{"id":17,"date":"2010-10-27T23:06:48","date_gmt":"2010-10-27T23:06:48","guid":{"rendered":"http:\/\/smafuglar.net\/2010\/10\/vakandi-i-draumi\/"},"modified":"2023-12-02T21:19:42","modified_gmt":"2023-12-02T21:19:42","slug":"vakandi-i-draumi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/vakandi-i-draumi\/","title":{"rendered":"Vakandi \u00ed draumi"},"content":{"rendered":"<p>Pierre bylti s\u00e9r \u00ed r\u00faminu. Hann gat ekki sofi\u00f0. Hann var of stressa\u00f0ur. Hann haf\u00f0i unni\u00f0 of miki\u00f0 undanfari\u00f0. Hann \u00e1tti alltaf \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 svefn \u00feegar miki\u00f0 var a\u00f0 gera \u00ed vinnunni.<\/p>\n<p>Natasha bylti s\u00e9r \u00ed r\u00faminu. H\u00fan svaf. H\u00fan haf\u00f0i unni\u00f0 miki\u00f0 undanfari\u00f0. H\u00fan \u00e1tti alltaf au\u00f0velt me\u00f0 svefn \u00feegar miki\u00f0 var a\u00f0 gera \u00ed vinnunni. H\u00fan svaf miki\u00f0 en haf\u00f0i undarlegar draumfarir.<\/p>\n<p>Pierre gafst upp \u00e1 a\u00f0 reyna a\u00f0 sofna. Hann f\u00f3r fram \u00far r\u00faminu og kl\u00e6ddi sig. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i ekkert upp \u00e1 sig a\u00f0 liggja uppi \u00ed r\u00fami \u00fear sem a\u00f0 \u00fea\u00f0 var lj\u00f3st a\u00f0 hann myndi ekki geta sofi\u00f0 n\u00e6stu klukkut\u00edmana. Hann \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r g\u00f6ngut\u00far.<\/p>\n<p>Natasha var st\u00f6dd \u00ed st\u00f3ru bj\u00f6rtu herbergi \u00ed gamla heimalandi s\u00ednu. H\u00fan var \u00f6nnum kafin vi\u00f0 a\u00f0 strauja skyrtur fyrir tzarinn. Gular, appels\u00ednugular og fj\u00f3lubl\u00e1ar Hawaii skyrtur me\u00f0 p\u00e1lmatrj\u00e1m og s\u00f3larstr\u00f6ndum. Tzarinn var \u00e1 lei\u00f0inni \u00e1 brimbrettam\u00f3t. \u00deetta var greinilega einn af \u00feessum undarlegu draumum. Skyrturnar voru sl\u00e9ttar. H\u00fan gat ekki sagt draumfarir s\u00ednar jafn sl\u00e9ttar.<\/p>\n<p>Pierre loka\u00f0i dyrunum varlega a\u00f0 baki s\u00e9r. Hann vildi ekki trufla n\u00e6turkyrr\u00f0ina. Hann gekk eftir hlj\u00f3\u00f0l\u00e1tri g\u00f6tunni, yfir torgi\u00f0 og ni\u00f0ur eftir Carrer de Torrijos. Hann naut n\u00e6turinnar. Hann naut kyrr\u00f0arinnar. Hann var ekki mikill n\u00e1tt\u00faruunnandi og f\u00f3r \u00fev\u00ed sjaldan \u00fat fyrir borgina \u00ed leit a\u00f0 kyrr\u00f0 og r\u00f3. \u00deegar hann vildi f\u00e1 hv\u00edld fr\u00e1 ys borgarinnar leita\u00f0i hann heldur \u00ed r\u00f3legri hluta borgarinnar &#8212; \u00ed t\u00edma e\u00f0a r\u00fami.<\/p>\n<p>Natasha haf\u00f0i loki\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 strauja skyrtur fyrir tzarinn. H\u00fan haf\u00f0i yfirgefi\u00f0 R\u00fasslandi\u00f0 sitt og var komin til baka til Barcelona. H\u00fan sat \u00e1 baki villigaltar og \u00feeystist um au\u00f0ar g\u00f6tur borgarinnar. H\u00fan r\u00edgh\u00e9lt s\u00e9r \u00ed h\u00e1ls\u00f3l galtarins til \u00feess a\u00f0 for\u00f0ast \u00fea\u00f0 a\u00f0 detta af baki. \u00deau f\u00f3ru hratt yfir &#8212; h\u00fan og g\u00f6lturinn. \u00deau geystust eftir Travesera de Gr\u00e0cia, framhj\u00e1 marka\u00f0num og beyg\u00f0u s\u00ed\u00f0an til vinstri upp Carrer de Torrijos.<\/p>\n<p>Pierre var\u00f0 bylt vi\u00f0 \u00feegar heyr\u00f0i skarkala ne\u00f0ar \u00ed g\u00f6tunni. Af hlj\u00f3\u00f0inu af d\u00e6ma var eins og k\u00faahj\u00f6r\u00f0 v\u00e6ri \u00e1 fer\u00f0. Hann p\u00edr\u00f0i augun. K\u00faahj\u00f6r\u00f0ina s\u00e1 hann enga. Honum virtist um vera a\u00f0 r\u00e6\u00f0a knapa sem hentist um \u00e1 baki einhvers konar d\u00fdrs. Hann f\u00e6r\u00f0i sig \u00far vegi d\u00fdrsins og faldi sig \u00ed sk\u00famaskoti.<\/p>\n<p>Natasha og villig\u00f6lturinn geystust \u00e1fram upp Carrer de Torrijos. H\u00fan \u00e1tti \u00ed mestu erfi\u00f0leikum me\u00f0 a\u00f0 halda s\u00e9r \u00e1 baki. \u00deau f\u00f3ru of hratt yfir. Allt \u00ed einu var\u00f0 h\u00fan var vi\u00f0 hreyfinugu \u00fat undan s\u00e9r. \u00dea\u00f0 var mannvera sem faldi sig \u00ed sk\u00famaskoti vi\u00f0 einn stigaganginn. Var \u00feetta Pierre? H\u00fan mundi ekki til \u00feess a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 hann \u00e1\u00f0ur \u00ed draumum s\u00ednum. Henni datt \u00ed hug a\u00f0 vinka til hans en \u00feor\u00f0i ekki a\u00f0 taka h\u00f6nd af h\u00e1ls\u00f3l villigaltarins. H\u00fan var hr\u00e6dd um a\u00f0 detta af baki. \u00dea\u00f0 var hvort sem er of seint n\u00fana. H\u00fan var komin langt framhj\u00e1 Pierre. H\u00fan var \u00e1 sundi me\u00f0al marglita\u00f0ra fiska \u00ed Kyrrahafinu.<\/p>\n<p>Pierre tr\u00fa\u00f0i varla s\u00ednum eigin augum. Haf\u00f0i hann s\u00e9\u00f0 ofsj\u00f3nir? Haf\u00f0i \u00fea\u00f0 veri\u00f0 Natasha sem geystist upp g\u00f6tuna \u00e1 baki villigaltarins? Var hann a\u00f0 dreyma? Hann kleip sig \u00ed handlegginn. Hann fann til. Hann var vakandi. Hann var vakandi en \u00fea\u00f0 s\u00f3tti \u00e1 hann \u00fereyta. Hann \u00e1kva\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sn\u00faa til baka heim. \u00deegar heim var komi\u00f0 f\u00f3r hann beinustu lei\u00f0 \u00ed b\u00f3li\u00f0 og steinsofna\u00f0i.<\/p>\n<p>Natasha synti me\u00f0al marglitu\u00f0u fiskanna \u00ed Kyrrahafinu. Sumir fiskanna voru gulir. Sumir voru appels\u00ednugulir. Sumir voru fj\u00f3lubl\u00e1ir. \u00deeir minntu hana \u00e1 skyrtur tzarsins sem h\u00fan haf\u00f0i strauja\u00f0 fyrr \u00ed drauminum. H\u00fan virti fiskana betur fyrir s\u00e9r. \u00deeir b\u00e1ru allir h\u00f6fu\u00f0 tzarsins.<\/p>\n<p>Pierre vakna\u00f0i af v\u00e6rum blundi. Hann undra\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vegna hann var kappkl\u00e6ddur. Sm\u00e1m saman rifju\u00f0ust upp fyrir honum atbur\u00f0ir n\u00e6turinnar. Hann minntist andv\u00f6kunnar. Hann minntist g\u00f6ngut\u00farsins. Hann minntist \u00feess a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 Nat\u00f6shu geysast um \u00e1 villigelti. Hann var ringla\u00f0ur.<\/p>\n<p>Natasha vankna\u00f0i af v\u00e6rum blundi. Hv\u00edl\u00edkur draumur. H\u00fan minntist \u00feess a\u00f0 hafa strauja\u00f0 skyrtur fyrir tzarinn. H\u00fan minntist \u00feess a\u00f0 hafa fari\u00f0 geyst \u00e1 gelti. H\u00fan minntist \u00feess a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 Pierre fela sig \u00ed sk\u00famaskoti. H\u00fan minntist fiskanna \u00ed Kyrrahafinu. Allt var svo \u00f3raunverulegt. Nema Pierre. Hann var raunverulegur.<\/p>\n<p>Pierre valdi n\u00famer Nat\u00f6shu. Hann hringdi. H\u00fan svara\u00f0i.<\/p>\n<p>,,Hvert er m\u00e1li\u00f0 me\u00f0 g\u00f6ltinn?&#39;&#39; spur\u00f0i Pierre.<\/p>\n<p>,,Ha, j\u00e1, \u00feetta me\u00f0 g\u00f6ltinn,&#39;&#39; svara\u00f0i Natasha vandr\u00e6\u00f0alega. ,,\u00dea\u00f0 var n\u00fa eiginlega bara svona draumur, sko.&#39;&#39;<\/p>\n<p>,,J\u00e1 en \u00e9g kleip mig \u00ed handlegginn,&#39;&#39; sag\u00f0i Pierre og virtist ringla\u00f0ur. ,,\u00dea\u00f0 var s\u00e1rt. \u00c9g var vakandi.&#39;&#39;<\/p>\n<p>,,\u00c6, \u00fe\u00fa \u00fearna vitleysingurinn \u00feinn,&#39;&#39; sag\u00f0i Natasha og hl\u00f3 l\u00e1gt. ,,Au\u00f0vita\u00f0 var \u00fea\u00f0 s\u00e1rt. Au\u00f0vita\u00f0 varstu vakandi. \u00deetta var minn draumur. Ekki \u00feinn.&#39;&#39;<\/p>\n<p>,,Ha, n\u00fa, \u00feannig,&#39;&#39; sag\u00f0i Pierre og virtist enn ringla\u00f0ur. ,,\u00dea\u00f0 sk\u00fdrir \u00fdmislegt. E\u00f0a svolei\u00f0is.&#39;&#39;<\/p>\n<p>,,Til \u00ed kaffi?&#39;&#39; spur\u00f0i Natasha.<\/p>\n<p>,,Endilega,&#39;&#39; svara\u00f0i Pierre \u00fev\u00ed honum fannst hann \u00feurfa \u00e1 kaffisopa a\u00f0 halda.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. Pierre \u00e1kve\u00f0ur a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r g\u00f6ngut\u00far um Gr\u00e0cia hverfi Barsel\u00f3nu \u00fear sem hann getur ekki sofi\u00f0 en fyrir mist\u00f6k gengur hann beint inn \u00ed draum Nat\u00f6shu.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":502,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":false,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[5,45,64],"class_list":["post-17","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-andvokunaetur","tag-draumar","tag-gotulif","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/10\/5866278492_4a3e495261_b-e1420914192129.jpg?fit=683%2C683&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/17","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=17"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/17\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1959,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/17\/revisions\/1959"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/502"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=17"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=17"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=17"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}