{"id":313,"date":"2010-03-10T20:33:10","date_gmt":"2010-03-10T20:33:10","guid":{"rendered":"http:\/\/smafuglar.net\/2010\/03\/hvad-borda-fiskar\/"},"modified":"2025-04-19T18:19:35","modified_gmt":"2025-04-19T18:19:35","slug":"hvad-borda-fiskar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/hvad-borda-fiskar\/","title":{"rendered":"Hva\u00f0 bor\u00f0a fiskar?"},"content":{"rendered":"\n<aside class=\"other-formats\">A\u00f0rar \u00fatg\u00e1fur: <a title=\"Hva\u00f0 bor\u00f0a fiskar? (PDF)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/ebooks\/is\/pdf\/hvad-borda-fiskar.pdf\">PDF<\/a> | <a title=\"What do fish eat? (english)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/en\/what-do-fish-eat\/\">english<\/a> | <a title=\"\u00bfQu\u00e9 comen los peces? (espa\u00f1ol)\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/es\/que-comen-los-peces\/\">espa\u00f1ol<\/a><\/aside>\n\n\n<div class=\"wp-block-image is-resized\">\n<figure class=\"alignright size-medium\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/fish.png?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"300\" height=\"300\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/fish.png?resize=300%2C300&#038;ssl=1\" alt=\"Hva\u00f0 bor\u00f0a fiskar? \u2014 Myndskreyting Yana Volkovich\" class=\"wp-image-497\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/fish.png?resize=300%2C300&amp;ssl=1 300w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/fish.png?resize=150%2C150&amp;ssl=1 150w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/fish.png?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndskreyting Yana Volkovich<\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 bor\u00f0a fiskar?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sneri m\u00e9r vi\u00f0 \u00ed s\u00e6tinu og leit \u00ed \u00e1ttina til skrifstofudyranna \u00fear sem vinnuf\u00e9lagi minn st\u00f3\u00f0 og horf\u00f0i \u00e1 mig spurnaraugum. \u00c9g star\u00f0i \u00e1 hann og hika\u00f0i vi\u00f0 a\u00f0 svara. Spurningin haf\u00f0i komi\u00f0 m\u00e9r \u00ed opna skj\u00f6ldu. Hva\u00f0 bor\u00f0a fiskar? Var \u00feetta einhvers konar \u00feraut? Var \u00feetta or\u00f0aleikur? Var \u00feetta spurning um matar\u00e6\u00f0i fiska almennt? \u00de\u00f3 svo a\u00f0 spurningin v\u00e6ri \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r afar einf\u00f6ld \u00fe\u00e1 gat \u00e9g engan veginn \u00e1tta\u00f0 mig \u00e1 henni. Hva\u00f0 gat hugsanlega vaka\u00f0 fyrir vinnuf\u00e9laganum? \u00c9g var helst \u00e1 \u00feeirri sko\u00f0un a\u00f0 um einhvers konar fur\u00f0ulegan brandara v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00fa ert fr\u00e1 \u00cdslandi, er \u00fea\u00f0 ekki?\u201c spur\u00f0i vinnuf\u00e9laginn eftir a\u00f0 hafa gefist upp \u00e1 a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir svari vi\u00f0 upphaflegu spurningunni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00fa,\u201c svara\u00f0i \u00e9g en var ekki viss um \u00fea\u00f0 hvernig s\u00fa sta\u00f0reynd tengdist m\u00e1linu. \u00deetta var \u00fe\u00e1 l\u00edklega ekki brandari. Ekki nema \u00fej\u00f3\u00f0erni mitt v\u00e6ri hluti af spauginu. \u00c9g var efins.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00e1 hl\u00fdtur \u00fe\u00fa a\u00f0 vita eitthva\u00f0 um matar\u00e6\u00f0i fiska,\u201c h\u00e9lt vinnuf\u00e9laginn fram. \u00deetta gat ekki veri\u00f0 brandari. Vinnuf\u00e9laginn var of alvarlegur \u00e1 svipinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 fer held \u00e9g eftir \u00fev\u00ed um hva\u00f0a fisktegund r\u00e6\u00f0ir,\u201c svara\u00f0i \u00e9g spekingslega en jafnframt heldur \u00f3sannf\u00e6randi. \u201e\u00c9g held a\u00f0 sumir fiskar bor\u00f0i svif og a\u00f0rir kannski r\u00e6kjur. Annars ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 \u00e9g veit afskaplega l\u00edti\u00f0 um matar\u00e6\u00f0i fiska. \u00c9g er meira fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 bor\u00f0a fisk heldur en a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed \u00fea\u00f0 hva\u00f0 fiskar bor\u00f0a.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g var ekkert a\u00f0 \u00fdkja me\u00f0 \u00feekkingarleysi mitt um matar\u00e6\u00f0i fiska. Ef \u00e9g haf\u00f0i einhvern t\u00edmann l\u00e6rt um matar\u00e6\u00f0i fiska \u00ed l\u00edffr\u00e6\u00f0i \u00e1 m\u00ednum yngri \u00e1rum \u00fe\u00e1 var \u00e9g svo sannarlega l\u00f6ngu b\u00fainn a\u00f0 gleyma \u00feeim fr\u00e6\u00f0um. \u00dea\u00f0 var \u00fe\u00f3 ekki minnisleysi mitt sem kom m\u00e9r mest \u00e1 \u00f3vart \u00feessa stundina. \u00c9g var enn a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hva\u00f0 g\u00e6ti hugsanlega vaka\u00f0 fyrir vinnuf\u00e9laga m\u00ednum. \u00dear sem vi\u00f0 vorum b\u00e1\u00f0ir doktorsnemar \u00ed heldur l\u00edflausum fr\u00e6\u00f0um &#8212; \u00e9g \u00ed t\u00f6lvunarfr\u00e6\u00f0i og hann \u00ed r\u00f6kfr\u00e6\u00f0i &#8212; \u00fe\u00e1 var matar\u00e6\u00f0i fiska ekki beinl\u00ednis hef\u00f0bundi\u00f0 umr\u00e6\u00f0uefni okkar \u00e1 milli.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn svona fiskar \u00ed b\u00farum?\u201c spur\u00f0i vinnuf\u00e9laginn. \u201eGullfiskar. Hva\u00f0 bor\u00f0a \u00feeir?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eFiskaf\u00f3\u00f0ur. Geri \u00e9g r\u00e1\u00f0 fyrir,\u201c svara\u00f0i \u00e9g og fannst \u00e9g svara spurningunni \u00e1 heldur \u00f3sannf\u00e6randi h\u00e1tt. S\u00e9r \u00ed lagi s\u00f6kum \u00feess hversu auglj\u00f3st svari\u00f0 var. R\u00f6kfr\u00e6\u00f0ingurinn \u00e6tti ekki a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 f\u00e1 hj\u00e1lp fr\u00e1 t\u00f6lvunarfr\u00e6\u00f0ingnum til \u00feess a\u00f0 komast a\u00f0 \u00feessari ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 h\u00e9lt \u00e9g einnig,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn og kinka\u00f0i kolli.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 \u00fe\u00f6g\u00f0um. Vinnuf\u00e9laginn star\u00f0i upp \u00ed lofti\u00f0 og virtist \u00ed \u00feungum \u00fe\u00f6nkum. \u00c9g var forvitinn um a\u00f0 vita hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var sem leiddi hann \u00fat \u00e1 \u00feessar brautir. Hva\u00f0 var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 umr\u00e6\u00f0ur okkar ur\u00f0u allt \u00ed einu svona l\u00edflegar. E\u00f0a l\u00edffr\u00e6\u00f0ilegar, r\u00e9ttara sagt.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHv\u00ed spyr\u00f0u annars?\u201c spur\u00f0i \u00e9g til \u00feess a\u00f0 svala forvitni minni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eStelpan sem \u00e9g leigi me\u00f0 f\u00f3r \u00ed nokkurra daga fer\u00f0alag og skildi eftir mi\u00f0a til \u00feess a\u00f0 minna mig \u00e1 a\u00f0 gefa fiskunum hennar a\u00f0 bor\u00f0a. H\u00fan sag\u00f0i hins vegar ekkert um \u00fea\u00f0 hva\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 gefa \u00feeim a\u00f0 bor\u00f0a, hven\u00e6r, e\u00f0a hversu miki\u00f0. \u00c9g er \u00fev\u00ed h\u00e1lf-r\u00e1\u00f0\u00ferota.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eErtu viss um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki fiskaf\u00f3\u00f0ur \u00ed n\u00e1nd vi\u00f0 b\u00fari\u00f0?\u201c spur\u00f0i \u00e9g heldur vantr\u00faa\u00f0ur \u00e1 a\u00f0 vandam\u00e1l vinnuf\u00e9lagans v\u00e6ri eins fl\u00f3ki\u00f0 og hann vildi vera l\u00e1ta.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g leita\u00f0i en fann ekki neitt,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn og horf\u00f0i dreyminn \u00fat \u00ed lofti\u00f0 eins og hann v\u00e6ri a\u00f0 fara yfir \u00fea\u00f0 \u00ed huganum hvernig hann haf\u00f0i leita\u00f0 \u00e1rangurslaust a\u00f0 f\u00f3\u00f0rinu. \u201eHvernig l\u00edtur annars fiskaf\u00f3\u00f0ur \u00fat?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dear sem \u00e9g haf\u00f0i aldrei \u00e1tt gullfiska \u00fe\u00e1 var \u00e9g enginn kunn\u00e1ttuma\u00f0ur \u00ed \u00feessum efnum. \u00c9g minntist \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 \u00e6skuvin minn mylja einhvers konar gr\u00e6n lauf ofan \u00ed fiskana s\u00edna \u00ed gamla daga.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEftir \u00fev\u00ed sem \u00e9g veit best \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 eins og mulin gr\u00e6n lauf \u00ed einhvers konar litlum s\u00edv\u00f6lum stauk, e\u00f0a eitthva\u00f0 svolei\u00f0is.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 h\u00e9lt \u00e9g einnig. \u00c9g fann hins vegar ekkert sl\u00edkt \u00ed n\u00e1nd vi\u00f0 b\u00fari\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 kom m\u00e9r \u00e1 \u00f3vart hversu r\u00e1\u00f0\u00ferota vinnuf\u00e9laginn virtist gagnvart \u00feessu vandam\u00e1li. \u00c9g \u00feekkti hann betur sem einstakan snilling sem gat fundi\u00f0 svar vi\u00f0 hverri einustu spurningu sem kom upp \u00ed tengslum vi\u00f0 st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ilega r\u00f6kfr\u00e6\u00f0i. N\u00fa virtist hann gersamlega r\u00e1\u00f0\u00ferota. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 hj\u00e1lpa honum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 benda honum \u00e1 hi\u00f0 auglj\u00f3sa.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eGetur\u00f0u ekki bara fari\u00f0 \u00ed g\u00e6lud\u00fdraverslun og spurt \u00fe\u00e1 \u00fear?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eG\u00f3\u00f0ur punktur,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn og \u00fea\u00f0 virtist l\u00e9tta yfir honum \u00ed skamma stund \u00e1\u00f0ur en vonleysissvipurinn helltist yfir hann \u00e1 n\u00fd. \u201eVeistu hvar \u00e9g get fundi\u00f0 g\u00e6lud\u00fdraverslun?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g hugsa\u00f0i mig um \u00ed stundarkorn. Mig rak ekki minni \u00ed a\u00f0 hafa nokkru sinni komi\u00f0 auga \u00e1 g\u00e6lud\u00fdraverslun h\u00e9r \u00ed Amsterdam \u00e1 \u00feeim \u00feremur \u00e1rum sem \u00e9g haf\u00f0i b\u00fai\u00f0 \u00ed borginni. \u00c9g haf\u00f0i \u00fe\u00f3 aldrei leita\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei. \u00c9g man ekki eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 sl\u00edka verslun. Eins og \u00e9g segi \u00fe\u00e1 hef \u00e9g afar litla reynslu og \u00feekkingu \u00ed \u00feessum efnum. \u00deegar fiskar eru annars vegar \u00fe\u00e1 er \u00e9g vanalega \u00ed hlutverki \u00feess sem bor\u00f0ar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 ef \u00e9g reyni a\u00f0 n\u00fdta m\u00e9r \u00fe\u00edna reynslu \u00ed \u00feessum efnum \u00fe\u00e1 v\u00e6ri r\u00e9ttast hj\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 bor\u00f0a fiskana.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Vinnuf\u00e9laginn brosti. Hann var greinilega ekkert allt of \u00e1hyggjufullur yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa ekki fundi\u00f0 fulln\u00e6gjandi lausn \u00e1 vandam\u00e1li s\u00ednu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00fa ert r\u00f6kfr\u00e6\u00f0ingurinn,\u201c svara\u00f0i \u00e9g. \u201e\u00c9g m\u00e6li \u00fev\u00ed ekki \u00e1 m\u00f3ti \u00feessari r\u00f6ksemdaf\u00e6rslu \u00feinni. \u00de\u00fa \u00e6ttir \u00fe\u00f3 kannski a\u00f0 g\u00fagla g\u00e6lud\u00fdraverslun \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fa eldar fiskinn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eTakk. \u00c9g reyni a\u00f0 finna eitthva\u00f0 \u00fat \u00far \u00feessu. \u00cd versta falli g\u00e6ti \u00e9g dotti\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 g\u00f3\u00f0a gullfiskauppskrift.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>*****<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHva\u00f0 er \u00feetta?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sneri m\u00e9r vi\u00f0 \u00ed s\u00e6tinu og leit \u00ed \u00e1ttina til skrifstofudyranna \u00fear sem vinnuf\u00e9lagi minn st\u00f3\u00f0 sk\u00e6lbrosandi me\u00f0 s\u00edvalningslaga stauk \u00ed annarri h\u00f6nd. \u00c9g gat ekki betur s\u00e9\u00f0 en a\u00f0 um v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a stauk me\u00f0 \u00feurrka\u00f0ri steinselju.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSteinselja?\u201c spur\u00f0i \u00e9g sakleysislega.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eFiskaf\u00f3\u00f0ur?\u201c spur\u00f0i vinnuf\u00e9laginn \u00e1 m\u00f3ti og r\u00e9tti m\u00e9r staukinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei. Steinselja,\u201c svara\u00f0i \u00e9g \u00f6ruggur me\u00f0 mig eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 \u00e1 staukinn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eErtu viss um a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 ekki fiskaf\u00f3\u00f0ur?\u201c spur\u00f0i vinnuf\u00e9laginn og brosi\u00f0 hvarf af v\u00f6rum hans.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, \u00e9g er handviss um \u00fea\u00f0. \u00deetta er krydd til \u00feess a\u00f0 setja yfir fiskinn \u00e1\u00f0ur en hann fer \u00ed ofninn. Ekki f\u00f3\u00f0ur til \u00feess a\u00f0 gefa honum a\u00f0 bor\u00f0a.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn ef ma\u00f0ur g\u00e6fi fisknum \u00feetta a\u00f0 bor\u00f0a. Myndi \u00fea\u00f0 ska\u00f0a hann?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g er ekki viss. \u00c9g veit hins vegar a\u00f0 steinselja er tilvalin ef \u00fe\u00fa \u00e6tlar a\u00f0 baka fiskinn \u00ed ofni. Gafstu fiskunum steinselju?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn heldur sk\u00f6mmustulega.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvers vegna \u00ed \u00f3sk\u00f6punum?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g gat ekki sta\u00f0ist \u00fea\u00f0 a\u00f0 hl\u00e6ja a\u00f0 \u00f3f\u00f6rum vinnuf\u00e9lagans. \u00c9g reyndi \u00fe\u00f3 a\u00f0 halda aftur af m\u00e9r \u00fear sem honum virtist ekki hl\u00e1tur \u00ed huga.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g f\u00f3r heim \u00ed g\u00e6r me\u00f0 l\u00fdsingu \u00fe\u00edna \u00e1 fiskaf\u00f3\u00f0ri \u00ed huganum. \u00deegar \u00e9g kom heim leita\u00f0i \u00e9g a\u00f0 stauk fullum af gr\u00e6num \u00feurrku\u00f0um laufum. \u00deetta var \u00fea\u00f0 eina sem \u00e9g fann sem passa\u00f0i vi\u00f0 skilgreininguna.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eFannstu steinseljuna \u00ed n\u00e1munda vi\u00f0 fiskab\u00fari\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eTja, ekki beint vi\u00f0 fiskab\u00fari\u00f0, heldur inni \u00ed eldh\u00fassk\u00e1p.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eKannski milli saltsins og piparsins?\u201c spur\u00f0i \u00e9g og gat ekki haldi\u00f0 aftur af kvikindislegu glotti.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1. Einmitt. \u00cd s\u00f6mu hillu.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00e9r hefur ekki dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 fyrst a\u00f0 staukurinn var \u00ed s\u00f6mu hillu og salti\u00f0 og piparinn a\u00f0 \u00fea\u00f0 g\u00e6ti veri\u00f0 um einhvers konar krydd a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Krydd sem var \u00e6tla\u00f0 til matarger\u00f0ar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eNei, raunar flaug \u00fea\u00f0 m\u00e9r ekki \u00ed hug. \u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00e9g hafi veri\u00f0 of upptekinn vi\u00f0 a\u00f0 leita a\u00f0 fiskaf\u00f3\u00f0ri til \u00feess a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed \u00fea\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn \u00fe\u00fa gafst sem sagt fiskunum a\u00f0 bor\u00f0a \u00far stauknum?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn og var heldur fl\u00f3ttalegur til augnanna. Hann virtist vera a\u00f0 \u00e1tta sig betur \u00e1 \u00fev\u00ed hvers konar axarskaft hann haf\u00f0i gert.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg bor\u00f0u\u00f0u \u00feeir steinseljuna?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEins og s\u00e6lg\u00e6ti,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn og \u00fea\u00f0 l\u00e9tti yfir honum eins og hann v\u00e6ri a\u00f0 rifja upp gle\u00f0istund \u00far fort\u00ed\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEru \u00feeir enn \u00e1 l\u00edfi?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, \u00feeir voru \u00fea\u00f0 a\u00f0 minnsta kosti \u00feegar \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 heiman \u00ed morgun.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00dea\u00f0 getur \u00fe\u00e1 veri\u00f0 a\u00f0 steinselja s\u00e9 f\u00ednasta fiskaf\u00f3\u00f0ur,\u201c sag\u00f0i \u00e9g hughreystandi. \u201e\u00c9g myndi n\u00fa samt g\u00fagla \u201efiskab\u00fa\u00f0\u201c ef svo f\u00e6ri a\u00f0 langt\u00edma\u00e1hrif steinseljuneyslu gullfiska v\u00e6ru ekki eins j\u00e1kv\u00e6\u00f0 og l\u00edtur \u00fat vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g hef \u00fea\u00f0 \u00ed huga. Takk fyrir g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 \u00fea\u00f0 hvarf vinnuf\u00e9laginn \u00fat af skrifstofunni me\u00f0 steinseljustaukinn \u00ed annarri h\u00f6nd.<\/p>\n\n\n\n<p>*****<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEr e\u00f0lilegt a\u00f0 fiskar skipti um lit?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sneri m\u00e9r vi\u00f0. Vinnuf\u00e9laginn var m\u00e6ttur \u00ed dyrag\u00e6ttina \u00feri\u00f0ja daginn \u00ed r\u00f6\u00f0 me\u00f0 fisk-tengda spurningu \u00e1 v\u00f6rum. \u00de\u00f3 \u00e9g v\u00e6ri or\u00f0inn \u00fdmsu vanur var\u00f0andi spurningar f\u00e9lagans \u00fe\u00e1 var \u00feessi spurning s\u00fa skr\u00fdtnasta.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHa?\u201c spur\u00f0i \u00e9g til \u00feess a\u00f0 fullvissa mig um \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i heyrt r\u00e9tt.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEr e\u00f0lilegt a\u00f0 fiskar skipti um lit?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g haf\u00f0i a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum heyrt r\u00e9tt. A\u00f0 minnsta kosti haf\u00f0i \u00e9g heyrt hi\u00f0 sama tvisvar \u00ed r\u00f6\u00f0. M\u00e9r var\u00f0 hugsa\u00f0 til steinseljunnar og gat vart haldi\u00f0 aftur af brosi \u00feegar \u00e9g \u00edmynda\u00f0i m\u00e9r frostpinnagr\u00e6na gullfiska synda fram og til baka \u00ed b\u00farinu s\u00ednu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, \u00e9g held a\u00f0 sumir fiskar geti a\u00f0laga\u00f0 sig a\u00f0 umhverfinu til \u00feess a\u00f0 for\u00f0ast a\u00f0 vera \u00e9tnir af \u00f6\u00f0rum sj\u00e1vard\u00fdrum,\u201c svara\u00f0i \u00e9g spekingslegur \u00e1 svip en haf\u00f0i \u00fe\u00f3 grun um a\u00f0 spurningin v\u00e6ri ekki almenns e\u00f0lis. \u00c9g gat \u00fe\u00f3 ekki seti\u00f0 \u00e1 m\u00e9r og b\u00e6tti vi\u00f0. \u201eSem d\u00e6mi m\u00e1 geta \u00feess a\u00f0 skata og a\u00f0rir flatfiskar geta skipt um lit til \u00feess a\u00f0 l\u00edta eins \u00fat og sj\u00e1varbotninn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g meina gullfiskar. Er e\u00f0liegt a\u00f0 \u00feeir skipti um lit? Fari fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera gulir yfir \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera gr\u00e6nir?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHafa fiskarnir sem \u00fe\u00fa gafst steinseljuna skipt um lit?\u201c spur\u00f0i \u00e9g jafnframt \u00fev\u00ed sem \u00e9g reyndi a\u00f0 k\u00e6fa hl\u00e1tur sem \u00f3lga\u00f0i \u00ed brj\u00f3sti m\u00ednu. \u201eEru \u00feeir or\u00f0nir gr\u00e6nir?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn og virtist heldur stressa\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn \u00feeir eru sem sagt \u00e1 l\u00edfi.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, en gr\u00e6nir.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g var\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 \u00feetta vandam\u00e1l vinnuf\u00e9laga m\u00edns haf\u00f0i veri\u00f0 m\u00e9r ofvi\u00f0a allt fr\u00e1 upphafi og haf\u00f0i ekki einfaldast eftir \u00fev\u00ed sem fram li\u00f0u stundir.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c9g ver\u00f0, satt best a\u00f0 segja, a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 \u00e9g hef ekki n\u00e6ga reynslu af \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3\u00f0ra gullfiska \u00e1 steinselju til a\u00f0 \u00e9g geti sagt til um \u00fea\u00f0 hvort \u00feetta s\u00e9u e\u00f0lileg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0. \u00c9g get hins vegar sta\u00f0fest a\u00f0 ofnbaka\u00f0ur fiskur me\u00f0 steinselju skiptir ekki um lit. E\u00f0a ver\u00f0ur a\u00f0 minnsta kosti ekki gr\u00e6nn.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>*****<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00c1ttu Sipser?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g sneri m\u00e9r vi\u00f0. Vinnuf\u00e9laginn var enn \u00e1 n\u00fd m\u00e6ttur \u00ed dyrag\u00e6ttina. \u00c9g t\u00f3k m\u00e9r nokkrar sek\u00fandur til \u00feess a\u00f0 melta spurninguna. H\u00fan var \u00f3e\u00f0lileg a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 h\u00fan var \u00f3sk\u00f6p e\u00f0lileg. \u00deetta var spurning sem h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r a\u00f0 r\u00f6kfr\u00e6\u00f0inemi spyr\u00f0i vinnuf\u00e9laga sinn t\u00f6lvunarfr\u00e6\u00f0inginn. \u00dear sem \u00e9g var hins vegar or\u00f0inn svo vanur \u00fev\u00ed undanfari\u00f0 a\u00f0 heyra undarlegar spurningar fr\u00e1 vinnuf\u00e9laganum \u00fe\u00e1 hlj\u00f3ma\u00f0i \u00feessi spurning \u00f3e\u00f0lilega e\u00f0lileg.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00de\u00fa meinar <em>Introduction to the Theory of Computation<\/em>?\u201c spur\u00f0i \u00e9g til a\u00f0 vera viss um a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i skili\u00f0 spurninguna r\u00e9tt og a\u00f0 ekki v\u00e6ri um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a einhver undarleg tengsl vi\u00f0 matar\u00e6\u00f0i e\u00f0a umbreytingar gullfiska.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, \u00e9g \u00fearf a\u00f0 fletta upp einni skilgreiningu.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g r\u00e9tti honum b\u00f3kina og sag\u00f0i a\u00f0 hann g\u00e6ti teki\u00f0 hana me\u00f0 s\u00e9r og skila\u00f0 henni seinna. Hann \u00feakka\u00f0i fyrir sig og hug\u00f0ist sn\u00faa til baka \u00e1 s\u00edna skrifstofu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eHvernig enda\u00f0i \u00feetta me\u00f0 fiskana?\u201c spur\u00f0i \u00e9g \u00e1\u00f0ur en hann yfirgaf sv\u00e6\u00f0i\u00f0. \u201eLif\u00f0u \u00feeir af steinseljuna?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, j\u00e1,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn sk\u00f6mmustulega. \u201e\u00deeir voru a\u00f0 v\u00edsu gr\u00e6nir \u00ed viku. Stelpan sem \u00e9g leigi me\u00f0 f\u00e9kk sjokk \u00feegar h\u00fan kom heim. H\u00fan h\u00e9lt \u00e9g hef\u00f0i drepi\u00f0 fiskana og skipt \u00feeim \u00fat.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eEn \u00feeir j\u00f6fnu\u00f0u sig aftur?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1, j\u00e1. \u00deeir eru aftur gulir og s\u00e6lir.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eSpur\u00f0ir \u00fe\u00fa hana \u00fat \u00ed fiskaf\u00f3\u00f0ri\u00f0?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1,\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn og leit fl\u00f3ttalega \u00ed kringum sig en virtist ekki l\u00edklegur til \u00feess a\u00f0 or\u00f0lengja svari\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eOg?\u201c spur\u00f0i \u00e9g til \u00feess a\u00f0 reyna a\u00f0 draga svari\u00f0 upp \u00far honum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eM\u00e1li\u00f0 var a\u00f0 staukurinn me\u00f0 fiskaf\u00f3\u00f0rinu var ofan \u00e1 mi\u00f0anum sem h\u00fan skildi eftir. \u00c9g h\u00e9lt hins vegar a\u00f0 um kryddstauk v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og setti hann inn \u00ed \u00edssk\u00e1p.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e\u00cdssk\u00e1p?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>\u201eJ\u00e1.\u201c svara\u00f0i vinnuf\u00e9laginn sk\u00f6mmustulega. \u201eHvernig var \u00fea\u00f0 annars, ertu b\u00fainn a\u00f0 lei\u00f0a \u00fat efri m\u00f6rk fl\u00e6kjustigsins fyrir reikniriti\u00f0 sem \u00fe\u00fa varst a\u00f0 vinna a\u00f0 \u00ed s\u00ed\u00f0asta m\u00e1nu\u00f0i?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>Vinnuf\u00e9laginn var greinilega b\u00fainn a\u00f0 f\u00e1 n\u00f3g af \u00fev\u00ed a\u00f0 tala um fiska.<\/p>\n\n\n\n<aside class=\"wp-block-group book-ad has-text-color has-background\" style=\"color:#000000;background-color:#257ea9\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-flow wp-block-group-is-layout-flow\">\n<div class=\"wp-block-media-text is-stacked-on-mobile\" style=\"grid-template-columns:33% auto\"><figure class=\"wp-block-media-text__media\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"765\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=765%2C1024&#038;ssl=1\" alt=\"999 Erlendis \u2014 K\u00e1puh\u00f6nnun Ana Pi\u00f1eyro\" class=\"wp-image-1572 size-full\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=765%2C1024&amp;ssl=1 765w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=224%2C300&amp;ssl=1 224w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=768%2C1028&amp;ssl=1 768w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=900%2C1204&amp;ssl=1 900w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?resize=500%2C669&amp;ssl=1 500w, https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2012\/08\/999_Erlendis.jpg?w=1024&amp;ssl=1 1024w\" sizes=\"auto, (max-width: 765px) 100vw, 765px\" \/><\/figure><div class=\"wp-block-media-text__content\">\n<h4 class=\"wp-block-heading\">999 Erlendis<\/h4>\n\n\n\n<p>\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu 999 Erlendis.<\/p>\n\n\n\n<p>Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n<p><em>999 Erlendis <\/em>f\u00e6st sem kilja hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.amazon.com\/999-Erlendis-Icelandic-B%C3%B6rkur-Sigurbj%C3%B6rnsson\/dp\/9935946665\/\">Amazon<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.barnesandnoble.com\/w\/999-erlendis-b-rkur-sigurbj-rnsson\/1143728608\">Barnes and Noble<\/a>. Rafb\u00e6kur f\u00e1st hj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.amazon.com\/999-Erlendis-Icelandic-B-rkur-Sigurbj-rnsson-ebook\/dp\/B00PP3V3QW\/\">Kindle Store<\/a>, <a href=\"https:\/\/books.apple.com\/us\/book\/999-erlendis\/id1397156790\">Apple Books<\/a>, <a href=\"https:\/\/www.kobo.com\/us\/en\/ebook\/999-erlendis\">Kobo<\/a>, and <a href=\"https:\/\/www.storytel.com\/is\/is\/books\/999-erlendis-2028494\">Storytel<\/a>.<\/p>\n\n\n\n<p>Ennig m\u00e1 styrkja h\u00f6fundinn \u00ed gegnum <a href=\"https:\/\/patreon.com\/UrbanVolcano\">Patreon<\/a> og <a href=\"https:\/\/buymeacoffee.com\/borkur\">Buy Me a Coffee<\/a> e\u00f0a me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa b\u00f3kinni einkunn \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.goodreads.com\/book\/show\/58061201-999-erlendis\">Goodreads<\/a>.<\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-buttons is-horizontal is-content-justification-center is-layout-flex wp-container-core-buttons-is-layout-499968f5 wp-block-buttons-is-layout-flex\">\n<div class=\"wp-block-button has-custom-width wp-block-button__width-50\"><a class=\"wp-block-button__link has-text-color has-background wp-element-button\" href=\"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/999-erlendis\/\" style=\"border-radius:50px;color:#ffffff;background-color:#000000\">n\u00e1nari uppl\u00fdsingar<\/a><\/div>\n<\/div>\n<\/div><\/aside>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. R\u00f6kfr\u00e6\u00f0ingur og t\u00f6lvunarfr\u00e6\u00f0ingur r\u00e6\u00f0a saman um matar\u00e6\u00f0i fiska en komast a\u00f0 heldur \u00f3r\u00f6kr\u00e9ttri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":497,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":false,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[44,46],"class_list":["post-313","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-dyr","tag-vinnustadir","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2010\/03\/fish.png?fit=1024%2C1024&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/313","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=313"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/313\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2497,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/313\/revisions\/2497"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/497"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=313"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=313"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=313"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}