{"id":310,"date":"2010-04-18T14:38:51","date_gmt":"2010-04-18T13:38:51","guid":{"rendered":"http:\/\/smafuglar.net\/2010\/04\/barinn-bakariid-stofan-eda-hvad-thad-nu-var-sem-hann-aetti-ad-kalla-bulluna\/"},"modified":"2023-12-02T21:20:50","modified_gmt":"2023-12-02T21:20:50","slug":"barinn-bakariid-stofan-eda-hvad-thad-nu-var-sem-hann-aetti-ad-kalla-bulluna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/barinn-bakariid-stofan-eda-hvad-thad-nu-var-sem-hann-aetti-ad-kalla-bulluna\/","title":{"rendered":"Barinn, bakar\u00edi\u00f0, stofan e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna"},"content":{"rendered":"<p>Borja leit yfir barinn. Bakar\u00edi\u00f0. Stofuna. Hann vissi ekki hva\u00f0 hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna. Hann renndi augunum fr\u00e1 \u00fatidyrunum me\u00f0fram afgrei\u00f0slubor\u00f0inu sem innih\u00e9lt d\u00e1g\u00f3\u00f0an skammt af \u00fdmis konar b\u00f6kum. Barbor\u00f0i\u00f0 t\u00f3k vi\u00f0 af afgrei\u00f0slubor\u00f0inu. Bj\u00f3rd\u00e6la var annars vegar og barst\u00f3lar hins vegar. Inn af barnum voru tv\u00f6 r\u00fdmi. \u00c1 vinstri h\u00f6nd var r\u00famgott eldh\u00fas me\u00f0 g\u00f3\u00f0um bakarofni. H\u00e6gra megin var stofan. S\u00f3fi \u00fati \u00ed horni. Skj\u00e1varpi h\u00e9kk ne\u00f0an \u00far loftinu og varpa\u00f0i mynd \u00e1 vegginn \u00ed innri enda barsins, bakar\u00edsins, stofunnar, e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna. H\u00fan var eiginlega sambland af \u00feessu \u00ferennu. \u00cd raun var h\u00fan hins vegar eitthva\u00f0 allt anna\u00f0.<\/p>\n<p>Borja l\u00e9t fingurna leika yfir h\u00e1lsinn og sl\u00f3 \u00e1 l\u00e9tta strengi. Hann spila\u00f0i l\u00e9tta t\u00f3na sem svifu um barinn, bakar\u00edi\u00f0, stofuna, e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna. Hann horf\u00f0i \u00e1 leikmenn Barcelona li\u00f0sins hlaupa fram og til baka \u00e1 veggnum \u00ed stofunni. \u00deeir voru a\u00f0 leika \u00ed \u00e1tta li\u00f0a \u00farslitum \u00ed meistaradeildinni. Borja sl\u00f3 \u00e1 strengi \u00ed takt vi\u00f0 leikinn. \u00dea\u00f0 f\u00f3r um hann s\u00e6lutilfinnning. \u00deetta var fullkomi\u00f0 l\u00edf. Og \u00fe\u00f3. \u00dea\u00f0 m\u00e6ttu kannski vera einhverjir vi\u00f0skiptavinir \u00e1 sta\u00f0num. Og \u00fe\u00f3. Hann haf\u00f0i s\u00edna fastak\u00fanna. K\u00fannana sem hann haf\u00f0i haft fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1\u00f0ur en hann opna\u00f0i barinn, bakar\u00edi\u00f0, stofuna e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna.<\/p>\n<p>Borja heyr\u00f0i \u00ferusk vi\u00f0 \u00fatidyrnar. Vi\u00f0skiptavinur var m\u00e6ttur \u00e1 sta\u00f0inn. Hann kanna\u00f0ist ekki vi\u00f0 kau\u00f0a. \u00deetta var l\u00edklega einn \u00feeirra f\u00e1u sem duttu inn \u00e1 sta\u00f0inn \u00f6\u00f0ru hvoru til \u00feess a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3tbolta. \u00deeir tengdust ekki beint kjarnastafseminni en keyptu oft bj\u00f3r og bakkelsi. \u00c1g\u00e6tis f\u00f3lk.<\/p>\n<p>Borja lag\u00f0i fr\u00e1 s\u00e9r g\u00edtarinn og bj\u00f3 sig undir a\u00f0 afgrei\u00f0a vi\u00f0skiptavininn sem settist innarlega vi\u00f0 barbor\u00f0i\u00f0, panta\u00f0i bj\u00f3r og tv\u00e6r sp\u00ednatb\u00f6kur. Vi\u00f0skiptavinurinn setti sig s\u00ed\u00f0an \u00ed stellingar til \u00feess a\u00f0 fylgjast me\u00f0 meistardeildinni sem skj\u00e1varpinn varpa\u00f0i \u00e1 stofuveggginn.<\/p>\n<p>Borja skellti tveimur sp\u00ednatb\u00f6kum \u00ed ofninn. Hann passa\u00f0i sig \u00e1 a\u00f0 velja tv\u00e6r b\u00f6kur sem baka\u00f0ar voru \u00far r\u00e9tta sm\u00f6rinu &#8212; e\u00f0a ranga sm\u00f6rinu &#8212; allt eftir \u00fev\u00ed hvernig \u00e1 \u00fea\u00f0 var liti\u00f0.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hafa gert vi\u00f0skiptavininum skil t\u00f3k Borja upp b\u00f3k og byrja\u00f0i a\u00f0 lesa. Hann kunni ekki vi\u00f0 a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 glamra \u00e1 g\u00edtarinn. Ekki \u00e1 me\u00f0an vi\u00f0skiptavinurinn horf\u00f0i \u00e1 meistaradeildina.<\/p>\n<p>Borja haf\u00f0i l\u00famskt gaman a\u00f0 svona vi\u00f0skiptavinum. Hann haf\u00f0i gaman a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 dunda s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 baka og afgrei\u00f0a vi\u00f0skiptavini. Hann var \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 a\u00f0 hafa l\u00e1ti\u00f0 ver\u00f0a af \u00fev\u00ed a\u00f0 opna barinn, bakar\u00edi\u00f0, stofuna e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna. \u00dea\u00f0 var vissulega talsver\u00f0 \u00e1h\u00e6tta sem f\u00f3lst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f6ndla tvenns konar smj\u00f6r og hann \u00feurfti a\u00f0 passa sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 rugla ekki saman b\u00f6kum og b\u00f6kum. \u00deetta l\u00edf var hins vegar \u00f3l\u00edkt skemmtilegra en a\u00f0 vera \u00ed heimsendingar\u00fej\u00f3nustu. Honum fannst hann vera frj\u00e1lsari. \u00deetta var hans eigin vi\u00f0skiptam\u00f3del. \u00deetta var hans eigin bar. Bakar\u00ed. Stofa. E\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna. Hann var a\u00f0 v\u00edsu enn afar h\u00e1\u00f0ur heildsalanum. Honum fannst hann samt einhvern veginn frj\u00e1lsari.<\/p>\n<p>Borja minntist \u00feess \u00feegar hann var n\u00fdb\u00fainn a\u00f0 opna barinn, bakar\u00edi\u00f0, stofuna e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna. Hann haf\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 n\u00e1lum. Hann vissi ekki hvernig hann \u00e6tti a\u00f0 vekja athygli \u00e1 s\u00e9r. Hva\u00f0 \u00fe\u00e1 heldur hvernig hann \u00e6tti a\u00f0 passa sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vekja ekki athygli \u00e1 s\u00e9r. Allt eftir \u00fev\u00ed hvernig \u00e1 \u00fea\u00f0 var liti\u00f0. Hann haf\u00f0i ekki \u00feurft a\u00f0 hafa \u00e1hyggjur af fastak\u00fannunum. \u00deeir voru flj\u00f3tir a\u00f0 l\u00e1ta sj\u00e1 sig. \u00deeir l\u00e9tu a\u00f0ra k\u00fanna vita. Fiskisagan komst flj\u00f3tt \u00e1 flug.<\/p>\n<p>Borja haf\u00f0i \u00f3neitanlega veri\u00f0 heldur stressa\u00f0ur \u00feegar tveir f\u00e9lagar fr\u00e1 Guardia Urbana f\u00f3ru a\u00f0 venja komur s\u00ednar \u00ed h\u00e1deginu. Fyrsta daginn f\u00e6r\u00f0i hann \u00feeim b\u00f6kurnar heldur skj\u00e1lfhenntur. Hann haf\u00f0i veri\u00f0 viss um a\u00f0 dagar hans sem frumkv\u00f6\u00f0ull v\u00e6ru taldir. Eftrir a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u m\u00e6tt \u00ed h\u00e1deginu \u00e1 hverjum degi \u00ed heila viku var\u00f0 hann hins vegar sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru grunlausir. \u00deeir v\u00e6ru einungis m\u00e6ttir til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r b\u00f6kur. Hann gat sm\u00e1m saman slaka\u00f0 \u00e1 \u00ed \u00feeirra n\u00e1vist.<\/p>\n<p>Borja var feginn a\u00f0 hans fastak\u00fannar komu sjaldan \u00ed h\u00e1deginu. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed l\u00edtil h\u00e6tta \u00e1 a\u00f0 \u00feeir fengju ve\u00f0ur hver a\u00f0 \u00f6\u00f0rum &#8212; l\u00f6ggurnar og fastak\u00fannarnir. \u00deeir voru ekki g\u00f3\u00f0 blanda. L\u00f6ggurnar myndu f\u00e6la fastak\u00fannana fr\u00e1 og fastak\u00fannarnir g\u00e6tu vaki\u00f0 grunsemdir hj\u00e1 l\u00f6ggunum. \u00dea\u00f0 var gott a\u00f0 \u00feeir komu hver \u00e1 s\u00ednum t\u00edma.<\/p>\n<p>Borja leit upp \u00feegar hann heyr\u00f0i fleiri vi\u00f0siptavini ganga inn \u00e1 barinn, bakar\u00edi\u00f0, stofuna e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna. Hann fann fyrir hrolli \u00feegar hann bar kennsl \u00e1 gestina. Heildsalinn var kominn \u00ed heims\u00f3kn. \u00deeir voru \u00fer\u00edr saman. Heildsalinn og tveir a\u00f0sto\u00f0armenn. \u00deeir litu \u00ed kringum sig&nbsp; og settust s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 barbor\u00f0i\u00f0. Borja gaut augum \u00ed \u00e1tt til vi\u00f0skiptavinarins. Hann virtist ni\u00f0ursokkinn \u00ed meistaradeildina. Borja vona\u00f0i a\u00f0 heildsalinn yr\u00f0i ekki til vandr\u00e6\u00f0a og vi\u00f0skiptavinurinn fengi a\u00f0 horfa \u00e1 leikinn \u00ed fri\u00f0i.<\/p>\n<p>,,Flott hola sem \u00fe\u00fa ert me\u00f0 h\u00e9rna,&#8220; sag\u00f0i heldsalinn hress \u00ed brag\u00f0i.<\/p>\n<p>,,Takk.&#8220;<\/p>\n<p>Borja vissi ekki hvort hann \u00e6tti einhverju s\u00e9rst\u00f6ku a\u00f0 \u00feakka \u00feessa heims\u00f3kn. Hann gat s\u00e9r \u00feess \u00fe\u00f3 til a\u00f0 ekki v\u00e6ri um kurteisisheims\u00f3kn a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.<\/p>\n<p>,,K\u00fanni?&#8220; spur\u00f0i heildsalinn og gaut augum \u00ed \u00e1tt til vi\u00f0skiptavinarins.<\/p>\n<p>,,Nei,&#8220; svar\u00f0i Borja. ,,E\u00f0a j\u00fa. E\u00f0a ekki \u00feannig sko.&#8220;<\/p>\n<p>Borja lei\u00f0 \u00ed \u00e1tt til vi\u00f0skiptavinarins. Hann var enn upptekinn vi\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 meistaradeildina og virtist ekki hafa teki\u00f0 eftir neinu.<\/p>\n<p>,,Einmitt!&#8220; sag\u00f0i heildsalinn. ,,\u00dea\u00f0 er einmitt \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6fum \u00e1hyggjur af. A\u00f0 \u00fe\u00fa farir a\u00f0 rugla saman vi\u00f0skiptavinum og vi\u00f0skiptavinum. Ef \u00fe\u00fa veist hva\u00f0 \u00e9g \u00e1 vi\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>,,J\u00e1,&#8220; Borja vissi hva\u00f0 hann \u00e1tti vi\u00f0.<\/p>\n<p>,,\u00c9g vil a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1ttir \u00feig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 verslum me\u00f0 afar vi\u00f0kv\u00e6man varning,&#8220; h\u00e9lt heildsalinn \u00e1fram alvarlegur \u00ed brag\u00f0i. ,,Vi\u00f0 erum svol\u00edti\u00f0 \u00e1hyggjufullir var\u00f0andi n\u00fdja vi\u00f0skiptam\u00f3deli\u00f0 \u00feitt. \u00dea\u00f0 fellst svol\u00edtil \u00e1h\u00e6tta \u00ed \u00fev\u00ed. Ef \u00fe\u00e9r ver\u00f0ur \u00e1 \u00ed messunni \u00fe\u00e1 viljum vi\u00f0 ekki a\u00f0 b\u00f6ndin berist a\u00f0 okkur. \u00de\u00fa skilur?&#8220;<\/p>\n<p>Borja skildi. Hann kinnka\u00f0i kolli.<\/p>\n<p>,,Gott,&#8220; sag\u00f0i heildsalinn og glotti. ,,Vi\u00f0 sty\u00f0jum \u00feig heils hugar svo framarlega sem vi\u00f0skiptam\u00f3deli\u00f0 gengur upp. \u00dea\u00f0 er alltaf gott a\u00f0 hafa hugmyndar\u00edka str\u00e1ka eins og \u00feig innanbor\u00f0s.&#8220;<\/p>\n<p>Borja langa\u00f0i a\u00f0 benda heildsalanum \u00e1 a\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0unin um a\u00f0 opna barinn &#8212; bakar\u00edi\u00f0, stofuna e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna &#8212; var h\u00f6f\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed huga a\u00f0 f\u00e6ra sig fyrir bor\u00f0. Hann vildi ekki vera innanbor\u00f0s. Hann vildi vera sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ur atvinnurekandi.<\/p>\n<p>,,Ef vel gengur m\u00e6tti athuga me\u00f0 a\u00f0 f\u00e6ra \u00fat kv\u00edarnar. Stofna ke\u00f0ju. Flytja vi\u00f0skiptam\u00f3deli\u00f0 til annarra borga.&#8220;<\/p>\n<p>Borja haf\u00f0i engan \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 stofna ke\u00f0ju e\u00f0a flytja vi\u00f0skiptam\u00f3deli\u00f0 til annarra borga.<\/p>\n<p>,,\u00c9g veit n\u00fa ekki hvort \u00e9g hafi \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 f\u00e6ra \u00fat kv\u00edarnar,&#8220; sag\u00f0i Borja varndr\u00e6\u00f0alega.<\/p>\n<p>,,\u00c9g var n\u00fa ekki a\u00f0 tala um a\u00f0 \u00fe\u00fa f\u00e6rir a\u00f0 f\u00e6ra \u00fat kv\u00edarnar. \u00c9g var n\u00fa a\u00f0 tala um okkur. \u00de\u00fa skilur.&#8220;<\/p>\n<p>,,Eh, j\u00e1.&#8220;<\/p>\n<p>Borja skildi. \u00dea\u00f0 rann upp fyrir honum a\u00f0 hann haf\u00f0i haft rangt fyrir s\u00e9r me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 geta or\u00f0i\u00f0 \u00f3h\u00e1\u00f0ur heildsalanum ef hann f\u00e6ri af sta\u00f0 me\u00f0 sitt eigi\u00f0 vi\u00f0skiptam\u00f3del. Hann var bara pe\u00f0 \u00ed fl\u00f3knu tafli sem gekk \u00fat \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 verja k\u00f3nginn. \u00deeir \u00fe\u00f6g\u00f0u. K\u00f3ngurinn, hr\u00f3karnir tveir og pe\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>,,\u00c9g tala\u00f0i vi\u00f0 David \u00ed morgun,&#8220; sag\u00f0i heildsalinn eins og hann haf\u00f0i allt \u00ed einu muna\u00f0 eftir einhverju sem hann haf\u00f0i gleymt.<\/p>\n<p>,,David?&#8220; spur\u00f0i Borja og fann fyrir hn\u00fat \u00ed maganum. ,,Leigusalann?&#8220;<\/p>\n<p>,,J\u00e1, David,&#8220; svara\u00f0i heildsalinn og glotti. ,,Fyrrverandi leigusalann!&#8220;<\/p>\n<p>,,Fyrrverandi leigusalann?&#8220;<\/p>\n<p>,,\u00c9g ger\u00f0i honum tilbo\u00f0 sem hann gat ekki hafna\u00f0,&#8220; sag\u00f0i heildsalinn og glotti. ,,Ef \u00fe\u00fa veist hva\u00f0 \u00e9g \u00e1 vi\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>Borja vissi hva\u00f0 hann \u00e1tti vi\u00f0. Hann hef\u00f0i svosem \u00e1tt a\u00f0 segja s\u00e9r \u00fea\u00f0 fyrir fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i ekki au\u00f0velt a\u00f0 komast undan h\u00e6l heildsalans. Hann haf\u00f0i hins vegar ekki b\u00faist vi\u00f0 a\u00f0 hann gengi svona langt til \u00feess a\u00f0 tryggja \u00e1hrif s\u00edn.<\/p>\n<p>,,David er n\u00fa samt enn sem komi\u00f0 er skr\u00e1\u00f0ur eigandi af \u00feessari kytru. \u00de\u00fa heldur bara \u00e1fram a\u00f0 borga honum leigu \u00feanga\u00f0 til \u00e9g segi anna\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>Heildsalinn star\u00f0i st\u00edft \u00ed augun \u00e1 Borja til \u00feess a\u00f0 fylgja or\u00f0um s\u00ednum eftir. Hann vildi l\u00e1ta \u00fea\u00f0 vera sk\u00fdrt hver haf\u00f0i t\u00f6glin og haldirnar. \u00dea\u00f0 var sk\u00fdrt. Borja gat ekki komi\u00f0 upp or\u00f0i. Heildsalinn t\u00f3k \u00fea\u00f0 sem merki um a\u00f0 \u00feeir skildu hvor annan.<\/p>\n<p>,,\u00dea\u00f0 var n\u00fa ekkert fleira,&#8220; sag\u00f0i heildsalinn og ger\u00f0i sig kl\u00e1rann til a\u00f0 halda s\u00edna lei\u00f0. ,,Gangi \u00fe\u00e9r vel!&#8220;<\/p>\n<p>Borja horf\u00f0i \u00e1 eftir heildsalanum hverfa \u00fat um dyrnar \u00e1 barnum, bakar\u00edinu, stofunni e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00fa var sem hann \u00e6tti a\u00f0 kalla b\u00falluna. Honum var lj\u00f3st a\u00f0 tafli\u00f0 haf\u00f0i sn\u00faist \u00ed h\u00f6ndunum \u00e1 honum. Tilraun hans til \u00feess a\u00f0 komast undan \u00e6givaldi heildsalans haf\u00f0i mistekist. Hann \u00e1tti ekki marga leiki \u00ed st\u00f6\u00f0unni. Ef hann vildi losna \u00far kl\u00f3m heildsalans yr\u00f0i hann a\u00f0 h\u00e6tta vi\u00f0skiptum vi\u00f0 hann og sn\u00faa s\u00e9r a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 selja einungis hef\u00f0bundi\u00f0 bakkelsi og bj\u00f3r.<\/p>\n<p>,,G\u00e6ti \u00e9g fengi\u00f0 tv\u00e6r b\u00f6kur \u00ed vi\u00f0b\u00f3t og einn bj\u00f3r?&#8220;<\/p>\n<p>Borja leit \u00e1 vi\u00f0skiptavininn. \u00dea\u00f0 var kominn h\u00e1lfleikur \u00ed meistaradeildinni. Borja brosti og h\u00f3fst handa vi\u00f0 a\u00f0 afgrei\u00f0a b\u00f6kurnar og bj\u00f3rinn. \u00dea\u00f0 yr\u00f0i ekki hlaupi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta enda n\u00e1 saman me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 selja einungis hef\u00f0bundi\u00f0 bakkelsi og bj\u00f3r. \u00c1tta li\u00f0a \u00farslit \u00ed meistaradeildinni og einn vi\u00f0skiptavinur. \u00dea\u00f0 var ekki g\u00e6fulegt vi\u00f0skiptam\u00f3del.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. Borja fyllist efasemdum um n\u00fdst\u00e1legt vi\u00f0skiptam\u00f3del sitt eftir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 heims\u00f3kn fr\u00e1 s\u00ednum helsta byrgja.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":1393,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":false,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[6],"class_list":["post-310","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-barir-kaffihus","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/04\/barinn.png?fit=2362%2C2362&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/310","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=310"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/310\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1962,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/310\/revisions\/1962"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1393"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=310"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=310"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=310"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}