar sem h\u00fan ger\u00f0i til starfsframans. Indri\u00f0i haf\u00f0i allaf veri\u00f0 opnari fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 st\u00e6kka fj\u00f6lskylduna, jafnvel \u00fe\u00f3tt hann hef\u00f0i ekki sterka sko\u00f0un \u00e1 m\u00e1linu. Hann var ekki ma\u00f0ur sterkra sko\u00f0ana, svona almennt. A\u00f0 minnsta kosti ekki var\u00f0andi hversdagslega hluti. Ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 barneignir v\u00e6ru hversdagslegur hlutur, \u00feannig laga\u00f0. \u00deegar allt kom til alls haf\u00f0i Ellinor ekki tilkynnt honum a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri \u00f3l\u00e9tt, \u00fear sem \u00feau s\u00e1tu fyrir fj\u00f3rum \u00e1rum \u00ed hr\u00edmhv\u00edtri stofunni \u00ed \u00d3sl\u00f3\u2014e\u00f0a var h\u00fan marmarahv\u00edt? H\u00fan haf\u00f0i sagt honum a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i fengi\u00f0 \u00f3tr\u00falega \u00e1hugavert tilbo\u00f0 um a\u00f0 koma \u00e1 f\u00f3t gl\u00e6n\u00fdju \u00fatib\u00fai l\u00f6gfr\u00e6\u00f0istofunnar \u00ed Lund\u00fanum. R\u00famlega \u00ferj\u00fa \u00e1r, svara\u00f0i Indri\u00f0i unga manninum, kom hinga\u00f0 me\u00f0 konunni minni, h\u00fan er me\u00f0eigandi \u00ed fyrirt\u00e6kinu. Ellinor? J\u00e1. \u00c9g vissi ekki a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri norsk, sag\u00f0i James og kinka\u00f0i kolli, eins og hann v\u00e6ri a\u00f0 hamra \u00feessum n\u00fdju uppl\u00fdsingum inn \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 s\u00e9r, \u00e9g byrja\u00f0i \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku, \u00e9g vinn fyrir stofuna, l\u00e6rlingur. James og Indri\u00f0i spj\u00f6llu\u00f0u um stund. \u00dea\u00f0 kom \u00e1 daginn a\u00f0 ungi ma\u00f0urinn var forvitinn og vildi vita margt um Noreg. Indri\u00f0i reyndi a\u00f0 svara eins r\u00e6kilega og hann gat, r\u00famlega fimm millj\u00f3nir, ol\u00eda, nei, en \u00e1 evr\u00f3pska efnahagssv\u00e6\u00f0inu, ostaskerinn, f\u00f3tbolti, sk\u00ed\u00f0i og skautar, Ole Gunnar Solskj\u00e6r, en \u00e9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 fyrir \u00feinn t\u00edma, Edvard Grieg og Edvard Munch, A-ha, einnig fyrir \u00feinn t\u00edma, nei, \u00e9g tr\u00fai ekki a\u00f0 j\u00f3lasveinninn b\u00fai \u00fear, e\u00f0a nokkurs sta\u00f0ar, ef \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 er fari\u00f0. \u00dea\u00f0 var gaman a\u00f0 hitta \u00feig, sag\u00f0i James a\u00f0 lokum eftir a\u00f0 hann virtist hafa fr\u00e6\u00f0st n\u00e6gilega miki\u00f0 um Noreg, \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 blanda ge\u00f0i vi\u00f0 gesti. \u00dea\u00f0 var s\u00f6mulei\u00f0is gaman a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00feig, svara\u00f0i Indri\u00f0i, og \u00feeir t\u00f3kust \u00ed hendur a\u00f0 skilna\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>Samtali\u00f0 haf\u00f0i vaki\u00f0 upp \u00feorsta hj\u00e1 Indri\u00f0a og hann gekk yfir a\u00f0 barnum og ba\u00f0 um anna\u00f0 glas af rau\u00f0v\u00edni. Og hvort ertu starfsma\u00f0ur e\u00f0a k\u00fanni? spur\u00f0i l\u00e1gvaxinn, eldri ma\u00f0ur \u00feegar Indri\u00f0i h\u00e9lt \u00ed \u00e1tt fr\u00e1 barnum me\u00f0 n\u00fdfyllt glasi\u00f0 \u00ed hendinni. Ma\u00f0urinn var kl\u00e6ddur \u00ed sv\u00f6rt, tein\u00f3tt jakkaf\u00f6t, hv\u00edta skyrtu og me\u00f0 b\u00farg\u00fand\u00ed-\u00feverslaufu. Indri\u00f0i gat s\u00e9r til um a\u00f0 ma\u00f0urinn v\u00e6ri skj\u00f3lst\u00e6\u00f0ingur Ellinor. Einn \u00feeirra sem h\u00fan gaf r\u00e1\u00f0 var\u00f0andi samruna og yfirt\u00f6kur, hlutafj\u00e1r\u00fatbo\u00f0, e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa h\u00e9t allt saman sem l\u00f6gfr\u00e6\u00f0istofan haf\u00f0i upp \u00e1 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a. Heimavi\u00f0 t\u00f6lu\u00f0u \u00feau ekki miki\u00f0 um vinnuna. \u00deess \u00ed sta\u00f0 t\u00f6lu\u00f0u \u00feau um t\u00f3nlist og kvikmyndir\u2014\u00feeirra sameiginlegu \u00e1hugam\u00e1l\u2014\u00e1hugam\u00e1lin sem h\u00f6f\u00f0u \u00e1 s\u00ednum t\u00edma veri\u00f0 undirsta\u00f0a sambands \u00feeirra, og \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00e1fram hlutverki l\u00edms. Indri\u00f0i kanna\u00f0ist ekki vi\u00f0 manninn. Hugsanlega var hann n\u00fdr k\u00fanni. Hvorugt, svara\u00f0i Indri\u00f0i, \u00e9g er eiginma\u00f0ur eins me\u00f0eigandans, Ellinor. \u00dea\u00f0 er yndislegt, sag\u00f0i ma\u00f0urinn eins og hann hef\u00f0i marga fj\u00f6runa sopi\u00f0 \u00ed \u00e1starm\u00e1lum, hj\u00f3nab\u00f6ndum e\u00f0a hvoru tveggja. Og vi\u00f0 hva\u00f0 starfar \u00fe\u00fa? spur\u00f0i ma\u00f0urinn. \u00c9g er m\u00e1lari. \u00dea\u00f0 er yndislegt, \u00ed hva\u00f0a st\u00edl? Sj\u00e1lfur safna \u00e9g mestmegnis sk\u00falpt\u00far. Hef \u00e9g s\u00e9\u00f0 verk \u00fe\u00edn einhvers sta\u00f0ar? Sag\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00e9g safna sk\u00falpt\u00far? J\u00e1, \u00fea\u00f0 ger\u00f0i \u00e9g, var \u00fea\u00f0 ekki? N\u00fat\u00edmask\u00falpt\u00far er ekki h\u00f6ggmyndalist li\u00f0inna t\u00edma, \u00fea\u00f0 skal \u00e9g segja \u00fe\u00e9r. N\u00fa til dags er einnig meira um innsetningar\u2014v\u00edde\u00f3innsetningar, hlj\u00f3\u00f0innsetningar, og \u00feess h\u00e1ttar. \u00c9g safna \u00fev\u00ed l\u00edka. \u00c9g keypti eitt verk \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku. V\u00edde\u00f3innsetning af brosandi konu. \u00dea\u00f0 kann a\u00f0 hlj\u00f3ma f\u00e1fengilegt og snobba\u00f0, en \u00f3sviki\u00f0 bros er bara svo yndislegt, sannarlega list a\u00f0 festa \u00fea\u00f0 \u00e1 filmu. \u00de\u00fa sag\u00f0ist vera m\u00e1lari, var \u00fea\u00f0 ekki? Hvert er \u00feitt s\u00e9rsvi\u00f0? \u00c9g er mikill \u00e1hugama\u00f0ur um impressj\u00f3nismann. \u00dea\u00f0 eru hins vegar f\u00e1ir sem m\u00e1la \u00feannig n\u00fa til dags. \u00cd s\u00ed\u00f0ustu viku heyr\u00f0i \u00e9g um f\u00f3lk sem telur sig f\u00e1st vi\u00f0 p\u00f3stsamt\u00edmalist. \u00dev\u00edl\u00edkt or\u00f0. Hvernig getum vi\u00f0 veri\u00f0 komin fram \u00far samt\u00edmalist? Er f\u00f3lk fari\u00f0 a\u00f0 m\u00e1la inn \u00ed framt\u00ed\u00f0ina? Er f\u00f3lk a\u00f0 selja kaupr\u00e9tt \u00e1 \u00f3m\u00e1lu\u00f0 m\u00e1lverk? Svona eins og gengur og gerist \u00e1 Wall Street?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 \u00feessum h\u00e1fleygu or\u00f0um lauk ma\u00f0urinn einr\u00e6\u00f0u sinni og Indri\u00f0i f\u00e9kk loksins t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 svara upprunalegu spurningunni. \u00c9g f\u00e6st a\u00f0 mestu leyti vi\u00f0 einlitan akr\u00edl \u00e1 steinsteypu, svara\u00f0i Indri\u00f0i. Yndislegt, afar frumlegt, sag\u00f0i ma\u00f0urinn, \u00e9g er ekki viss um \u00e9g hafi nokkru sinni s\u00e9\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrr. Hvernig skilgreinir \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0? N\u00fdnaumhyggju? Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 vera \u00ed sambandi til a\u00f0 fylgja \u00feessu samtali eftir. \u00c9g hef samband \u00ed gegnum Ellinor. N\u00fa ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 \u00fej\u00f3ta. \u00c1n \u00feess a\u00f0 segja meira skaust ma\u00f0urinn \u00fevert yfir salinn og t\u00f3k upp n\u00fdjar samr\u00e6\u00f0ur\u2014e\u00f0a a\u00f0ra einr\u00e6\u00f0u. Ellinor ba\u00f0 Indri\u00f0a alltaf um a\u00f0 segja a\u00f0 hann fengist vi\u00f0 <em>skreytingar<\/em>, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 segjast vera <em>m\u00e1lari<\/em> \u00feegar hann tala\u00f0i vi\u00f0 Englendinga. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 laga okkur a\u00f0 sta\u00f0bundnum m\u00e1lvenjum, sag\u00f0i h\u00fan. Indri\u00f0i haf\u00f0i ekki eins mikla a\u00f0l\u00f6gunarh\u00e6fni og Ellinor. Hann haf\u00f0i ekki fari\u00f0 \u00ed h\u00e1sk\u00f3la \u00ed Oxford. Hann kunni ekki vi\u00f0 a\u00f0 segjast f\u00e1st vi\u00f0 <em>skreytingar<\/em>\u2014jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri venjan h\u00e9r. Hann leit ekki \u00e1 sj\u00e1lfan sig sem skreytingarmann. Hann leit ekki \u00e1 handverk sitt sem skreytingu. Hann skreytti ekki veggi. Hann stillti ekki upp bl\u00f3mum og v\u00f6sum. Hans verk var einfaldlega a\u00f0 \u00feekja veggi me\u00f0 m\u00e1lningu. Hann var m\u00e1lari en ekki skreytingarma\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00e6lin\u00fa, gaman a\u00f0 sj\u00e1 \u00feig aftur, sag\u00f0i ma\u00f0ur \u00e1 norsku. Indri\u00f0i kanna\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 hann \u00ed j\u00f3labo\u00f0i s\u00ed\u00f0asta \u00e1rs. \u00de\u00fa vir\u00f0ist \u00ed \u00feungum \u00fe\u00f6nkum, komdu og spjalla\u00f0u vi\u00f0 okkur, h\u00e9lt ma\u00f0urinn \u00e1fram og bau\u00f0 Indri\u00f0a inn \u00ed h\u00f3p \u00feriggja manna sem komu allir kunnuglega fyrir sj\u00f3nir og voru eflaust \u00ed veislunni \u00ed fyrra. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 ver\u00f0a eins konar hef\u00f0 a\u00f0 hittast svona einu sinni \u00e1 \u00e1ri, h\u00e9lt ma\u00f0urinn fram. Indri\u00f0i j\u00e1ta\u00f0i \u00fev\u00ed kurteislega, \u00e1 me\u00f0an hann reyndi a\u00f0 muna hver ma\u00f0urinn var, og hver tenging hans var vi\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0istofuna. Var \u00feetta endursko\u00f0andinn, br\u00f3\u00f0ir skrifstofustj\u00f3rans? \u00dev\u00edl\u00edkur umfer\u00f0ar\u00feungi \u00ed dag, tilkynnti ma\u00f0urinn h\u00f3pnum, \u00fea\u00f0 t\u00f3k mig aldur og \u00e6vi a\u00f0 skutla b\u00f6rnunum \u00ed sk\u00f3lann \u00ed morgun. \u00deetta var \u00fe\u00e1 ekki endursko\u00f0andinn. Hann \u00e1tti engin b\u00f6rn \u00e1 sk\u00f3laaldri, \u00fea\u00f0 mundi Indri\u00f0i fr\u00e1 samtali \u00feeirra fr\u00e1 \u00e1rinu \u00e1\u00f0ur. Hann \u00e1tti uppkominn son sem nam verkfr\u00e6\u00f0i \u00ed h\u00e1sk\u00f3la. \u00deegar \u00feeir hittust \u00ed fyrra var sonurinn vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 leggja af sta\u00f0 \u00ed fer\u00f0alag um l\u00f6ndin vi\u00f0 Persafl\u00f3ann til \u00feess a\u00f0 berja augum st\u00f3rframkv\u00e6mdir sem voru \u00ed gangi \u00ed \u00fev\u00ed heimshorni. Hann var v\u00edst heilla\u00f0ur af st\u00f3rum verkfr\u00e6\u00f0iundrum. Hann haf\u00f0i alltaf veri\u00f0 heilla\u00f0ur af framkv\u00e6mdum. Allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann var ungur drengur haf\u00f0i endursko\u00f0andinn fari\u00f0 me\u00f0 hann \u00ed sko\u00f0unarfer\u00f0ir um byggingarsv\u00e6\u00f0i. \u00cd seinni t\u00ed\u00f0 var \u00f6ldin \u00f6nnur og sonurinn f\u00f3r me\u00f0 f\u00f6\u00f0urinn \u00e1 \u00feau sv\u00e6\u00f0i \u00fear sem mest spennandi n\u00fdbyggingar var a\u00f0 finna. \u00deeir voru n\u00e1nir, fa\u00f0ir og sonur, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00feeir byggju ekki lengur saman. Sonurinn bj\u00f3 hj\u00e1 fyrrverandi eiginkonu endursko\u00f0andans. Endursko\u00f0andinn bj\u00f3 hins vegar me\u00f0 n\u00faverandi eiginmanni s\u00ednum. E\u00f0a \u00feannig haf\u00f0i \u00feessu alla vega veri\u00f0 fari\u00f0 \u00ed fyrra \u00feegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u tala\u00f0 saman. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 \u00e1n\u00e6gjulegt samtal. Indri\u00f0i hugsa\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 gaman a\u00f0 hitta endursko\u00f0andann aftur \u00feetta \u00e1ri\u00f0. Hann var miklu skemmtilegri \u00ed vi\u00f0r\u00e6\u00f0u en \u00feriggja manna h\u00f3purinn sem Indri\u00f0i st\u00f3\u00f0 frammi fyrir \u00feessa stundina, \u00e1n \u00feess a\u00f0 heillast af umr\u00e6\u00f0unni.<\/p>\n\n\n\n<p>Indri\u00f0i t\u00f3k g\u00falsopa af rau\u00f0v\u00edni til \u00feess a\u00f0 n\u00e6la s\u00e9r \u00ed afs\u00f6kun til \u00feess a\u00f0 yfirgefa h\u00f3pinn. Honum fannst \u00f3\u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 tala vi\u00f0 f\u00f3lk sem var kunnuglegt en samt \u00f3kunnugt. \u00dea\u00f0 voru of margir \u00f3vissu\u00fe\u00e6ttir \u00ed samtalinu og hann kunni ekki vi\u00f0 a\u00f0 spyrja spurninga til \u00feess a\u00f0 fylla \u00ed ey\u00f0urnar. \u00dea\u00f0 myndi a\u00f0eins afhj\u00fapa \u00f3\u00fe\u00e6gilegan sannleikann, a\u00f0 hann hef\u00f0i gleymt hvert f\u00f3lki\u00f0 var. \u00dea\u00f0 g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 vandr\u00e6\u00f0alegt ef f\u00f3lki\u00f0 myndi hver hann var. \u00dea\u00f0 g\u00e6ti liti\u00f0 illa \u00fat fyrir Ellinor. \u00d3kunnugir kunningjar voru \u00fea\u00f0 versta. \u00dea\u00f0 var miklu betra a\u00f0 tala anna\u00f0hvort vi\u00f0 f\u00f3lk sem hann \u00feekkti virkilega e\u00f0a f\u00f3lk sem hann \u00feekkti alls ekki neitt. Indri\u00f0i lyfti t\u00f3mu glasinu til h\u00f3psins. T\u00edmi til a\u00f0 fylla \u00e1 a\u00f0 n\u00fdju, sag\u00f0i hann, og h\u00e9lt \u00ed \u00e1tt a\u00f0 barnum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 me\u00f0an hann bei\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0 eftir afgrei\u00f0slu, leit Indri\u00f0i yfir salinn og s\u00e1 Ellinor \u00ed l\u00edflegum samr\u00e6\u00f0um vi\u00f0 k\u00fanna. Eitt augnablik m\u00e6ttust augu \u00feeirra. Hann brosti og kinka\u00f0i kolli. H\u00fan brosti og kinka\u00f0i kolli. \u00deetta var bara andartak \u00e1\u00f0ur en h\u00fan sneri s\u00e9r aftur a\u00f0 samr\u00e6\u00f0unum. H\u00fan virtist s\u00e1tt. \u00dea\u00f0 leit \u00fat fyrir a\u00f0 j\u00f3labo\u00f0i\u00f0 st\u00e6\u00f0i undir v\u00e6ntingum. Indri\u00f0i var gla\u00f0ur fyrir hennar h\u00f6nd.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 fylla \u00e1 glasi\u00f0, skildi Indri\u00f0i \u00fea\u00f0 eftir \u00e1 barbor\u00f0inu, gekk \u00fat \u00e1 ganginn, n\u00e1\u00f0i \u00ed frakkann sinn \u00far fatahenginu og gekk \u00fat \u00ed kalt desemberkv\u00f6ldi\u00f0. \u00dea\u00f0 var djasskl\u00fabbur handan vi\u00f0 horni\u00f0. \u00dea\u00f0 var sta\u00f0ur \u00fear sem Indri\u00f0i kunni betur vi\u00f0 sig. \u00dear yr\u00f0u engir \u00f3kunnugir kunningjar.<\/p>\n\n\n\n<aside class=\"wp-block-group book-ad has-text-color has-background\" style=\"color:#000000;background-color:#257ea9\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-media-text is-stacked-on-mobile\" style=\"grid-template-columns:33% auto\"><figure class=\"wp-block-media-text__media\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"778\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=778%2C1024&#038;ssl=1\" alt=\"Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga \u2014 K\u00e1puh\u00f6nnun Ana Pi\u00f1eyro\" class=\"wp-image-1578 size-full\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=778%2C1024&amp;ssl=1 778w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=228%2C300&amp;ssl=1 228w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=768%2C1011&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=900%2C1185&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?resize=500%2C658&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2019\/03\/Taladu_vid_okunnuga.jpg?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 778px) 100vw, 778px\" \/><\/figure><div class=\"wp-block-media-text__content\">\n<h4 class=\"wp-block-heading\">Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga<\/h4>\n\n\n\n<p>\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Tala\u00f0u vi\u00f0 \u00f3kunnuga <\/em>f\u00e6st sem kilja hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.co.uk\/dp\/9935946606\/\">Amazon<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.barnesandnoble.com\/w\/tala-u-vi-kunnuga-b-rkur-sigurbj-rnsson\/1133064553\">Barnes and Noble<\/a>. Rafb\u00e6kur f\u00e1st hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.com\/dp\/B07WQP3JVS\">Kindle Store<\/a>, <a href=\"https:\/\/books.apple.com\/us\/book\/tala%C3%B0u-vi%C3%B0-%C3%B3kunnuga\/id1476987961\">Apple Books<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.kobo.com\/gb\/en\/ebook\/talau-vi-okunnuga\">Kobo<\/a>, og <a href=\"https:\/\/www.storytel.com\/is\/is\/books\/tala%C3%B0u-vi%C3%B0-%C3%B3kunnuga-2028498\">Storytel<\/a>.<\/p>\n\n\n\n<p>Ennig m\u00e1 styrkja h\u00f6fundinn \u00ed gegnum <a href=\"https:\/\/patreon.com\/UrbanVolcano\">Patreon<\/a> og <a href=\"https:\/\/buymeacoffee.com\/borkur\">Buy Me a Coffee<\/a> e\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa b\u00f3kinni einkunn \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.goodreads.com\/book\/show\/47872659-tala-u-vi-kunnuga\">Goodreads<\/a>.<\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-buttons is-horizontal is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-buttons-is-layout-499968f5 wp-block-buttons-is-layout-flex\">\n<div class=\"wp-block-button has-custom-width wp-block-button__width-50\"><a class=\"wp-block-button__link has-text-color has-background wp-element-button\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/taladu-vid-okunnuga\/\" style=\"border-radius:50px;color:#ffffff;background-color:#000000\">n\u00e1nari uppl\u00fdsingar<\/a><\/div>\n<\/div>\n<\/div><\/aside>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. Indri\u00f0i blandar ge\u00f0i vi\u00f0 \u00f3kunnuga kunningja \u00ed j\u00f3abo\u00f0i fyrirt\u00e6kis eiginkonunnar.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":1697,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":true,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[62,70],"class_list":["post-1696","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-list","tag-serkennilegar-sogupersonur","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/okunnuglegir-kunningjar.png?fit=1025%2C1025&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1696","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1696"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1696\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2431,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1696\/revisions\/2431"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1697"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1696"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1696"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1696"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}