{"id":19,"date":"2010-05-23T21:03:58","date_gmt":"2010-05-23T21:03:58","guid":{"rendered":"http:\/\/smafuglar.net\/2010\/05\/alfar-og-kongar\/"},"modified":"2025-04-19T18:16:02","modified_gmt":"2025-04-19T18:16:02","slug":"alfar-og-kongar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/alfar-og-kongar\/","title":{"rendered":"\u00c1lfar og k\u00f3ngar"},"content":{"rendered":"\n<aside class=\"other-formats\">A\u00f0rar \u00fatg\u00e1fur: <a title=\"\u00c1lfar og k\u00f3ngar (PDF)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/ebooks\/is\/pdf\/alfar-og-kongar.pdf\">PDF<\/a> | <a title=\"Of elves and kings (english)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/en\/elves-and-kings\/\">english<\/a> | <a title=\"Elfos y reyes (espa\u00f1ol)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/es\/elfos-y-reyes\/\">espa\u00f1ol<\/a><\/aside>\n\n\n<div class=\"wp-block-image is-resized\">\n<figure class=\"alignright size-medium\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/05\/elves.png?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/05\/elves.png?resize=300%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"\u00c1lfar og k\u00f3ngar \u2014 Myndskreyting Yana Volkovich\" class=\"wp-image-495\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/05\/elves.png?resize=300%2C300&amp;ssl=1 300w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/05\/elves.png?resize=150%2C150&amp;ssl=1 150w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/05\/elves.png?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndskreyting Yana Volkovich<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>\u00c9g settist \u00e1 bekk \u00ed mi\u00f0jum Vondelpark og strauk svitann af enninu. \u00de\u00f3 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri komi\u00f0 fram \u00ed september \u00fe\u00e1 var helst til heitt fyrir mig. \u00c9g haf\u00f0i b\u00fai\u00f0 alla m\u00edna t\u00ed\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi og var ekki vanur svona hita. \u00c9g haf\u00f0i fyrir r\u00famri viku flutt \u00far \u00edslenska sumrinu yfir \u00ed hollenska hausti\u00f0. Hausti\u00f0 var heldur heitara en sumari\u00f0. \u00c9g yr\u00f0i a\u00f0 venja mig vi\u00f0 \u00feennan hita ef \u00e9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 lifa af \u00feau tv\u00f6 \u00e1r sem \u00e9g ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 b\u00faa h\u00e9r \u00ed Amsterdam. Til skamms t\u00edma liti\u00f0 gat \u00e9g hugga\u00f0 mig vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 veturinn var \u00e1 n\u00e6stu gr\u00f6sum. Br\u00e1tt yr\u00f0i hitinn v\u00e6ntanlega b\u00e6rilegri.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sat me\u00f0 minnisb\u00f3k \u00ed kj\u00f6ltunni og penna \u00ed h\u00f6nd. \u00c6tlunin haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 skeyta saman nokkrum or\u00f0um \u00ed lj\u00f3\u00f0 um haust \u00ed Amsterdam. \u00c9g n\u00e1\u00f0i hins vegar ekki a\u00f0 einbeita m\u00e9r. Or\u00f0in vildu ekki detta inn \u00ed kollinn \u00e1 m\u00e9r. Or\u00f0in vildu ekki detta \u00fat \u00far kollinum \u00e1 m\u00e9r. Hver sem uppspretta or\u00f0anna var \u00fe\u00e1 var h\u00fan \u00feurr. Gat \u00fea\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri hitinn sem stoppa\u00f0i fl\u00e6\u00f0i or\u00f0anna? \u00deurrka\u00f0i hitinn uppsprettu or\u00f0anna? Var \u00fea\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an? Hver sem \u00e1st\u00e6\u00f0an var \u00fe\u00e1 var bla\u00f0i\u00f0 autt. \u00c9g var eitthva\u00f0 svo andlaus. \u00c9g horf\u00f0i yfir gar\u00f0inn \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 andinn k\u00e6mi yfir mig<\/p>\n\n\n\n<p>Gar\u00f0urinn var s\u00e9rstaklega st\u00f3r. \u00cdlangur me\u00f0 h\u00e1um trj\u00e1m, s\u00edkjum og tj\u00f6rnum. \u00devers og kruss um hann hlykkju\u00f0ust malarst\u00edgar. Inn \u00e1 milli voru st\u00f3rir grasbalar \u00fear sem f\u00f3lk spila\u00f0i boltaleik e\u00f0a l\u00e1 \u00ed s\u00f3lba\u00f0i. Margir hlauparar skokku\u00f0u fram og aftur um gar\u00f0inn &#8212; a\u00f0 minnsta kosti fram. \u00dea\u00f0 var ekki gott a\u00f0 segja hva\u00f0 sneri fram og hva\u00f0 sneri aftur \u00ed \u00feessum gar\u00f0i. \u00dea\u00f0 sama gilti raunar almennt um borgina. \u00c9g \u00e1tti erfitt me\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 \u00e1ttum. Borgin var eitthva\u00f0 svo kringl\u00f3tt. A\u00f0 minnsta kosti h\u00e1lf-kringl\u00f3tt. A\u00f0als\u00edkin myndu\u00f0u h\u00e1lfhringi umhverfis mi\u00f0b\u00e6inn. \u00c9g \u00e1tti jafnan \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 \u00fev\u00ed hvar \u00e1 h\u00e1lfhringnum \u00e9g var staddur hverju sinni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHet is nog steeds vrij warm hoor!\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g leit \u00e1 k\u00f3fsveittan manninn sem haf\u00f0i sest \u00e1 bekkinn vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00e9r. \u00c9g ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 um heimamann v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Hann leit \u00fe\u00f3 ekki \u00fat fyrir a\u00f0 vera d\u00e6miger\u00f0ur Hollendingur &#8212; stuttur, \u00feybbinn og nau\u00f0ask\u00f6ll\u00f3ttur. Hann passa\u00f0i a\u00f0 minnsta kosti ekki vi\u00f0 sta\u00f0al\u00edmyndina af hinum langa og mj\u00f3a Hollendingi me\u00f0 lj\u00f3st og li\u00f0a\u00f0 h\u00e1r. Hann var a\u00f0 kasta m\u00e6\u00f0inni eftir skokk sitt um gar\u00f0inn. \u00c9g haf\u00f0i ekki skili\u00f0 or\u00f0 af \u00fev\u00ed sem hann haf\u00f0i sagt. Heitt eitthva\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00fea\u00f0 eina sem \u00e9g haf\u00f0i skili\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAfsaki\u00f0, \u00e9g skil ekkert \u00ed hollensku,\u201c svara\u00f0i \u00e9g \u00e1 ensku. \u201e\u00c9g er n\u00fdfluttur til borgarinnar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00d3! \u00c9g sag\u00f0i bara a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri enn\u00fe\u00e1 frekar heitt,\u201c endurt\u00f3k Hollendingurinn \u00e1 ensku.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, \u00fea\u00f0 er frekar heitt,\u201c samsinnti \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 s\u00e1tum og horf\u00f0um b\u00e1\u00f0ir tveir yfir gar\u00f0inn. Hann reyndi a\u00f0 n\u00e1 andanum en \u00e9g bei\u00f0 eftir a\u00f0 andinn k\u00e6mi yfir mig. Kannski \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 fylgja hans ford\u00e6mi. Reyna a\u00f0 n\u00e1 andanum \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 b\u00ed\u00f0a bara eftir a\u00f0 hann k\u00e6mi. \u00c9g haf\u00f0i n\u00fdlega lesi\u00f0 einhvers sta\u00f0ar a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri t\u00edmaey\u00f0sla a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir andanum. Hann k\u00e6mi sjaldan a\u00f0 fyrra brag\u00f0i. \u00dea\u00f0 eina sem gilti v\u00e6ri a\u00f0 byrja a\u00f0 skrifa og \u00fe\u00e1 myndi andinn renna \u00e1 lyktina. Hann hef\u00f0i nef fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feefa uppi blek. Hann k\u00e6mi eins og kalla\u00f0ur. \u00c9g munda\u00f0i \u00fev\u00ed pennann og ger\u00f0i mig l\u00edklegan til \u00feess a\u00f0 byrja a\u00f0 skrifa andann yfir mig.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0an ertu?\u201c spur\u00f0i Hollendingurinn hlaupandi \u00e1\u00f0ur en \u00e9g n\u00e1\u00f0i a\u00f0 koma or\u00f0i \u00e1 bla\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eFr\u00e1 \u00cdslandi,\u201c svara\u00f0i \u00e9g og setti loki\u00f0 aftur \u00e1 pennann.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 kom undrunarsvipur \u00e1 andlit Hollendingsins. \u00dea\u00f0 var eins og \u00fea\u00f0 t\u00e6ki hann svol\u00edtinn t\u00edma a\u00f0 melta svari\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eN\u00fa j\u00e1. \u00dea\u00f0 er ekkert anna\u00f0. \u00c9g man ekki eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa hitt \u00cdslending fyrr,\u201c sag\u00f0i Hollendingurinn og kinka\u00f0i kolli eins og hann v\u00e6ri enn a\u00f0 me\u00f0taka \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann hef\u00f0i komist \u00ed n\u00e1v\u00edgi vi\u00f0 eintak af \u00feeirri sjaldg\u00e6fu d\u00fdrategund sem kalla\u00f0ist \u00cdslendingar. \u201e\u00deekkir\u00f0u Bj\u00f6rk?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Spurningin kom m\u00e9r \u00ed opna skj\u00f6ldu. \u00c9g vissi au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 Bj\u00f6rk v\u00e6ri heimsfr\u00e6g en m\u00e9r fannst spurningin samt undarleg. Eins og ef \u00e9g myndi spyrja hvort hann \u00feekkti Gullit. Sj\u00e1lfur \u00feekkti \u00e9g enga Hollendinga og vissi enn sem var l\u00edti\u00f0 um landi\u00f0. M\u00e9r dytti samt ekki \u00ed hug a\u00f0 spyrja hvort hann \u00feekkti Gullit. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri asnaleg spurning.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei. E\u00f0a J\u00e1. E\u00f0a nei,\u201c svara\u00f0i \u00e9g vandr\u00e6\u00f0alega. \u201eEkki pers\u00f3nulega.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 \u00feekkti \u00e9g Bj\u00f6rk. Systir m\u00edn h\u00e9t Bj\u00f6rk. \u00c9g \u00feekkti samt ekki Bj\u00f6rk me\u00f0 st\u00f3ru b\u00e9i. Ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 systir m\u00edn v\u00e6ri bj\u00f6rk me\u00f0 litlu b\u00e9i. \u00c9g \u00feekkti bara ekki fr\u00e6gu Bj\u00f6rkina. S\u00f6ngkonuna. Ekki pers\u00f3nulega.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 \u00feekkja \u00fe\u00e1 ekki allir alla \u00e1 \u00cdslandi?\u201c spur\u00f0i Hollendingurinn og virtist hissa. \u00c9g gat ekki lesi\u00f0 \u00far svipnum hvort hann v\u00e6ri raunverulega hissa e\u00f0a hvort um einhvers konar kaldh\u00e6\u00f0nislegan h\u00famor v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei. \u00dea\u00f0 er or\u00f0um auki\u00f0,\u201c svara\u00f0i \u00e9g og var\u00f0 hugsa\u00f0 til allra \u00cdslendinganna sem \u00e9g \u00feekkti ekki. \u201e\u00dea\u00f0 er jafnvel ekki svo a\u00f0 flestir \u00feekki flesta.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eN\u00fa j\u00e6ja.\u201c sag\u00f0i Hollendingurinn og lyfti br\u00fanum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn allnokkrir \u00feekkja samt allnokkra,\u201c b\u00e6tti \u00e9g vi\u00f0 og setti upp spekingslegan svip.<\/p>\n\n\n\n<p>Hollendingurinn svara\u00f0i engu en kinka\u00f0i varf\u00e6rnislega kolli eins og hann bi\u00f0i eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g kl\u00e1ra\u00f0i svar mitt.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn \u00fea\u00f0 gildir kannski einnig h\u00e9r \u00ed Hollandi. Jafnvel heldur fleiri sem \u00feekki heldur fleiri.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g k\u00edmdi \u00fear sem m\u00e9r fannst \u00e9g hafa komist vel a\u00f0 or\u00f0i. \u00c9g hugsa\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 leggja brandarann \u00e1 minni\u00f0. \u00c9g g\u00e6ti nota\u00f0 hann s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei. \u00dea\u00f0 held \u00e9g ekki,\u201c svara\u00f0i Hollendingurinn alvarlegur \u00ed brag\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0. Hann h\u00e9lt ekki. Kannski fatta\u00f0i hann ekki brandarann. Kannski var brandarinn alls ekki fyndinn. \u00deetta var j\u00fa svo sem ekki beint brandari, heldur bara vel a\u00f0 or\u00f0i komist. \u00dea\u00f0 fannst m\u00e9r allavegana.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 \u00fe\u00f6g\u00f0um og horf\u00f0um \u00e1 f\u00f3lk sleikja hausts\u00f3lina \u00ed gar\u00f0inum. M\u00e9r lei\u00f0 h\u00e1lf vandr\u00e6\u00f0alega. M\u00e9r fannst eins og \u00fea\u00f0 l\u00e6gi \u00ed loftinu a\u00f0 samtalinu v\u00e6ri ekki loki\u00f0. M\u00e9r datt hins vegar ekkert \u00ed hug til \u00feess a\u00f0 segja. \u00c9g var a\u00f0eins sleginn \u00fat af laginu vegna misheppna\u00f0a brandarans. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feegja og sj\u00e1 til hvort Hollendingurinn h\u00e9ldi \u00e1fram. \u00c9g munda\u00f0i pennann \u00e1 n\u00fd og velti \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 v\u00e6ri d\u00f3naskapur a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r aftur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reyna a\u00f0 koma lj\u00f3\u00f0i \u00e1 bla\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn seg\u00f0u m\u00e9r anna\u00f0,\u201c sag\u00f0i Hollendingurinn og lj\u00f3ma\u00f0i eins og hann hef\u00f0i r\u00e9tt \u00ed \u00feessu n\u00e1\u00f0 a\u00f0 muna eitthva\u00f0 st\u00f3rfenglegt. \u201eEr \u00fea\u00f0 r\u00e9tt sem \u00e9g hef heyrt a\u00f0 \u00cdslendingar tr\u00fai \u00e1 \u00e1lfa?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var \u00fe\u00e1 \u00edmynd \u00cdslands \u00fat \u00e1 vi\u00f0 &#8212; Bj\u00f6rk og \u00e1lfar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1,\u201c svara\u00f0i \u00e9g hikandi.<\/p>\n\n\n\n<p>Var \u00fea\u00f0 annars ekki r\u00e9tt? E\u00f0a var \u00fea\u00f0 kannski bara ein af \u00feessum \u00fareltu sta\u00f0al\u00edmyndum? Var \u00edslenska \u00e1lfatr\u00fain ef til vill \u00e1 sama stalli og sta\u00f0al\u00edmynd hins h\u00e1vaxna lj\u00f3sh\u00e6r\u00f0a Hollendings? R\u00e9tt a\u00f0 vissu marki en ekki algild.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAllir?\u201c spur\u00f0i Hollendingurinn og virtist hissa.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei, kannski ekki allir,\u201c svara\u00f0i \u00e9g og minntist \u00feess ekki a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i um \u00fea\u00f0 hversu h\u00e1tt hlutfall \u00cdslendinga try\u00f0i \u00e1 \u00e1lfa og hulduf\u00f3lk. \u00dea\u00f0 var ekki eins og \u00e1lfatr\u00fain v\u00e6ri ofarlega \u00ed huga \u00edslenskra t\u00f6lfr\u00e6\u00f0inga. \u00dea\u00f0 var ekki eins og \u00fej\u00f3\u00f0arp\u00fals Gallup m\u00e6ldi m\u00e1na\u00f0arlega breytingu \u00e1 \u00e1lfatr\u00fa landans.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn \u00fe\u00fa?\u201c spur\u00f0i Hollendingurinn og glotti. \u201eTr\u00fair \u00fe\u00fa \u00e1 \u00e1lfa?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g hika\u00f0i. \u00c9g var ekki viss hverju \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 svara. \u00c9g haf\u00f0i aldrei sp\u00e1\u00f0 \u00ed \u00feetta af neinni alv\u00f6ru. \u00dea\u00f0 gilti sama um mig og t\u00f6lfr\u00e6\u00f0inga Gallup, m\u00e9r voru \u00e1lfar og hulduf\u00f3lk ekki ofarlega \u00ed huga. \u00c9g sp\u00e1\u00f0i frekar \u00ed veraldlegri hluti. \u00c9g haf\u00f0i b\u00fai\u00f0 tuttugu og fj\u00f6gur \u00e1r \u00e1 \u00cdslandi \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 gera upp vi\u00f0 mig hvort \u00e9g try\u00f0i \u00e1 \u00e1lfa og hulduf\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar \u00e9g sp\u00e1\u00f0i \u00ed \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 var ekkert \u00ed m\u00ednum reynsluheimi sem s\u00fdndi fram \u00e1 tilvist \u00feeirra. \u00c1 m\u00f3ti kom a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekki heldur neitt sem afsanna\u00f0i tilvistina. \u00deetta var kannski svipa\u00f0 og me\u00f0 m\u00f6rg\u00e6sir. \u00de\u00f3 \u00e9g hef\u00f0i aldrei s\u00e9\u00f0 m\u00f6rg\u00e6s \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 n\u00fa ekki svo a\u00f0 \u00e9g try\u00f0i ekki \u00e1 tilvist \u00feeirra. Og \u00fe\u00f3. \u00c1lfar og hulduf\u00f3lk voru kannski annars e\u00f0lis en m\u00f6rg\u00e6sir. Tr\u00fain \u00e1 tilvist m\u00f6rg\u00e6sa var l\u00edklegast ekki spurning um \u00fea\u00f0 hvort ma\u00f0ur hef\u00f0i s\u00e9\u00f0 eina sl\u00edka e\u00f0a ekki. F\u00f3lk t\u00f3k bara tilvist \u00feeirra sem sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0um hlut. \u00dea\u00f0 var hins vegar eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00e1lfa og hulduf\u00f3lk sem ger\u00f0i tilvist \u00feeirra ekki eins sj\u00e1lfsag\u00f0a. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed lei\u00f0 \u00fe\u00e1 var komi\u00f0 a\u00f0 \u00f6gurstundu. \u00c9g \u00feurfti a\u00f0 gera upp hug minn. \u00c9g var\u00f0 a\u00f0 svara spurningu Hollendingsins. A\u00f0 tr\u00faa e\u00f0a tr\u00faa ekki &#8212; \u00e1 \u00e1lfa og hulduf\u00f3lk &#8212; \u00fea\u00f0 var efinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1,\u201c svara\u00f0i \u00e9g \u00f6ruggur me\u00f0 mig. Hvers vegna ekki? M\u00f6rg\u00e6sir eru til. Er \u00fea\u00f0 ekki annars? Hvers vegna geta \u00e1lfar og hulduf\u00f3lk \u00fe\u00e1 ekki allt eins veri\u00f0 til.<\/p>\n\n\n\n<p>Hollendingurinn horf\u00f0i \u00e1 mig vantr\u00faa\u00f0ur. Hann haf\u00f0i l\u00edklega ekki b\u00faist vi\u00f0 \u00feessu svari. \u00c9g gat a\u00f0 vissu leyti skili\u00f0 hann. \u00cd sj\u00e1lfu s\u00e9r haf\u00f0i \u00e9g ekki heldur b\u00faist vi\u00f0 \u00feessu svari.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn af hverju?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deetta var g\u00f3\u00f0 spurning. \u00dear sem \u00fea\u00f0 h\u00f6f\u00f0u ekki li\u00f0i\u00f0 fimm m\u00edn\u00fatur fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g ger\u00f0i upp hug minn var\u00f0andi \u00e1lfatr\u00fana m\u00edna \u00fe\u00e1 var \u00e9g ekki tilb\u00fainn me\u00f0 skothelt svar vi\u00f0 spurningunni. \u00c9g \u00feyrfti a\u00f0 spila af fingrum fram.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAf hverju ekki?\u201c spur\u00f0i \u00e9g \u00e1 m\u00f3ti og fannst \u00fea\u00f0 pr\u00fd\u00f0isgott svar &#8212; \u00fe\u00f3 sandkassalegt v\u00e6ri. \u201e\u00dea\u00f0 sakar \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekkert a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 \u00e1lfa. \u00dear a\u00f0 auki getur \u00fea\u00f0 bara veri\u00f0 frekar gaman.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g kom sj\u00e1lfum m\u00e9r skemmtilega \u00e1 \u00f3vart. M\u00e9r fannst r\u00f6ksemdaf\u00e6rsla m\u00edn hreint \u00fat sagt alls ekki svo galin. \u00dea\u00f0 kosta\u00f0i ekki neitt a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 \u00e1lfa og hulduf\u00f3lk. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 segja fyrir flest okkar sem ekki standa \u00ed vega- e\u00f0a jar\u00f0gangager\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn \u00fea\u00f0 hefur engan tilgang,\u201c svara\u00f0i Hollendingurinn og d\u00e6sti. \u201eOg svo eru svona fyrirb\u00e6ri ekki til. \u00de\u00fa hefur enga s\u00f6nnun.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>M\u00e9r fannst freistandi a\u00f0 setja fram m\u00f6rg\u00e6sa-r\u00f6ksemdina. \u00dea\u00f0 var hins vegar ekki \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 \u00feessi Hollendingur hef\u00f0i fari\u00f0 til Su\u00f0ur-Amer\u00edku &#8212; e\u00f0a \u00ed d\u00fdragar\u00f0. \u00dea\u00f0 g\u00e6ti \u00fev\u00ed or\u00f0i\u00f0 erfitt a\u00f0 nota m\u00f6rg\u00e6sirnar til \u00feess a\u00f0 svara spurningunni um tilvist \u00e1lfa. \u00c9g taldi mig vita n\u00e6gjanlega miki\u00f0 um r\u00f6kfr\u00e6\u00f0i til \u00feess a\u00f0 vita a\u00f0 \u00fea\u00f0 var almennt s\u00e9\u00f0 fl\u00f3ki\u00f0 a\u00f0 afsanna tilvist hluta. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota n\u00e6rt\u00e6kara d\u00e6mi og einbeita m\u00e9r a\u00f0 spurningunni um tilgang.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEr \u00feetta bara ekki svipa\u00f0 og a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 konungsfj\u00f6lskylduna?\u201c spur\u00f0i \u00e9g sakleysislega. \u201eHefur \u00fea\u00f0 nokkurn tilgang?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Hollendingurinn hika\u00f0i um stund. Haf\u00f0i \u00e9g gengi\u00f0 of langt? Var konungsfj\u00f6lskyldan of heil\u00f6g til \u00feess a\u00f0 draga hana inn \u00ed umr\u00e6\u00f0una um tilvist \u00e1lfa og hulduf\u00f3lks?<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er ekki \u00fea\u00f0 sama,\u201c svara\u00f0i Hollendingurinn vandr\u00e6\u00f0alega. \u201eKonungsfj\u00f6lskyldan er til.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deetta var g\u00f3\u00f0ur punktur. Hann haf\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 miki\u00f0 til s\u00edns m\u00e1ls. \u00c9g haf\u00f0i hins vegar viljandi reynt a\u00f0 for\u00f0ast spurninguna um tilvist og reynt a\u00f0 einbeita m\u00e9r a\u00f0 spurningunni um tilgang. Mig langa\u00f0i til \u00feess a\u00f0 halda \u00e1fram me\u00f0 saml\u00edkinguna og sj\u00e1 hversu langt \u00e9g k\u00e6mist.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn hefur samt engan tilgang,\u201c sag\u00f0i \u00e9g og reyndi a\u00f0 brosa eins vingjarnlega og \u00e9g gat til \u00feess a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki illa meint hj\u00e1 m\u00e9r \u00fe\u00f3 \u00e9g l\u00edkti hollensku konungsfj\u00f6lskyldunni vi\u00f0 \u00e1lfa og hulduf\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00fa, h\u00fan er sameiningart\u00e1kn \u00fej\u00f3\u00f0arinnar,\u201c svara\u00f0i Hollendingurinn hr\u00f3\u00f0ugur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eGetur tr\u00fa \u00e1 \u00e1lfa ekki veri\u00f0 sameiningart\u00e1kn \u00fej\u00f3\u00f0ar?\u201c spur\u00f0i \u00e9g jafnhar\u00f0an \u00e1 m\u00f3ti.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g vissi a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri kominn \u00e1 h\u00e1lan \u00eds. \u00dea\u00f0 var heldur langs\u00f3tt a\u00f0 l\u00edkja hollensku konungsfj\u00f6lskyldunni vi\u00f0 \u00e1lfa og hulduf\u00f3lk. \u00dear a\u00f0 auki gat veri\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri vi\u00f0kv\u00e6mt m\u00e1l h\u00e9r \u00ed Hollandi a\u00f0 setja \u00fat \u00e1 konungsfj\u00f6lskylduna. Hollendingurinn haf\u00f0i hins vegar snert einhverja taug. M\u00e9r fannst \u00fea\u00f0 eins og skylda m\u00edn sem \u00cdslendingur a\u00f0 verja \u00edslensku \u00e1lfatr\u00fana.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg svo er konungsfj\u00f6lskyldan andlit hollensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00fat \u00e1 vi\u00f0,\u201c b\u00e6tti Hollendingurinn vi\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 svara \u00fev\u00ed hvort \u00e1lfar g\u00e6tu veri\u00f0 sameiningart\u00e1kn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dear haf\u00f0i hann hitt naglann \u00e1 h\u00f6f\u00f0i\u00f0. \u00dearna var komin enn ein samsv\u00f6runin milli \u00e1lfa og hulduf\u00f3lks annars vegar og k\u00f3nga og drottninga hins vegar. A\u00f0 minnsta kosti ef teki\u00f0 v\u00e6ri mi\u00f0 af \u00feessu samtali okkar \u00fe\u00e1 virtust \u00fea\u00f0 vera \u00e1lfar og hulduf\u00f3lk &#8212; \u00e1samt Bj\u00f6rk &#8212; sem myndu\u00f0u andlit \u00cdslands \u00fat \u00e1 vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00cd tilfelli \u00cdslands eru \u00fea\u00f0 einmitt \u00e1lfar sem eru andlit \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00fat \u00e1 vi\u00f0,\u201c sag\u00f0i \u00e9g og brosti. \u201eVoru ekki \u00e1lfar og Bj\u00f6rk \u00fea\u00f0 eina sem \u00fe\u00fa vissir um \u00cdsland? Er \u00fev\u00ed ekki bara tilvali\u00f0 a\u00f0 \u00e1lfar s\u00e9u sameiningart\u00e1kn \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar og andlit hennar \u00fat \u00e1 vi\u00f0. V\u00e6ri \u00fea\u00f0 ekki tilvali\u00f0 a\u00f0 \u00feegar hollenska konungsfj\u00f6lskyldan k\u00e6mi \u00ed heims\u00f3kn til \u00cdslands \u00fe\u00e1 myndu \u00e1lfarnir standa \u00ed r\u00f6\u00f0 \u00e1 flugvellinum til \u00feess a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti henni. Bj\u00f6rk g\u00e6ti sungi\u00f0 vi\u00f0 sama t\u00e6kif\u00e6ri.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Hollendingurinn brosti \u00e1 m\u00f3ti. Hann haf\u00f0i \u00fe\u00e1 ekki m\u00f3\u00f0gast vi\u00f0 konungslasti\u00f0. Hann hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, st\u00f3\u00f0 upp, kvaddi og h\u00e9lt \u00e1fram skokki s\u00ednu. \u00c9g sat eftir \u00e1 bekknum og velti \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 v\u00e6ri nokku\u00f0 svo vitlaust a\u00f0 skipta \u00edslenska forsetanum \u00fat fyrir \u00e1lfa og hulduf\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<aside class=\"wp-block-group book-ad has-text-color has-background\" style=\"color:#000000;background-color:#257ea9\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-media-text is-stacked-on-mobile\" style=\"grid-template-columns:33% auto\"><figure class=\"wp-block-media-text__media\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"765\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=765%2C1024&#038;ssl=1\" alt=\"999 Erlendis \u2014 K\u00e1puh\u00f6nnun Ana Pi\u00f1eyro\" class=\"wp-image-1572 size-full\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=765%2C1024&amp;ssl=1 765w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=224%2C300&amp;ssl=1 224w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=768%2C1028&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=900%2C1204&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=500%2C669&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 765px) 100vw, 765px\" \/><\/figure><div class=\"wp-block-media-text__content\">\n<h4 class=\"wp-block-heading\">999 Erlendis<\/h4>\n\n\n\n<p>\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu 999 Erlendis.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>999 Erlendis <\/em>f\u00e6st sem kilja hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.com\/999-Erlendis-Icelandic-B%C3%B6rkur-Sigurbj%C3%B6rnsson\/dp\/9935946665\/\">Amazon<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.barnesandnoble.com\/w\/999-erlendis-b-rkur-sigurbj-rnsson\/1143728608\">Barnes and Noble<\/a>. Rafb\u00e6kur f\u00e1st hj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.amazon.com\/999-Erlendis-Icelandic-B-rkur-Sigurbj-rnsson-ebook\/dp\/B00PP3V3QW\/\">Kindle Store<\/a>, <a href=\"https:\/\/books.apple.com\/us\/book\/999-erlendis\/id1397156790\">Apple Books<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.kobo.com\/us\/en\/ebook\/999-erlendis\">Kobo<\/a>, and <a href=\"https:\/\/www.storytel.com\/is\/is\/books\/999-erlendis-2028494\">Storytel<\/a>.<\/p>\n\n\n\n<p>Ennig m\u00e1 styrkja h\u00f6fundinn \u00ed gegnum <a href=\"https:\/\/patreon.com\/UrbanVolcano\">Patreon<\/a> og <a href=\"https:\/\/buymeacoffee.com\/borkur\">Buy Me a Coffee<\/a> e\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa b\u00f3kinni einkunn \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.goodreads.com\/book\/show\/58061201-999-erlendis\">Goodreads<\/a>.<\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-buttons is-horizontal is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-buttons-is-layout-499968f5 wp-block-buttons-is-layout-flex\">\n<div class=\"wp-block-button has-custom-width wp-block-button__width-50\"><a class=\"wp-block-button__link has-text-color has-background wp-element-button\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/999-erlendis\/\" style=\"border-radius:50px;color:#ffffff;background-color:#000000\">n\u00e1nari uppl\u00fdsingar<\/a><\/div>\n<\/div>\n<\/div><\/aside>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. \u00cdslenskt lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ld situr \u00e1 bekk \u00ed Vondelpark gar\u00f0inum \u00ed Amsterdam og r\u00e6\u00f0ir vi\u00f0 hollenskan hlaupagarp um \u00edslenskar sta\u00f0al\u00edmyndir, Bj\u00f6rk, \u00e1lfa og k\u00f3nga.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":495,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":false,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[18,66,72,56,13,61],"class_list":["post-19","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-almenningsrymi","tag-fraega-folkid","tag-island","tag-kongafolk","tag-tru","tag-yfirnatturulegar-verur","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/05\/elves.png?fit=1024%2C1024&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/19","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=19"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/19\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2493,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/19\/revisions\/2493"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/495"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=19"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=19"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=19"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}