{"id":312,"date":"2010-03-22T15:38:49","date_gmt":"2010-03-22T15:38:49","guid":{"rendered":"http:\/\/smafuglar.net\/2010\/03\/rigning-i-krakow\/"},"modified":"2025-04-19T18:18:46","modified_gmt":"2025-04-19T18:18:46","slug":"rigning-i-krakow","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/rigning-i-krakow\/","title":{"rendered":"Rigning \u00ed Krak\u00f3w"},"content":{"rendered":"\n<aside class=\"other-formats\">A\u00f0rar \u00fatg\u00e1fur: <a title=\"Rigning \u00ed Krak\u00f3w (PDF)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/ebooks\/is\/pdf\/rigning-i-krakow.pdf\">PDF<\/a> | <a title=\"Rain in Krak\u00f3w (english)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/en\/rain-in-krakow\/\">english<\/a> | <a title=\"Lluvia en Cracovia (espa\u00f1ol)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/es\/lluvia-en-cracovia\/\">espa\u00f1ol<\/a><\/aside>\n\n\n<div class=\"wp-block-image is-resized\">\n<figure class=\"alignright size-medium\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/krakow.png?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/krakow.png?resize=300%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"Rigning \u00ed Krak\u00f3w \u2014 Myndskreyting Yana Volkovich\" class=\"wp-image-496\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/krakow.png?resize=300%2C300&amp;ssl=1 300w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/krakow.png?resize=150%2C150&amp;ssl=1 150w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/krakow.png?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndskreyting Yana Volkovich<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>\u00c9g dusta\u00f0i dropana af regnjakkanum \u00ed anddyrinu \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00e9kk m\u00e9r s\u00e6ti \u00fat vi\u00f0 glugga \u00e1 n\u00e1nast mannlausu kaffih\u00fasinu. Pl\u00f6n m\u00edn h\u00f6f\u00f0u breyst. Eftir vikul\u00f6ng fundah\u00f6ld haf\u00f0i \u00e9g \u00fer\u00e1\u00f0 a\u00f0 komast \u00fat \u00ed ferskt loft. \u00c9g haf\u00f0i \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 nota \u00feessa helgi til \u00feess a\u00f0 r\u00f6lta um Krak\u00f3w. Kynnast borginnni betur og taka myndir. Ve\u00f0urgu\u00f0irnir h\u00f6f\u00f0u sett strik \u00ed reikninginn. \u00deeir h\u00f6f\u00f0u a\u00f0rar hugmyndir.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eCo dla Pana?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g leit \u00e1 afgrei\u00f0slust\u00falkuna sem haf\u00f0i \u00e1varpa\u00f0 mig. \u00c9g gat m\u00e9r til um a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 spyrja mig hvort \u00e9g vildi eitthva\u00f0. Hva\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti f\u00e6rt m\u00e9r. Eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eAfsaki\u00f0,\u201c svara\u00f0i \u00e9g \u00e1 ensku. \u201e\u00c9g tala ekki p\u00f3lsku.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00d3. \u00c9g var bara a\u00f0 spyrja \u00feig hvort \u00e9g g\u00e6ti f\u00e6rt \u00fe\u00e9r eitthva\u00f0,\u201c svara\u00f0i h\u00fan \u00e1 ensku. \u201e\u00c9g h\u00e9lt a\u00f0 \u00fe\u00fa v\u00e6rir P\u00f3lverji. \u00de\u00fa hefur eitthva\u00f0 svo p\u00f3lska \u00e1ru.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g panta\u00f0i m\u00e9r kaffi og einhvers konar brau\u00f0sn\u00fa\u00f0. Regni\u00f0 steyptist af himnum ofan. \u00c9g renndi augum yfir torgi\u00f0. \u00dea\u00f0 voru ekki margir \u00e1 ferli \u00ed rigningunni. \u00c9g var eini gesturinn \u00e1 kaffih\u00fasinu. \u00c9g t\u00f3k upp minnisb\u00f3kina m\u00edna og penna, me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed huga a\u00f0 setja \u00e1 bla\u00f0 l\u00fdsingu \u00e1 andr\u00famsloftinu \u00e1 kaffih\u00fasinu vi\u00f0 torgi\u00f0. \u00c9g g\u00e6ti hugsanlega spunni\u00f0 hana \u00fat \u00ed sm\u00e1s\u00f6gu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0an ertu?\u201c spur\u00f0i afgrei\u00f0slust\u00falkan um lei\u00f0 og h\u00fan f\u00e6r\u00f0i m\u00e9r kaffi\u00f0 og brau\u00f0sn\u00fa\u00f0inn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00cdslandi,\u201c svara\u00f0i \u00e9g. \u201eReykjav\u00edk.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00d3, \u00cdsland,\u201c sag\u00f0i h\u00fan dreymin \u00e1 svip og horf\u00f0i \u00fat um gluggann og yfir torgi\u00f0. \u201e\u00c9g hef heyrt a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 fallegt land. \u00dea\u00f0 eru v\u00edst margir P\u00f3lverjar sem hafa fari\u00f0 \u00feanga\u00f0 \u00ed leit a\u00f0 vinnu.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Afgrei\u00f0slukonan yfirgaf mig og h\u00e9lt til baka a\u00f0 barbor\u00f0inu. \u00c9g beit \u00ed brau\u00f0sn\u00fa\u00f0inn og f\u00e9kk m\u00e9r kaffisopa. \u00c9g leit \u00ed kringum mig, yfir torgi\u00f0 og n\u00e1nast autt kaffih\u00fasi\u00f0. Augu m\u00edn reyndu a\u00f0 fanga eitthva\u00f0 sem g\u00e6ti komi\u00f0 m\u00e9r af sta\u00f0 \u00ed s\u00f6guskrifum.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00e1v\u00e6r t\u00f3nlist glumdi \u00ed h\u00e1talarakerfinu \u00ed bland vi\u00f0 \u00e1kafar samr\u00e6\u00f0ur afgrei\u00f0slust\u00falknanna sem t\u00f6lu\u00f0u hvor \u00ed sinn s\u00edmann. \u00c9g skildi ekki hva\u00f0 \u00fe\u00e6r voru a\u00f0 segja en ger\u00f0i m\u00e9r \u00ed hugarlund a\u00f0 samt\u00f6l \u00feeirra v\u00e6ru heldur \u00f3l\u00edk. \u00c9g giska\u00f0i \u00e1 a\u00f0 \u00f6nnur v\u00e6ri a\u00f0 r\u00edfast vi\u00f0 m\u00f6mmu s\u00edna og hin v\u00e6ri a\u00f0 senda \u00e1star\u00f3\u00f0 til k\u00e6rastans. \u00d6nnur reifst en hin tala\u00f0i bl\u00edtt, ro\u00f0na\u00f0i af og til og hl\u00f3 feimnislegum hl\u00e1tri.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g er b\u00fain a\u00f0 segja \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0 oft a\u00f0 \u00e9g er ekki \u00e1 lei\u00f0inni til baka,\u201c hr\u00f3pa\u00f0i \u00f6nnur \u00feeirra \u00ed s\u00edmann &#8212; s\u00fa sem haf\u00f0i afgreitt mig. H\u00fan var or\u00f0in \u00fereytt \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig mamma hennar reyndi \u00ed hvert sinn sem \u00fe\u00e6r t\u00f6lu\u00f0u saman a\u00f0 f\u00e1 hana til \u00feess a\u00f0 sn\u00faa aftur til heimahaganna. H\u00fan var ekki \u00e1 lei\u00f0inni heim. H\u00fan haf\u00f0i gert upp vi\u00f0 sig a\u00f0 h\u00fan \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 dvelja \u00e1fram h\u00e9r \u00ed Krak\u00f3w og safna s\u00e9r inn pening til \u00feess a\u00f0 geta fari\u00f0 og sko\u00f0a\u00f0 heiminn. Mamma hennar h\u00e9lt enn \u00ed \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 h\u00fan myndi sn\u00faa aftur til \u00feorpsins og giftast prestssyninum. H\u00fan var hins vegar b\u00fain a\u00f0 gera upp vi\u00f0 sig a\u00f0 h\u00fan \u00e6tla\u00f0i ekki a\u00f0 giftast honum. \u00deeirra sambandi var loki\u00f0. \u00deau \u00e1ttu ekkert sameiginlegt lengur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deau h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 afar samr\u00fdmd \u00ed \u00e6sku &#8212; h\u00fan og sonur prestsins. \u00deau h\u00f6f\u00f0u leiki\u00f0 s\u00e9r saman. \u00deau h\u00f6f\u00f0u l\u00e1ti\u00f0 sig dreyma saman. \u00deau h\u00f6f\u00f0u \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 fer\u00f0ast saman og sko\u00f0a heiminn. \u00deau eyddu l\u00f6ngum stundum \u00ed a\u00f0 dreyma um fjarl\u00e6gar borgir \u00ed fjarl\u00e6gum heims\u00e1lfum. Heimurinn var \u00feeirra. \u00deau \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 sko\u00f0a hann. Draumar \u00feeirra voru \u00ed fyrstu ekki svo fjarl\u00e6gir. \u00deau dreymdi um evr\u00f3pskar borgir \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 London, Berl\u00edn og Par\u00eds. \u00deau f\u00e6r\u00f0u sig s\u00ed\u00f0an upp \u00e1 skafti\u00f0 og l\u00e9tu sig dreyma um fjarl\u00e6gari sta\u00f0i. Amer\u00edku. As\u00edu. Hugur \u00feeirra \u00e1tti engin landam\u00e6ri.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar \u00feau eltust byrju\u00f0u \u00feau sm\u00e1m saman a\u00f0 fjarl\u00e6gjast hvort anna\u00f0. H\u00fan h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 l\u00e1ta sig dreyma um fjarl\u00e6g l\u00f6nd. Hann ger\u00f0ist heimak\u00e6rari. Hann \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 feta \u00ed spor f\u00f6\u00f0ur s\u00edns og taka vi\u00f0 prestakallinu \u00ed \u00feorpinu. Presturinn kalla\u00f0i. Hann h\u00e6tti sm\u00e1m saman a\u00f0 dreyma um veraldlega heima. Andlegi heimurinn \u00e1tti hug hans allan. Hans heimur innih\u00e9lt einungis f\u00f3lki\u00f0 \u00ed \u00feorpinu og samband \u00feeirra vi\u00f0 gu\u00f0. Hann haf\u00f0i reynt a\u00f0 sannf\u00e6ra hana um a\u00f0 standa vi\u00f0 hli\u00f0 s\u00e9r sem prestsfr\u00fa. Hann gafst hins vegar upp \u00feegar hann s\u00e1 a\u00f0 hann g\u00e6ti ekki sannf\u00e6rt hana.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g ger\u00f0i hl\u00e9 \u00e1 s\u00f6guskrifum og skrifa\u00f0i sj\u00e1lfum m\u00e9r athugasemd um a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 athuga \u00fea\u00f0 vi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri hvort ka\u00fe\u00f3lskir prestar g\u00e6tu yfirh\u00f6fu\u00f0 gift sig. \u00c9g efa\u00f0ist. \u00c9g var ekki viss um a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u00e1 r\u00e9ttri lei\u00f0 me\u00f0 \u00feessa s\u00f6gu. \u00c9g setti \u00fev\u00ed loki\u00f0 \u00e1 pennann og leit yfir torgi\u00f0. \u00dea\u00f0 rigndi enn eins og hellt v\u00e6ri \u00far f\u00f6tu. \u00dea\u00f0 voru f\u00e1ir vi\u00f0skiptavinir sem l\u00e9tu sj\u00e1 sig til \u00feess a\u00f0 kaupa \u00ed matinn \u00e1 marka\u00f0num. S\u00f6luf\u00f3lki\u00f0 h\u00edmdi undir tj\u00f6ldunum og stakk saman nefjum. Voru \u00feau a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um ve\u00f0ri\u00f0? Voru \u00feau a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um \u00fea\u00f0 hvernig ve\u00f0ri\u00f0 setti strik \u00ed reikninginn hj\u00e1 \u00feeim? Efnahagsreikninginn. \u00c9g l\u00e1\u00f0i \u00feeim \u00fea\u00f0 ekki. \u00dea\u00f0 var vart hundi \u00fat sigandi. Hva\u00f0 \u00fe\u00e1 m\u00e9r. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed ekki anna\u00f0 \u00ed st\u00f6\u00f0unni en a\u00f0 taka loki\u00f0 af pennanum \u00e1 n\u00fd og halda \u00e1fram a\u00f0 skrifa.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dej\u00f3nustust\u00falkan sem haf\u00f0i rifist \u00ed s\u00edmann var n\u00fa ein vi\u00f0 st\u00f6rf. Hin var horfin \u00e1 braut. H\u00fan haf\u00f0i kannski hlaupi\u00f0 \u00ed fang k\u00e6rastans eftir eldheitt s\u00edmtali\u00f0. S\u00fa sem eftir var drap t\u00edmann me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feurrka af barnum.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00f3ttina fyrir \u00e1tj\u00e1n \u00e1ra afm\u00e6li\u00f0 sitt pakka\u00f0i h\u00fan helstu nau\u00f0synjum ni\u00f0ur \u00ed t\u00f6sku. Sk\u00f6mmu fyrir dagrenningu lauma\u00f0ist h\u00fan \u00fat \u00far h\u00fasinu \u00e1n \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta nokkurn \u00ed s\u00e9r heyra. H\u00fan skrifa\u00f0i br\u00e9f til m\u00f3\u00f0ur sinnar og f\u00f6\u00f0ur. H\u00fan sag\u00f0i \u00feeim fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 fara og sko\u00f0a heiminn. H\u00fan sag\u00f0i \u00feeim a\u00f0 hafa ekki \u00e1hyggjur af s\u00e9r. H\u00fan v\u00e6ri fullor\u00f0in og g\u00e6ti bjarga\u00f0 s\u00e9r. H\u00fan sag\u00f0ist myndu hringja.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan kom til Krak\u00f3w r\u00e9tt fyrir h\u00e1degi og byrja\u00f0i strax a\u00f0 r\u00f6lta \u00e1 milli veitingasta\u00f0a \u00ed leit a\u00f0 vinnu. H\u00fan haf\u00f0i heyrt a\u00f0 veitingah\u00fas og kaffih\u00fas v\u00e6ru v\u00e6nlegasta lei\u00f0in til \u00feess a\u00f0 finna s\u00e9r vinnu. Atvinnuleitin var hins vegar ekki eins au\u00f0veld og h\u00fan haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 sig dreyma um. Enginn vildi r\u00e1\u00f0a \u00f3reynda st\u00falku \u00far sveitinni. Undir kv\u00f6ld s\u00e6tti h\u00fan sig vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan \u00e6tti ekki eftir a\u00f0 finna vinnu strax. H\u00fan haf\u00f0i safna\u00f0i saman n\u00e6gilegri peningaupph\u00e6\u00f0 til \u00feess a\u00f0 gista \u00e1 \u00f3d\u00fdrasta gistiheimili borgarinnar \u00ed nokkrar n\u00e6tur. H\u00fan g\u00e6ti bjarga\u00f0 s\u00e9r \u00ed tv\u00e6r til \u00ferj\u00e1r n\u00e6tur.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00e6sta dag h\u00e9lt h\u00fan atvinnuleitinni \u00e1fram. H\u00fan gafst upp \u00e1 veitingast\u00f6\u00f0unum og sneri s\u00e9r a\u00f0 b\u00f6rum og kaffih\u00fasum. H\u00fan setti marki\u00f0 h\u00e1tt \u00ed byrjun og gekk milli f\u00ednu kaffih\u00fasanna. Sm\u00e1m saman missti h\u00fan m\u00f3\u00f0inn og f\u00e6r\u00f0i sig yfir \u00e1 mi\u00f0ur f\u00edna sta\u00f0i. \u00cd lok dags haf\u00f0i henni tekist a\u00f0 finna s\u00e9r vinnu sem uppvaskari og afgrei\u00f0slust\u00falka \u00e1 bar \u00ed mi\u00f0b\u00e6num. Vinnudagurinn var langur. Kaupi\u00f0 var l\u00e1gt. H\u00fan n\u00e1\u00f0i samt a\u00f0 framfleyta s\u00e9r. H\u00fan stalst til a\u00f0 bor\u00f0a gamalt brau\u00f0 og anna\u00f0 sem gekk af \u00ed lok dags.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deannig li\u00f0u fyrstu vikurnar \u00ed heiminum utan \u00feorpsins. L\u00edfi\u00f0 var langt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem h\u00fan haf\u00f0i gert s\u00e9r \u00ed hugarlund \u00ed draumum s\u00ednum. H\u00fan hugsa\u00f0i hins vegar alltaf me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri bara byrjunin. Hlutirnir myndu lagast \u00feegar fram \u00ed s\u00f3tti.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00fa var \u00e1r s\u00ed\u00f0an h\u00fan flutti til borgarinnar. \u00cd dag h\u00e9lt h\u00fan upp \u00e1 n\u00edtj\u00e1n \u00e1ra afm\u00e6li\u00f0 sitt \u00ed kyrr\u00feey. H\u00fan haf\u00f0i fyrir l\u00f6ngu tapa\u00f0 t\u00f6lu \u00e1 \u00feeim fj\u00f6lda bara og kaffih\u00fasa sem h\u00fan haf\u00f0i unni\u00f0 \u00e1. H\u00fan haf\u00f0i sm\u00e1m saman n\u00e1\u00f0 a\u00f0 vinna sig upp. H\u00fan var fjarri draumnum um a\u00f0 sko\u00f0a heiminn. H\u00fan neita\u00f0i hins vegar a\u00f0 gefast upp. H\u00fan h\u00e9lt drauminum \u00e1 l\u00edfi. H\u00fan \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 komast til Berl\u00ednar, London e\u00f0a Par\u00edsar eins flj\u00f3tt og h\u00fan g\u00e6ti.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan hringdi heim einu sinni \u00ed viku til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta foreldra s\u00edna vita a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri allt \u00ed lagi me\u00f0 hana. H\u00fan sag\u00f0i \u00feeim hins vegar ekki hvar h\u00fan v\u00e6ri e\u00f0a hva\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 gera. H\u00fan vildi halda \u00feeim \u00ed h\u00e6filegri fjarl\u00e6g\u00f0. Hvert s\u00edmtal enda\u00f0i me\u00f0 rifrildi vi\u00f0 m\u00f3\u00f0ur hennar sem vildi f\u00e1 hana heim \u00ed \u00feorpi\u00f0. H\u00fan st\u00f3\u00f0 hins vegar f\u00f6st \u00e1 s\u00ednu. H\u00fan h\u00e9lt \u00ed drauminn um a\u00f0 sko\u00f0a heiminn.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan sat fyrir aftan barbor\u00f0i\u00f0 og horf\u00f0i \u00fat \u00e1 torgi\u00f0. \u00dea\u00f0 rigndi eins og hellt v\u00e6ri \u00far f\u00f6tu. Kaffih\u00fasi\u00f0 var n\u00e6stum t\u00f3mt. \u00datlendingur me\u00f0 gleraugu, barta og h\u00f6kutopp sat \u00fat vi\u00f0 gluggann, drakk kaffi og skrifa\u00f0i \u00ed minnisb\u00f3k af mikilli \u00e1kef\u00f0. Fyrst h\u00e9lt h\u00fan a\u00f0 hann v\u00e6ri p\u00f3lskur. Hann haf\u00f0i hins vegar ekki skili\u00f0 neitt \u00feegar h\u00fan \u00e1varpa\u00f0i hann og spur\u00f0i hva\u00f0 m\u00e6tti bj\u00f3\u00f0a honum. Hann haf\u00f0i sagst vera fr\u00e1 \u00cdslandi. Henni fannst \u00fea\u00f0 framandi. \u00cd \u00f6llum \u00feeim dagdraumum sem h\u00f6f\u00f0u bori\u00f0 hana um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld \u00fe\u00e1 haf\u00f0i h\u00fan aldrei fer\u00f0ast til \u00cdslands. H\u00fan haf\u00f0i heyrt \u00fe\u00f3nokkur d\u00e6mi um landa s\u00edna sem hef\u00f0u gert \u00fea\u00f0 gott \u00e1 \u00feessari dularfullu og fjarl\u00e6gu eyju. Satt best a\u00f0 segja \u00fe\u00e1 hlj\u00f3ma\u00f0i Reykjav\u00edk ekki n\u00e6rri jafn a\u00f0la\u00f0andi og Berl\u00edn, London e\u00f0a Par\u00eds. H\u00fan \u00e6tti \u00fe\u00f3 kannski ekki a\u00f0 \u00fatiloka neitt \u00ed \u00feessum efnum. H\u00fan velti \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 spyrja \u00cdslendinginn um nafnspjald ef svo f\u00e6ri a\u00f0 h\u00fan skellti s\u00e9r til Reykjav\u00edkur \u00ed atvinnuleit.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00fa hefur breyst miki\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan hr\u00f6kk upp og leit \u00e1 vi\u00f0skiptavin sem haf\u00f0i laumast inn \u00e1 kaffih\u00fasi\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 h\u00fan t\u00e6ki eftir \u00fev\u00ed. H\u00fan tr\u00fa\u00f0i varla s\u00ednum eigin augum. Hann haf\u00f0i einnig breyst. Hann var skeggja\u00f0ur og me\u00f0 gleraugu. Hann var fullor\u00f0nari. Hann leit frekar \u00fat fyrir a\u00f0 vera prestur heldur en sonur prestsins.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00fa l\u00edka,\u201c svara\u00f0i h\u00fan og fann ro\u00f0ann streyma fram \u00ed kinnarnar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deau brostu vandr\u00e6\u00f0alega hvort til annars. \u00deau voru feimin. \u00deau sem h\u00f6f\u00f0u \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum leiki\u00f0 s\u00e9r saman \u00e1 hverjum degi og \u00feekkt hvort anna\u00f0 betur en nokkur annar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g er \u00e1 lei\u00f0inni til Par\u00edsar,\u201c sag\u00f0i hann og \u00fdtti gleraugunum betur upp \u00e1 nefi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan horf\u00f0i \u00e1 hann og vissi ekki hvort h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 brosa e\u00f0a gr\u00e1ta. Hana haf\u00f0i dreymt a\u00f0 heyra \u00feessi or\u00f0 svo lengi. \u00cd \u00f6\u00f0ru samhengi \u00fe\u00f3. Hana haf\u00f0i dreymt um a\u00f0 \u00feau f\u00e6ru saman til Par\u00edsar. H\u00fan svara\u00f0i ekki.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g vil a\u00f0 \u00fe\u00fa komir me\u00f0 m\u00e9r,\u201c sag\u00f0i hann og brosti vandr\u00e6\u00f0alega.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan vissi ekki hverju h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 svara. H\u00fan vissi ekki hverju hana langa\u00f0i til a\u00f0 svara. \u00dea\u00f0 var of langt li\u00f0i\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00feau l\u00e1gu saman \u00ed grasinu fyrir utan \u00feorpi\u00f0 og l\u00e9tu sig dreyma um a\u00f0 fara saman til Par\u00edsar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g er a\u00f0 fara \u00ed prestask\u00f3la \u00ed Par\u00eds. \u00c9g vil a\u00f0 \u00fe\u00fa komir me\u00f0 m\u00e9r. \u00c9g er me\u00f0 litla \u00edb\u00fa\u00f0 \u00e1 vegum sk\u00f3lans.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan brosti. Hann haf\u00f0i elst og \u00feroskast en hann var enn\u00fe\u00e1 einfaldur sveitastr\u00e1kur inni vi\u00f0 beini\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 heldur \u00fe\u00fa a\u00f0 prestak\u00f3linn segi \u00feegar \u00fe\u00fa kemur me\u00f0 kvenmann me\u00f0 \u00fe\u00e9r til Par\u00edsar. \u00d3giftur prestneminn?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Hann \u00feag\u00f0i og horf\u00f0i \u00e1 hana \u00f3viss \u00e1 svip. Hann haf\u00f0i greinilega ekki hugsa\u00f0 \u00feetta til enda. Hann leit undan og star\u00f0i \u00e1 fl\u00f6skurnar \u00e1 barnum. H\u00fan \u00feurrka\u00f0i \u00edmynda\u00f0a bleytu af \u00feurru barbor\u00f0inu. \u00deau \u00fe\u00f6g\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g segi \u00feeim a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt systir m\u00edn. \u00c9g segi \u00feeim a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt me\u00f0 m\u00e9r til \u00feess a\u00f0 hj\u00e1lpa m\u00e9r \u00e1 me\u00f0an \u00e9g stunda n\u00e1mi\u00f0. Til a\u00f0 \u00fevo \u00fevott, elda og svolei\u00f0is.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Hann horf\u00f0i \u00e1 hana \u00e1 n\u00fd. Hann var sakleysi\u00f0 uppm\u00e1la\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 mun aldrei ganga upp. \u00dea\u00f0 er betra a\u00f0 \u00fe\u00fa farir einn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan f\u00e9kk k\u00f6kk \u00ed h\u00e1lsinn um lei\u00f0 og h\u00fan sag\u00f0i \u00feetta. H\u00fan sneri s\u00e9r vi\u00f0 og lauma\u00f0ist til \u00feess a\u00f0 \u00feurrka t\u00e1r sem haf\u00f0i myndast \u00ed \u00f6\u00f0rum augnkr\u00f3knum. H\u00fan g\u00e6ti ekki fari\u00f0 me\u00f0 honum. Ekki \u00e1 \u00feessum forsendum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEf \u00fe\u00fa skiptir um sko\u00f0un \u00fe\u00e1 er h\u00e9rna heimilisfangi\u00f0 mitt \u00ed Par\u00eds. \u00c9g legg af sta\u00f0 \u00ed kv\u00f6ld.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Hann r\u00e9tti henni nafnspjald eil\u00edti\u00f0 skj\u00e1lfhenntur. H\u00fan t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed og velti \u00fev\u00ed milli fingra s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g skrifa \u00fe\u00e9r kannski br\u00e9f.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan sag\u00f0i \u00feetta til \u00feess a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00fan t\u00e6ki vi\u00f0 spjaldinu. H\u00fan vildi ekki a\u00f0 hann h\u00e9ldi a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 hugsa um a\u00f0 fara \u00e1 eftir honum til Par\u00edsar. H\u00fan vildi ekki vekja upp falsvonir \u00ed huga hans.<\/p>\n\n\n\n<p>Hann kvaddi og h\u00e9lt s\u00edna lei\u00f0. Um lei\u00f0 og hann hvarf \u00fat um dyrnar \u00e1 kaffih\u00fasinu fann h\u00fan hvernig tilfinningarnar helltust yfir hana. T\u00e1rin streymdu ni\u00f0ur kinnar hennar. \u00dea\u00f0 var ekkert sem h\u00fan gat gert til \u00feess a\u00f0 halda aftur af \u00feeim. Henni var\u00f0 hugsa\u00f0 til baka til \u00feess t\u00edma \u00feegar \u00feau dreymdi um a\u00f0 sko\u00f0a heiminn saman. S\u00e1 draumur haf\u00f0i aldrei veri\u00f0 eins n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e6tast. Hann virtist samt svo fjarl\u00e6gur. H\u00fan \u00f3ska\u00f0i a\u00f0 hann g\u00e6ti r\u00e6st en vissi a\u00f0 \u00fea\u00f0 var \u00fatiloka\u00f0. \u00deau h\u00f6f\u00f0u fjarl\u00e6gst hvort anna\u00f0 um of. Hann var enn\u00fe\u00e1 sveitastr\u00e1kur. H\u00fan var or\u00f0in borgarstelpa. \u00deau voru of \u00f3l\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g leit upp \u00far minnisb\u00f3kinni og yfir torgi\u00f0. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i stytt upp. \u00c9g hugsa\u00f0i a\u00f0 m\u00e9r v\u00e6ri ekkert a\u00f0 vanb\u00fana\u00f0i a\u00f0 standa upp og gera alv\u00f6ru \u00far \u00feeirri \u00e1\u00e6tlun minni a\u00f0 r\u00f6lta um borgina. \u00deessi sm\u00e1saga g\u00e6ti be\u00f0i\u00f0 betri t\u00edma. \u00c9g var hvort sem er ekki viss um \u00fea\u00f0 hvort h\u00fan v\u00e6ri efni \u00ed nokku\u00f0. \u00c9g vissi ekki n\u00f3gu miki\u00f0 um l\u00edf ungra ka\u00fe\u00f3lskra presta \u00ed p\u00f3lskum \u00feorpum til \u00feess a\u00f0 gera s\u00f6guna tr\u00faver\u00f0uga. \u00c9g pakka\u00f0i minnisb\u00f3kinni ni\u00f0ur \u00ed t\u00f6sku, gekk a\u00f0 barnum og ger\u00f0i upp reikninginn. Krak\u00f3w bei\u00f0 m\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eH\u00e9rna \u00e9r nafnspjaldi\u00f0 mitt,\u201c sag\u00f0i \u00e9g um lei\u00f0 og \u00e9g borga\u00f0i fyrir kaffi\u00f0. \u201e\u00de\u00fa getur haft samband ef \u00fe\u00fa l\u00e6tur \u00fe\u00e9r detta \u00ed hug a\u00f0 fara til Reykjav\u00edkur \u00ed atvinnuleit.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g var hissa \u00e1 sj\u00e1lfum m\u00e9r fyrir a\u00f0 hafa gefi\u00f0 afgrei\u00f0slust\u00falkunni nafnspjaldi\u00f0 mitt. \u00c9g haf\u00f0i einhvern veginn gert \u00feetta \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt. Kannski \u00e1tti \u00e9g \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 greina \u00e1 milli \u00feess hva\u00f0 var raunveruleiki og hva\u00f0 tilheyr\u00f0i sm\u00e1s\u00f6gunni sem \u00e9g haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 skrifa.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fan horf\u00f0i \u00e1 eftir \u00fatlendingnum yfirgefa kaffih\u00fasi\u00f0 og ganga \u00fat \u00e1 torgi\u00f0. H\u00fan leit aftur \u00e1 nafnspjaldi\u00f0. Henni flaug \u00ed hug hvort h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 taka bo\u00f0inu. \u00cd versta falli g\u00e6ti h\u00fan b\u00fai\u00f0 hj\u00e1 honum \u00ed nokkra daga \u00e1 me\u00f0an h\u00fan leita\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 vinnu og k\u00e6mi s\u00e9r sj\u00e1lf fyrir. H\u00fan stakk mi\u00f0anum \u00ed vasann. H\u00fan myndi sofa \u00e1 \u00feessu og \u00e1kve\u00f0a sig s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<aside class=\"wp-block-group book-ad has-text-color has-background\" style=\"color:#000000;background-color:#257ea9\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-media-text is-stacked-on-mobile\" style=\"grid-template-columns:33% auto\"><figure class=\"wp-block-media-text__media\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"765\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=765%2C1024&#038;ssl=1\" alt=\"999 Erlendis \u2014 K\u00e1puh\u00f6nnun Ana Pi\u00f1eyro\" class=\"wp-image-1572 size-full\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=765%2C1024&amp;ssl=1 765w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=224%2C300&amp;ssl=1 224w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=768%2C1028&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=900%2C1204&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=500%2C669&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 765px) 100vw, 765px\" \/><\/figure><div class=\"wp-block-media-text__content\">\n<h4 class=\"wp-block-heading\">999 Erlendis<\/h4>\n\n\n\n<p>\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu 999 Erlendis.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>999 Erlendis <\/em>f\u00e6st sem kilja hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.com\/999-Erlendis-Icelandic-B%C3%B6rkur-Sigurbj%C3%B6rnsson\/dp\/9935946665\/\">Amazon<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.barnesandnoble.com\/w\/999-erlendis-b-rkur-sigurbj-rnsson\/1143728608\">Barnes and Noble<\/a>. Rafb\u00e6kur f\u00e1st hj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.amazon.com\/999-Erlendis-Icelandic-B-rkur-Sigurbj-rnsson-ebook\/dp\/B00PP3V3QW\/\">Kindle Store<\/a>, <a href=\"https:\/\/books.apple.com\/us\/book\/999-erlendis\/id1397156790\">Apple Books<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.kobo.com\/us\/en\/ebook\/999-erlendis\">Kobo<\/a>, and <a href=\"https:\/\/www.storytel.com\/is\/is\/books\/999-erlendis-2028494\">Storytel<\/a>.<\/p>\n\n\n\n<p>Ennig m\u00e1 styrkja h\u00f6fundinn \u00ed gegnum <a href=\"https:\/\/patreon.com\/UrbanVolcano\">Patreon<\/a> og <a href=\"https:\/\/buymeacoffee.com\/borkur\">Buy Me a Coffee<\/a> e\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa b\u00f3kinni einkunn \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.goodreads.com\/book\/show\/58061201-999-erlendis\">Goodreads<\/a>.<\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-buttons is-horizontal is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-buttons-is-layout-499968f5 wp-block-buttons-is-layout-flex\">\n<div class=\"wp-block-button has-custom-width wp-block-button__width-50\"><a class=\"wp-block-button__link has-text-color has-background wp-element-button\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/999-erlendis\/\" style=\"border-radius:50px;color:#ffffff;background-color:#000000\">n\u00e1nari uppl\u00fdsingar<\/a><\/div>\n<\/div>\n<\/div><\/aside>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. Fer\u00f0ama\u00f0ur er strandagl\u00f3pi \u00e1 kaffih\u00fasi \u00ed Krak\u00e1 vegna rigningar og byrjar a\u00f0 geta s\u00e9r til um hugarheim afgrei\u00f0slust\u00falkunnar.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":496,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":false,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[6,53],"class_list":["post-312","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-barir-kaffihus","tag-um-skriftir","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/krakow.png?fit=1024%2C1024&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/312","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=312"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/312\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2496,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/312\/revisions\/2496"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/496"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=312"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=312"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=312"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}