{"id":25,"date":"2010-02-07T15:02:08","date_gmt":"2010-02-07T15:02:08","guid":{"rendered":"http:\/\/smafuglar.net\/2010\/02\/ungi-madurinn-a-hjolinu\/"},"modified":"2025-04-19T18:24:08","modified_gmt":"2025-04-19T18:24:08","slug":"ungi-madurinn-a-hjolinu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/ungi-madurinn-a-hjolinu\/","title":{"rendered":"Ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu"},"content":{"rendered":"\n<aside class=\"other-formats\">A\u00f0rar \u00fatg\u00e1fur: <a title=\"Ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu (PDF)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/ebooks\/is\/pdf\/ungi-madurinn-a-hjolinu.pdf\">PDF<\/a> | <a title=\"The young man with the bicycle (english)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/en\/the-young-man-on-the-bicycle\/\">english<\/a> | <a title=\"El joven de la bicicleta (espa\u00f1ol)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/es\/el-joven-de-la-bicicleta\/\">espa\u00f1ol<\/a><\/aside>\n\n\n<div class=\"wp-block-image is-resized\">\n<figure class=\"alignright size-medium\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/bicycle.png?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/bicycle.png?resize=300%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"Ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu \u2014 Myndskreyting Yana Volkovich\" class=\"wp-image-498\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/bicycle.png?resize=300%2C300&amp;ssl=1 300w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/bicycle.png?resize=150%2C150&amp;ssl=1 150w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/bicycle.png?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndskreyting Yana Volkovich<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>\u00c9g gekk inn \u00ed anddyri\u00f0 og teymdi hj\u00f3li\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 m\u00e9r inn ganginn. Er \u00e9g n\u00e1lga\u00f0ist dyrnar a\u00f0 \u00edb\u00fa\u00f0inni minni s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 bi\u00f0u m\u00edn skilabo\u00f0 milli stafs og hur\u00f0ar. \u00c9g hugsa\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 l\u00edklega v\u00e6ri \u00feetta einhvers konar fj\u00f6lp\u00f3stur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eMissti svartar n\u00e6rbuxur ni\u00f0ur \u00e1 ver\u00f6ndina \u00fe\u00edna. Kve\u00f0ja, n\u00e1granninn \u00ed 5o-3a.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g teymdi hj\u00f3li\u00f0 \u00fevert yfir forstofuna og kom \u00fev\u00ed fyrir \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0 \u00fati \u00e1 ver\u00f6ndinni. \u00c1 bakalei\u00f0inni inn \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0ina t\u00f3k \u00e9g upp svartar kvenmannsn\u00e6rbuxur sem l\u00e1gu \u00e1 ver\u00f6ndinni. Samkv\u00e6mt mi\u00f0anum h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00e6r falli\u00f0 af \u00fevottasn\u00faru n\u00e1grannans \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 \u00ferj\u00fa \u00e1 fimmtu h\u00e6\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar \u00e9g bei\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 lyftan k\u00e6mi ni\u00f0ur \u00e1 jar\u00f0h\u00e6\u00f0ina rann \u00fea\u00f0 upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 \u00feetta var \u00ed fyrsta sinn sem \u00e9g nota\u00f0i hana. \u00c1 \u00fev\u00ed \u00e1ri sem \u00e9g haf\u00f0i b\u00fai\u00f0 h\u00e9r \u00ed Barcelona haf\u00f0i \u00e9g aldrei \u00e1tt erindi vi\u00f0 n\u00e1granna m\u00edna \u00e1 efri h\u00e6\u00f0um h\u00fassins. \u00c9g \u00feekkti \u00fe\u00e1 ekki. \u00c9g kanna\u00f0ist vi\u00f0 suma \u00ed sj\u00f3n, bau\u00f0 \u00feeim g\u00f3\u00f0an daginn ef \u00e9g hitti \u00fe\u00e1 \u00ed anddyrinu, en \u00feekkti engan me\u00f0 nafni. \u00c9g haf\u00f0i gefi\u00f0 sumum einkennisn\u00f6fn til \u00feess a\u00f0 skilja \u00e1 milli \u00feeirra \u00ed huganum. \u00dear voru hj\u00f3nin sem minntu mig \u00e1 systkin, gamli ma\u00f0urinn me\u00f0 stafinn, konan sem spur\u00f0i mig alltaf hvort \u00e9g hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 heiman \u00fev\u00ed h\u00fan hef\u00f0i ekki s\u00e9\u00f0 mig lengi, g\u00f6mlu hj\u00f3nin me\u00f0 barnab\u00f6rnin, og svo framvegis. \u00c9g skamma\u00f0ist m\u00edn h\u00e1lfpartinn fyrir a\u00f0 \u00feekkja \u00feau einungis af \u00feessum l\u00fdsingaror\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g steig \u00fat \u00far lyftunni \u00e1 fimmtu h\u00e6\u00f0 og hringdi bj\u00f6llunni \u00e1 5o-3a. Dyrnar opnu\u00f0ust ekki en fyrir innan gelti hundur af miklum \u00e1kafa. Hugsanlega var hann a\u00f0 segja m\u00e9r a\u00f0 koma seinna. Hugsanlega var hann a\u00f0 segja m\u00e9r a\u00f0 halda mig \u00ed h\u00e6filegri fjarl\u00e6g\u00f0 til framb\u00fa\u00f0ar. Hva\u00f0 vissi \u00e9g um hundam\u00e1l?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g var vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 halda til baka ni\u00f0ur \u00feegar dyrnar \u00e1 5o-2a opnu\u00f0ust. G\u00f6mul kona me\u00f0 skakka h\u00e1rkollu gekk \u00fat \u00e1 stigapallinn og fast \u00e1 h\u00e6la henni fylgdi a\u00f0eins yngri kona \u00e1 n\u00e1ttslopp. \u00c9g kanna\u00f0ist vi\u00f0 b\u00e1\u00f0ar konurnar en \u00e1tti engin n\u00f6fn yfir \u00fe\u00e6r. G\u00f6mlu konuna me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna kanna\u00f0ist \u00e9g vi\u00f0 sem g\u00f6mlu konuna me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna. A\u00f0eins yngri konuna \u00e1 n\u00e1ttsloppnum kanna\u00f0ist \u00e9g vi\u00f0 a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 \u00e1\u00f0ur en minntist \u00feess ekki a\u00f0 hafa n\u00e6lt \u00e1 hana nokkrum l\u00fdsingaror\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHall\u00f3 str\u00e1ksi!\u201c sag\u00f0i gamla konan me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna og sneri s\u00e9r a\u00f0 a\u00f0eins yngri konunni \u00e1 n\u00e1ttsloppnum. \u201e\u00deetta er str\u00e1kurinn sem missti v\u00ednfl\u00f6skuna \u00e1 g\u00f3lfi\u00f0 \u00ed lyftunni.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei,\u201c svara\u00f0i a\u00f0eins yngri konan \u00e1 n\u00e1ttslopnum. \u201e\u00deetta er ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eUngi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu?\u201c Gamla konan me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna virtist ekki vera alveg me\u00f0 \u00e1 n\u00f3tunum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu,\u201c endurt\u00f3k a\u00f0eins yngri konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum. \u201eStr\u00e1kurinn \u00e1 jar\u00f0h\u00e6\u00f0inni. \u00datlendingurinn me\u00f0 h\u00f6kutoppinn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAh, j\u00e1. Ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu!\u201c Gamla konan me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna virtist vera b\u00fain a\u00f0 kveikja \u00e1 perunni. \u201e\u00c9g h\u00e9lt \u00feetta v\u00e6ri str\u00e1kurinn sem missti v\u00ednfl\u00f6skuna \u00e1 g\u00f3lfi\u00f0 \u00ed lyftunni. \u00c9g s\u00e9 \u00fea\u00f0 n\u00fana. \u00deetta er ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g kinka\u00f0i kolli og brosti vandr\u00e6\u00f0alega. \u00c9g gat gengist vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edklega v\u00e6ri \u00e9g ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu. \u00c9g var \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekkert gamall og fer\u00f0a\u00f0ist jafnan um \u00e1 hj\u00f3li. \u00dear a\u00f0 auki var \u00e9g \u00fatlendingur me\u00f0 h\u00f6kutopp og bj\u00f3 \u00e1 jar\u00f0h\u00e6\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p>Eftir a\u00f0 b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 bera kennsl \u00e1 mig t\u00f3k vi\u00f0 \u00fe\u00f6gn \u00e1 stigapallinum. Konurnar horf\u00f0u \u00e1 mig spyrjandi augum. \u00c9g t\u00f3k \u00fea\u00f0 sem v\u00edsbendingu um a\u00f0 l\u00edklega v\u00e6ri komi\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 gera grein fyrir fer\u00f0um m\u00ednum h\u00e9r \u00e1 efri h\u00e6\u00f0um h\u00fassins.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g kom bara til \u00feess a\u00f0 skila n\u00e6rbuxum til konunnar \u00e1 5o-3a,\u201c sag\u00f0i \u00e9g og lyfti n\u00e6rbuxunum upp svo a\u00f0 konurnar g\u00e6tu s\u00e9\u00f0 \u00fe\u00e6r.<\/p>\n\n\n\n<p>Um lei\u00f0 og \u00e9g haf\u00f0i sleppt or\u00f0unum \u00e1tta\u00f0i \u00e9g mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i ekki gert g\u00f3\u00f0a grein fyrir veru minni h\u00e9rna. H\u00fan g\u00e6ti misskilist. \u00c9g fann ro\u00f0ann fl\u00e6\u00f0a \u00fat \u00ed kinnarnar. \u00de\u00f6gnin r\u00edkti \u00e1 n\u00fd \u00e1 stigapallinum. L\u00edklegast bi\u00f0u konurnar \u00feess a\u00f0 \u00e9g sk\u00fdr\u00f0i m\u00e1l mitt n\u00e1nar. A\u00f0 minnsta kosti var m\u00e9r \u00ed mun a\u00f0 sk\u00fdra m\u00e1l mitt n\u00e1nar. \u00c9g vildi halda \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera \u00feekktur sem ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu fremur en a\u00f0 f\u00e1 \u00e1 mig \u00f6nnur misskilin l\u00fdsingaror\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEh, \u00e9g meina. Eh. N\u00e6rbuxurnar f\u00e9llu af sn\u00farunni,\u201c stama\u00f0i \u00e9g. \u201e\u00c9g fann \u00fe\u00e6r \u00e1 ver\u00f6ndinni minni.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn,\u201c sag\u00f0i a\u00f0eins yngri konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum og beindi or\u00f0um s\u00ednum til g\u00f6mlu konunnar me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHa?\u201c hv\u00e1\u00f0i gamla konan me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 er d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn sem \u00e1 n\u00e6rbuxurnar,\u201c sk\u00fdr\u00f0i a\u00f0eins yngri konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum \u00fat fyrir g\u00f6mlu konunni me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eN\u00fa?\u201c Gamla konan me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna var enn ekki alveg me\u00f0 \u00e1 n\u00f3tunum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn missti n\u00e6rbuxurnar \u00feegar h\u00fan var a\u00f0 hengja \u00fat \u00fevottinn og \u00fe\u00e6r lentu \u00e1 ver\u00f6ndinni hj\u00e1 unga manninum \u00e1 hj\u00f3linu.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Gamla konan me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna kinka\u00f0i kolli. H\u00fan virtist vera b\u00fain a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 st\u00f6\u00f0u m\u00e1la. \u00c9g var feginn a\u00f0 vera m\u00edn h\u00e9r \u00e1 stigapallinum var komin \u00e1 hreint. \u00c9g hug\u00f0ist \u00fev\u00ed kve\u00f0ja og halda \u00e1fram fer\u00f0 minni til baka ni\u00f0ur \u00e1 jar\u00f0h\u00e6\u00f0ina. \u00c9g kvaddi og veifa\u00f0i konunum &#8212; hugsanlega heldur \u00f3heppilega me\u00f0 \u00feeirri h\u00f6ndinni sem h\u00e9lt \u00e1 n\u00e6rbuxunum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eL\u00e1ttu mig bara hafa \u00fe\u00e6r,\u201c sag\u00f0i a\u00f0eins yngri konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum og greip n\u00e6rbuxurnar \u00far hendi m\u00e9r. \u201e\u00c9g skila \u00feeim til d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0u konunnar me\u00f0 hundinn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g tv\u00edst\u00e9 \u00e1 stigapallinum og vissi ekki hvernig \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0. \u00c9g hef\u00f0i kosi\u00f0 a\u00f0 koma \u00fevottinum millili\u00f0alaust \u00ed hendurnar \u00e1 r\u00e9ttum eiganda. M\u00e9r fannst heldur vandr\u00e6\u00f0alegt a\u00f0 vera a\u00f0 skiptast \u00e1 annarra manna n\u00e6rf\u00f6tum vi\u00f0 n\u00e1grannana. \u00c9g kunni hins vegar ekki vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0ja um n\u00e6rbuxurnar til baka. \u00c9g gat \u00fev\u00ed ekki anna\u00f0 en \u00feakka\u00f0 fyrir mig og haldi\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 n\u00fd. A\u00f0eins yngri konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum myndi \u00f6rugglega koma \u00fevottinum til skila til d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0u konunnar me\u00f0 hundinn.<\/p>\n\n\n\n<p>*****<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g hr\u00f6kk upp vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 dyrabjallan glumdi. \u00c9g st\u00f3\u00f0 upp \u00far s\u00f3fanum og sl\u00f6kkti \u00e1 sj\u00f3nvarpinu. \u00c9g haf\u00f0i sofna\u00f0 \u00fat fr\u00e1 fr\u00e9ttunum. \u00c9g opna\u00f0i dyrnar. Fyrir utan st\u00f3\u00f0 d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0 kona me\u00f0 hund \u00ed bandi.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eG\u00f3\u00f0a kv\u00f6ldi\u00f0. \u00c9g er n\u00e1granni \u00feinn \u00ed 5o-3a,\u201c sag\u00f0i d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAha\u201c, svara\u00f0i \u00e9g og hugsa\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g missti \u00fevott ni\u00f0ur \u00e1 ver\u00f6ndina \u00fe\u00edna.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g hika\u00f0i vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 svara. \u00c9g var ekki viss hvernig \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 koma or\u00f0um a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri ekki lengur me\u00f0 \u00fevottinn \u00ed m\u00ednum f\u00f3rum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHa, j\u00e1, sko,\u201c stama\u00f0i \u00e9g a\u00f0 lokum \u201e\u00c9g er sko eiginlega ekki me\u00f0 hann lengur.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHa?\u201c D\u00f6kkh\u00e6r\u00f0u konunni me\u00f0 hundinn virtist brug\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eKonan \u00e1 5o-2a er me\u00f0 hann,\u201c svara\u00f0i \u00e9g og fann ro\u00f0a f\u00e6rast \u00ed andliti\u00f0. Af hverju \u00feurfti a\u00f0eins yngri konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum endilega a\u00f0 taka \u00fevottinn \u00ed s\u00edna v\u00f6rslu? \u00dea\u00f0 ger\u00f0i m\u00e1l mitt heldur vandr\u00e6\u00f0alegt.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHa?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>M\u00e9r var lj\u00f3st a\u00f0 \u00feetta hlj\u00f3ma\u00f0i allt heldur undarlega. \u00c9g vissi hins vegar ekki hvernig \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 sk\u00fdra \u00feetta betur. \u00c9g vissi engin frekari deili \u00e1 konunni \u00ed 5o-2a til \u00feess a\u00f0 sk\u00fdra n\u00e1nar fr\u00e1 \u00fev\u00ed hver v\u00e6ri me\u00f0 \u00fevottinn \u00ed s\u00ednum f\u00f3rum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eKonan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>J\u00e1 einmitt! D\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn leysti m\u00e1li\u00f0 fyrir mig. \u00dea\u00f0 var einmitt konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum sem var me\u00f0 \u00fevottinn \u00ed s\u00ednum h\u00f6ndum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, einmitt!\u201c svara\u00f0i \u00e9g og var feginn a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 var fari\u00f0 a\u00f0 sk\u00fdrast.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvers vegna er konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum me\u00f0 n\u00e6rbuxurnar m\u00ednar?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g gat ekki anna\u00f0 en vi\u00f0urkennt a\u00f0 \u00feetta var afar g\u00f3\u00f0 spurning. M\u00e1li\u00f0 var kannski ekki eins n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 sk\u00fdrast og \u00e9g haf\u00f0i haldi\u00f0. \u00c9g \u00feurfti a\u00f0 sk\u00fdra \u00fea\u00f0 n\u00e1nar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eH\u00fan t\u00f3k \u00fe\u00e6r,\u201c var \u00fea\u00f0 eina sem m\u00e9r datt \u00ed hug a\u00f0 segja.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eH\u00fan t\u00f3k \u00fe\u00e6r?\u201c svara\u00f0i d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEh, j\u00e1. H\u00fan t\u00f3k \u00fe\u00e6r.\u201c M\u00e9r datt ekkert \u00ed hug til \u00feess a\u00f0 sk\u00fdra \u00feetta n\u00e1nar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAf ver\u00f6ndinni?\u201c spur\u00f0i d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn undrandi.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei. \u00dar h\u00f6ndunum \u00e1 m\u00e9r.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 voru n\u00e6rbuxurnar m\u00ednar a\u00f0 gera \u00ed h\u00f6ndunum \u00e1 \u00fe\u00e9r fyrir framan konuna \u00e1 n\u00e1ttsloppnum?\u201c spur\u00f0i d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn. Undrunin virtist vera a\u00f0 v\u00edkja fyrir rei\u00f0i. M\u00e1li\u00f0 var a\u00f0 fl\u00e6kjast um of. \u00c9g var\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 sk\u00fdra \u00feetta betur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g f\u00f3r me\u00f0 \u00fe\u00e6r upp. \u00de\u00fa varst ekki heima. H\u00fan kom hins vegar \u00fat og t\u00f3k \u00fe\u00e6r af m\u00e9r.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g var nokku\u00f0 \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 \u00fea\u00f0 hvernig \u00e9g n\u00e1\u00f0i a\u00f0 loksins a\u00f0 or\u00f0a \u00fea\u00f0 sem haf\u00f0i gerst. \u00deetta var kannski ekki svo f\u00f3ki\u00f0 eftir allt saman.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn h\u00fan er skr\u00fdtin!\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g \u00e1tti ekkert svar vi\u00f0 \u00feessu. \u00c9g gat hvorki neita\u00f0 n\u00e9 j\u00e1ta\u00f0. \u00c9g \u00feekkti ekki n\u00e6gilega vel til konunnar \u00e1 n\u00e1ttsloppnum. \u00c9g haf\u00f0i einungis hitt hana \u00ed eitt sinn. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 segja sem konuna \u00e1 n\u00e1ttsloppnum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAf hverju er konan \u00e1 n\u00e1ttsloppnum me\u00f0 n\u00e6rbuxurnar m\u00ednar?\u201c spur\u00f0i d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn og virtist vera a\u00f0 tala vi\u00f0 sj\u00e1lfa sig. \u201eAf hverju h\u00fan? H\u00fan er skr\u00fdtin! Jafn skr\u00fdtin og gamla konan me\u00f0 sk\u00f6kku h\u00e1rkolluna. H\u00fan hefur \u00fe\u00f3 afs\u00f6kun. H\u00fan er mj\u00f6g g\u00f6mul.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Hva\u00f0 gat \u00e9g sagt? Ekkert. \u00c9g st\u00f3\u00f0 og hlusta\u00f0i \u00e1 d\u00f6kkh\u00e6r\u00f0u konuna me\u00f0 hundinn tala vi\u00f0 sj\u00e1lfa sig. Rei\u00f0in virtist hafa viki\u00f0 fyrir depur\u00f0. H\u00fan \u00feag\u00f0i og horf\u00f0i ni\u00f0ur fyrir sig eins og h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 tala vi\u00f0 hundinn \u00ed hlj\u00f3\u00f0i. \u00c9g \u00feag\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00d3j\u00e6ja. \u00dea\u00f0 n\u00e6r \u00fe\u00e1 ekki lengra,\u201c sag\u00f0i h\u00fan loks og leit upp fr\u00e1 hundinum og \u00e1 mig.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g yppti \u00f6xlum. \u00dea\u00f0 n\u00e6\u00f0i \u00fe\u00e1 ekki lengra. D\u00f6kkh\u00e6r\u00f0a konan me\u00f0 hundinn kvaddi og kalla\u00f0i \u00e1 lyftuna. \u00c9g kvaddi s\u00f6mulei\u00f0is og lag\u00f0i hur\u00f0ina a\u00f0 st\u00f6fum. \u00c1 lei\u00f0inni til baka yfir a\u00f0 s\u00f3fanum gekk \u00e9g framhj\u00e1 speglinum. \u00c9g sta\u00f0n\u00e6mdist og horf\u00f0i \u00e1 eigin spegilmynd og sag\u00f0i vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig: \u201eSvo \u00fe\u00fa ert ungi ma\u00f0urinn \u00e1 hj\u00f3linu.\u201c<\/p>\n\n\n\n<aside class=\"wp-block-group book-ad has-text-color has-background\" style=\"color:#000000;background-color:#257ea9\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-media-text is-stacked-on-mobile\" style=\"grid-template-columns:33% auto\"><figure class=\"wp-block-media-text__media\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"765\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=765%2C1024&#038;ssl=1\" alt=\"999 Erlendis \u2014 K\u00e1puh\u00f6nnun Ana Pi\u00f1eyro\" class=\"wp-image-1572 size-full\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=765%2C1024&amp;ssl=1 765w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=224%2C300&amp;ssl=1 224w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=768%2C1028&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=900%2C1204&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=500%2C669&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 765px) 100vw, 765px\" \/><\/figure><div class=\"wp-block-media-text__content\">\n<h4 class=\"wp-block-heading\">999 Erlendis<\/h4>\n\n\n\n<p>\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu 999 Erlendis.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>999 Erlendis <\/em>f\u00e6st sem kilja hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.com\/999-Erlendis-Icelandic-B%C3%B6rkur-Sigurbj%C3%B6rnsson\/dp\/9935946665\/\">Amazon<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.barnesandnoble.com\/w\/999-erlendis-b-rkur-sigurbj-rnsson\/1143728608\">Barnes and Noble<\/a>. Rafb\u00e6kur f\u00e1st hj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.amazon.com\/999-Erlendis-Icelandic-B-rkur-Sigurbj-rnsson-ebook\/dp\/B00PP3V3QW\/\">Kindle Store<\/a>, <a href=\"https:\/\/books.apple.com\/us\/book\/999-erlendis\/id1397156790\">Apple Books<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.kobo.com\/us\/en\/ebook\/999-erlendis\">Kobo<\/a>, and <a href=\"https:\/\/www.storytel.com\/is\/is\/books\/999-erlendis-2028494\">Storytel<\/a>.<\/p>\n\n\n\n<p>Ennig m\u00e1 styrkja h\u00f6fundinn \u00ed gegnum <a href=\"https:\/\/patreon.com\/UrbanVolcano\">Patreon<\/a> og <a href=\"https:\/\/buymeacoffee.com\/borkur\">Buy Me a Coffee<\/a> e\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa b\u00f3kinni einkunn \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.goodreads.com\/book\/show\/58061201-999-erlendis\">Goodreads<\/a>.<\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-buttons is-horizontal is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-buttons-is-layout-499968f5 wp-block-buttons-is-layout-flex\">\n<div class=\"wp-block-button has-custom-width wp-block-button__width-50\"><a class=\"wp-block-button__link has-text-color has-background wp-element-button\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/999-erlendis\/\" style=\"border-radius:50px;color:#ffffff;background-color:#000000\">n\u00e1nari uppl\u00fdsingar<\/a><\/div>\n<\/div>\n<\/div><\/aside>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. Ungur ma\u00f0ur kemst \u00ed s\u00edn fyrstu kynni vi\u00f0 n\u00e1granna s\u00edna eftir a\u00f0 einn \u00feeirra missti n\u00e6rbuxur \u00e1 ver\u00f6ndina hans.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":498,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":false,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[10],"class_list":["post-25","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-nagrannar","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/bicycle.png?fit=1024%2C1024&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/25","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=25"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/25\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2501,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/25\/revisions\/2501"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/498"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=25"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=25"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=25"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}