\u00c9g renndi \u201eFerrarinum\u201c ni\u00f0ur kverkarnar. \u00dea\u00f0 f\u00f3r um mig hrollur og \u00e9g f\u00e9kk h\u00f3stakast. \u00c9g h\u00f6ndla\u00f0i \u00feessi skot ekki s\u00e9rstaklega vel. Vodka og Tia Maria var ekki upp\u00e1halds blandan m\u00edn.<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g staula\u00f0ist h\u00f3standi inn eftir kr\u00e1nni. \u00deetta var nokku\u00f0 d\u00e6miger\u00f0 \u00edrsk kr\u00e1 \u00ed gotneska hverfinu \u00ed Barcelona. H\u00fasn\u00e6\u00f0i\u00f0 var \u00fer\u00f6ngt en langt. Frammi vi\u00f0 dyrnar st\u00f3\u00f0 barbor\u00f0i\u00f0. Innan vi\u00f0 barinn var r\u00fdmi me\u00f0 bor\u00f0um og st\u00f3lum. \u00c9g staula\u00f0ist inn \u00ed innri hlutann \u00fear sem b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 deyfa lj\u00f3sin og ra\u00f0a st\u00f3lum upp \u00e1 bor\u00f0 til \u00feess a\u00f0 fl\u00fdta fyrir \u00ferifum sem voru \u00e1 n\u00e6sta leiti. \u00dea\u00f0 var br\u00e1tt kominn t\u00edmi \u00e1 lokun.<\/p>\n\n\n\n
H\u00f3stinn h\u00e9lt \u00e1fram. \u00deetta yr\u00f0i mitt s\u00ed\u00f0asta skot. \u00c9g \u00e6tla\u00f0i h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 a\u00f0 skipta yfir \u00ed vodka-tonic.<\/p>\n\n\n\n
\u201eEr allt \u00ed lagi me\u00f0 \u00feig?\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g r\u00fdndi inn \u00ed myrkri\u00f0 og reyndi a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0an r\u00f6ddin barst. \u00c9g s\u00e1 ekki neitt sem gat hafa varpa\u00f0 fram \u00feessum or\u00f0um. \u00c9g s\u00e1 bara bor\u00f0 og st\u00f3la.<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00c9g er h\u00e9rna.\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g r\u00fdndi betur inn \u00ed myrkri\u00f0 og markvisst \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1tt \u00fea\u00f0an sem r\u00f6ddin barst. \u00c9g gekk lengra inn eftir kr\u00e1nni og s\u00e1 hvar h\u00fan sat ein vi\u00f0 bor\u00f0 \u00ed myrkrinu og saup \u00e1 Coronita bj\u00f3r.<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00c9g heiti Julia,\u201c sag\u00f0i h\u00fan \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i gengi\u00f0 yfir a\u00f0 bor\u00f0inu hennar. R\u00f6ddin minnti mig \u00e1 enska b\u00ed\u00f3mynd fr\u00e1 fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugnum. \u00c9g var a\u00f0 v\u00edsu ekki viss um a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i nokkurn t\u00edmann s\u00e9\u00f0 enska b\u00ed\u00f3mynd fr\u00e1 fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugnum en \u00fea\u00f0 var samt sem \u00e1\u00f0ur \u00fea\u00f0 fyrsta sem m\u00e9r datt \u00ed hug. M\u00e9r var\u00f0 hugsa\u00f0 til st\u00falkunnar \u00ed Pygmalion. E\u00f0a var \u00fea\u00f0 Mary Poppins? H\u00fan var ensk, var \u00fea\u00f0 ekki? \u00c9g mundi \u00fea\u00f0 ekki. \u00c9g hugsa\u00f0i ekkert s\u00e9rlega sk\u00fdrt. \u00c9g var of drukkinn.<\/p>\n\n\n\n
\u201eS\u00e6l Julie. \u00c9g heiti Vilhelm,\u201c sag\u00f0i \u00e9g. \u201eHvers vegna situr \u00fe\u00fa ein \u00fe\u00edns li\u00f0s \u00ed myrkrinu?\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki,\u201c svara\u00f0i h\u00fan. \u201eOg \u00e9g heiti Julia. Hvers vegna sest \u00fe\u00fa ekki bara h\u00e9rna hj\u00e1 m\u00e9r. \u00de\u00e1 er \u00e9g ekki lengur ein m\u00edns li\u00f0s.\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g hika\u00f0i og virti hana fyrir m\u00e9r. \u00dea\u00f0 var eitthva\u00f0 s\u00e9rstakt vi\u00f0 \u00feessa st\u00falku. H\u00fan var einstaklega sakleysisleg \u00ed \u00fatliti. Einfalt og hreint var \u00fea\u00f0 fyrsta sem m\u00e9r datt \u00ed hug til \u00feess a\u00f0 l\u00fdsa \u00fatliti hennar. H\u00fan leit \u00fat eins og engill. A\u00f0 bj\u00f3rfl\u00f6skunni fr\u00e1talinni. Mig minnti ekki til \u00feess a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i nokkurn t\u00edmann s\u00e9\u00f0 engil me\u00f0 bj\u00f3rfl\u00f6sku. Ef \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 var fari\u00f0 \u00fe\u00e1 haf\u00f0i \u00e9g \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r aldrei s\u00e9\u00f0 engil. Me\u00f0 e\u00f0a \u00e1n Coronita bj\u00f3rfl\u00f6sku. \u00c9g hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 losa \u00feessa englahugsun \u00far kollinum. \u00c9g hugsa\u00f0i ekki sk\u00fdrt. \u00c9g haf\u00f0i drukki\u00f0 of m\u00f6rg skot.<\/p>\n\n\n\n
\u201eHvers vegna kemur \u00fe\u00fa ekki fram \u00ed lj\u00f3si\u00f0 og blandar ge\u00f0i vi\u00f0 okkur?\u201c spur\u00f0i \u00e9g og benti \u00ed \u00e1tt til vina minna sem st\u00f3\u00f0u vi\u00f0 barbor\u00f0i\u00f0. \u201eVinir m\u00ednir eru \u00fearna.\u201c<\/p>\n\n\n\n
H\u00fan svara\u00f0i ekki strax. \u00dea\u00f0 var eins og h\u00fan \u00feyrfti a\u00f0 hugsa sig vel um \u00e1\u00f0ur en h\u00fan t\u00e6ki \u00e1kv\u00f6r\u00f0un.<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00c9g veit ekki hvort \u00e9g \u00e6tti,\u201c svara\u00f0i h\u00fan og horf\u00f0i \u00e1 Coronita fl\u00f6skuna. H\u00fan ro\u00f0na\u00f0i og virtist feimin. \u201eOg \u00fe\u00f3. Kannski a\u00f0 \u00e9g geri \u00fea\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n
H\u00fan st\u00f3\u00f0 \u00e1 f\u00e6tur og vi\u00f0 gengum \u00ed \u00e1tt a\u00f0 barbor\u00f0inu \u00fear sem vinir m\u00ednir voru vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 panta annan umgang af vodka og Tia Maria bl\u00f6ndu.<\/p>\n\n\n\n
\u201eHva\u00f0an ertu?\u201c spur\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n
\u201eAusturr\u00edki,\u201c svara\u00f0i h\u00fan. \u201eEn \u00fe\u00fa?\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00cdslandi.\u201c \u00c9g halla\u00f0i m\u00e9r fram \u00e1 barbor\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 fanga athygli vina minna. \u201eStr\u00e1kar! \u00deetta er Julie. Fr\u00e1 Austurr\u00edki.\u201c<\/p>\n\n\n\n
Vinirnir t\u00f3ku ekki strax vi\u00f0 s\u00e9r enda uppteknir vi\u00f0 a\u00f0 taka vi\u00f0 n\u00e6stu umfer\u00f0 af vodka-skotum. \u00deeir sneru s\u00e9r \u00fe\u00f3 vi\u00f0 \u00feegar staupin voru komin \u00ed \u00feeirra hendur.<\/p>\n\n\n\n
\u201eHver?\u201c spur\u00f0i Patrick.<\/p>\n\n\n\n
\u201eH\u00fan,\u201c svara\u00f0i \u00e9g og sneri m\u00e9r a\u00f0 Julie. \u00c9g greip \u00ed t\u00f3mt. H\u00fan var horfin. A\u00f0 baki m\u00e9r s\u00e1 \u00e9g ekkert nema h\u00e1lffulla Coronita fl\u00f6sku sem st\u00f3\u00f0 \u00e1 barbor\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n
\u201eHver?\u201c spur\u00f0i Danny.<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki,\u201c svara\u00f0i \u00e9g um lei\u00f0 og \u00e9g t\u00f3k vi\u00f0 staupinu sem Patrick r\u00e9tti m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n
\u201eFyrir Vilhelm! Og hans \u00edmyndu\u00f0u vini!\u201c hr\u00f3pa\u00f0i Danny \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 skelltum \u00ed okkur skotunum.<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g h\u00f3sta\u00f0i \u00e1 n\u00fd og m\u00e9r var\u00f0 hugsa\u00f0 til Julie. Var h\u00fan virkilega \u00edmyndun m\u00edn? L\u00edklega. \u00c9g var sannarlega n\u00e6gilega drukkinn til \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 ofsj\u00f3nir. En hva\u00f0 me\u00f0 Coronita fl\u00f6skuna? \u00c9g snerti hana. \u00dear var ekki um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a neinar ofsj\u00f3nir. \u00c9g var\u00f0 ringla\u00f0ur og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 hugsa ekki um \u00feetta frekar. \u00c9g panta\u00f0i m\u00e9r \u00feess \u00ed sta\u00f0 vodka tonic.<\/p>\n\n\n\n
*****<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g halla\u00f0i m\u00e9r upp a\u00f0 glugga ne\u00f0anjar\u00f0arlestarinnar og loka\u00f0i augunum. Hvernig gat \u00feetta gerst? Hvers vegna ger\u00f0ist \u00feetta alltaf? \u00deetta \u00e1tti einungis a\u00f0 vera einfaldur kv\u00f6ldver\u00f0ur me\u00f0 vi\u00f0skiptavini. \u00c9g haf\u00f0i lofa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 halda ekki drykkju \u00e1fram eftir matinn. \u00c9g haf\u00f0i ekki sta\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 lofor\u00f0i\u00f0. \u00dea\u00f0 ger\u00f0ist of oft. Sem endursko\u00f0andi \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 mitt hlutverk a\u00f0 halda b\u00f3kunum r\u00e9ttu megin vi\u00f0 striki\u00f0. Hvers vegna gat \u00e9g ekki beitt s\u00f6mu t\u00e6kni \u00e1 mitt eigi\u00f0 l\u00edf? Af hverju gat \u00e9g ekki haldi\u00f0 mig r\u00e9ttu megin vi\u00f0 striki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n
Lestin renndi inn \u00e1 Joanic st\u00f6\u00f0ina. \u00dea\u00f0 var kominn t\u00edmi \u00e1 a\u00f0 halda heim \u00ed b\u00f3li\u00f0. \u00c9g st\u00f3\u00f0 upp og gekk a\u00f0 dyrum vagnsins. \u00c9g steig \u00fat \u00far vagninum og m\u00e6tti \u00fear augum ungrar st\u00falku sem steig inn \u00ed vagninn.<\/p>\n\n\n\n
\u201eJulie?\u201c spur\u00f0i \u00e9g um lei\u00f0 og \u00e9g sn\u00e9ri m\u00e9r vi\u00f0 \u00e1 pallinum til \u00feess a\u00f0 geta haldi\u00f0 augnsambandi vi\u00f0 st\u00falkuna.<\/p>\n\n\n\n
\u201eJulia!\u201c svara\u00f0i h\u00fan \u00ed \u00fe\u00e1 mund sem dyrnar loku\u00f0ust.<\/p>\n\n\n\n
Vi\u00f0 h\u00e9ldum augnsambandinu um stund \u00e1 me\u00f0an lestin mjaka\u00f0i s\u00e9r burt fr\u00e1 Joanic st\u00f6\u00f0inni og hvarf inn \u00ed myrkri\u00f0. L\u00edkt og nokkrum d\u00f6gum fyrr \u00fe\u00e1 hvarf Julie inn \u00ed myrkri\u00f0. Ef h\u00fan haf\u00f0i \u00fe\u00e1 ekki veri\u00f0 \u00edmyndun m\u00edn. \u00c9g gat ekki gert m\u00e9r fulla grein fyrir m\u00f6rkunum milli \u00edmyndunar og raunveruleika. M\u00e9r lei\u00f0 eins og milli draums og v\u00f6ku. \u00c9g vissi satt best a\u00f0 segja ekki hvar m\u00f6rkin voru.<\/p>\n\n\n\n
*****<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g gekk eftir str\u00e6tinu og \u00ed gegnum \u00feykka \u00feokuna. \u00c9g \u00e1tta\u00f0i mig ekki \u00e1 \u00fev\u00ed hvar \u00e9g var staddur. \u00c9g \u00feekkti ekki g\u00f6tuna. Enginn var \u00e1 ferli. N\u00e6stum enginn. Allt \u00ed einu heyr\u00f0i \u00e9g kvenmannsr\u00f6dd innan \u00far \u00feokunni.<\/p>\n\n\n\n
Byr\u00f0i betri
ber-at ma\u00f0ur brautu a\u00f0
en s\u00e9 mannvit miki\u00f0.
Vegnest verra
vegur-a hann velli a\u00f0
en s\u00e9 ofdrykkja \u00f6ls.<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g kanna\u00f0ist vi\u00f0 kv\u00e6\u00f0i\u00f0. Ef m\u00e9r skj\u00e1tla\u00f0ist ekki \u00fe\u00e1 var \u00feetta v\u00edsa \u00far H\u00e1vam\u00e1lum — forn viska um \u00fea\u00f0 hvernig \u00e6tti a\u00f0 lifa l\u00edfinu.<\/p>\n\n\n\n
Er-a svo gott
sem gott kve\u00f0a
\u00f6l alda sonum,
\u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6rra veit
er fleira drekkur
s\u00edns til ge\u00f0s gumi.<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g r\u00fdndi \u00ed \u00feokuna og s\u00e1 \u00f3greinilegar \u00fatl\u00ednur manneskju sem gekk \u00ed \u00e1ttina til m\u00edn. \u00c9g gat ekki greint andlit hennar en r\u00f6ddin hlj\u00f3ma\u00f0i kunnuglega. \u00c9g haf\u00f0i heyrt hana einhvern t\u00edmann \u00e1\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n
\u00d3minnishegri heitir
s\u00e1 er yfir \u00f6ldrum \u00ferumir.
Hann stelur ge\u00f0i guma.
\u00deess fugls fj\u00f6\u00f0rum
eg fj\u00f6tra\u00f0ur var\u2018g
\u00ed gar\u00f0i Gunnla\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n
Eftir a\u00f0 hafa loki\u00f0 vi\u00f0 erindi\u00f0 steig r\u00f6ddin \u00fat \u00far \u00feokunni. \u00c9g s\u00e1 hver \u00feetta var. \u00c9g horf\u00f0ist \u00ed augu vi\u00f0 austurr\u00edsku st\u00falkuna sem \u00e9g haf\u00f0i hitt fyrir tilviljun \u00ed tv\u00edgang \u00e1 undanf\u00f6rnum d\u00f6gum. Julie. H\u00fan sta\u00f0n\u00e6mdist nokkrum skrefum fr\u00e1 m\u00e9r. \u00c1\u00f0ur en \u00e9g n\u00e1\u00f0i a\u00f0 spyrja hana hvers vegna h\u00fan \u00feuldi \u00edslenskar fornv\u00edsur \u00fe\u00e1 breyttist h\u00fan \u00ed tignarlegan fugl sem ba\u00f0a\u00f0i \u00fat v\u00e6ngjunum og flaug \u00e1 brott inn \u00ed \u00feokuna.<\/p>\n\n\n\n
*****<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g geispa\u00f0i \u00e1\u00f0ur en \u00e9g hringdi dyrabj\u00f6llunni. \u00c9g n\u00e1\u00f0i ekki a\u00f0 festa almennilega svefn eftir a\u00f0 hafa vakna\u00f0 upp fr\u00e1 fur\u00f0ulegum draum um austurr\u00edska st\u00falku sem f\u00f3r me\u00f0 \u00edslensk fornkv\u00e6\u00f0i og breyttist svo \u00ed fugl.<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g heilsa\u00f0i gestgjafa m\u00ednum og fylgdi honum fr\u00e1 \u00fatidyrunum inn \u00ed stofuna. Hann kynnti sig sem Xavi. \u00c9g haf\u00f0i aldrei hitt hann \u00e1\u00f0ur. Hann var vinur vinar m\u00edns. Hann og konan hans voru a\u00f0 undirb\u00faa stofnun eigin fyrirt\u00e6kis og vildu f\u00e1 r\u00e1\u00f0gj\u00f6f fr\u00e1 endursko\u00f0anda. \u00c9g haf\u00f0i fallist \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 bor\u00f0a me\u00f0 \u00feeim kv\u00f6ldver\u00f0 og gefa \u00feeim \u00feau r\u00e1\u00f0 sem \u00e9g \u00e1tti.<\/p>\n\n\n\n
\u201eF\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e9r s\u00e6ti og l\u00e1ttu fara vel um \u00feig,\u201c sag\u00f0i Xavi. \u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 athuga hvernig sta\u00f0an er \u00ed eldh\u00fasinu.\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g leit \u00ed kringum mig \u00ed stofunni sem var \u00e1hugaver\u00f0 blanda af n\u00fdjum og g\u00f6mlum t\u00edma. S\u00f3finn og st\u00f3larnir voru n\u00fdir — sem og m\u00e1lverkin \u00e1 veggjunum. Bor\u00f0 og sk\u00e1par voru hins vegar \u00far g\u00f6mlum vi\u00f0. \u00cd einu horninu var g\u00f6mul komm\u00f3\u00f0a sem vakti athygli m\u00edna. H\u00fan var alsett litlum myndar\u00f6mmum og skapa\u00f0i \u00f6mmulega stemmingu.<\/p>\n\n\n\n
Allar myndirnar virtust gamlar. \u00c9g gat hins vegar greint gestgjafa minn \u00e1 nokkrum myndanna og \u00e9g gat m\u00e9r \u00feess til a\u00f0 um v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a n\u00fdlegar myndir sem haf\u00f0i veri\u00f0 breytt me\u00f0 einhvers konar Instagram s\u00edu til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta \u00fe\u00e6r l\u00edta \u00fat fyrir a\u00f0 vera gamlar.<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g renndi augunum yfir myndirnar og stoppa\u00f0i vi\u00f0 eina sem f\u00e9kk hjarta\u00f0 til \u00feess a\u00f0 sl\u00e1 eil\u00edti\u00f0 hra\u00f0ar. \u00c9g gat ekki betur s\u00e9\u00f0 en a\u00f0 \u00e9g kanna\u00f0ist vi\u00f0 fyrirs\u00e6tuna \u00e1 myndinni. \u00c9g t\u00f3k hana upp til \u00feess a\u00f0 athuga m\u00e1li\u00f0 betur. L\u00edkt og hinar myndirnar \u00fe\u00e1 leit \u00feessi \u00fat fyrir a\u00f0 vera g\u00f6mul.<\/p>\n\n\n\n
\u201eJulie,\u201c sag\u00f0i \u00e9g upph\u00e1tt vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig til \u00feess a\u00f0 reyna a\u00f0 rifja upp nafn austurr\u00edsku st\u00falkunnar sem \u00e9g haf\u00f0i hitt nokkrum sinnum \u00ed v\u00f6ku og draumi undanfarna daga.<\/p>\n\n\n\n
\u201eJulia,\u201c sag\u00f0i kvenmannsr\u00f6dd a\u00f0 baki m\u00e9r. \u201eH\u00fan heitir Julia. S\u00e6ll. \u00c9g heiti N\u00faria.\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri betri helmingur gestgjafa minna sem haf\u00f0i komi\u00f0 inn \u00ed stofuna og gekk n\u00fa til m\u00edn me\u00f0 bros \u00e1 v\u00f6r.<\/p>\n\n\n\n
\u201eHvernig \u00feekkir\u00f0u Juliu?\u201c spur\u00f0i h\u00fan um lei\u00f0 og h\u00fan leit yfir \u00f6xl m\u00edna til \u00feess a\u00f0 fullvissa sig um a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum a\u00f0 tala um s\u00f6mu myndina.<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00c9g \u00feekki hana \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekki neitt,\u201c svara\u00f0i \u00e9g. \u201e\u00c9g hef hins vegar hitt hana af tilviljun nokkrum sinnum \u00e1 undanf\u00f6rnum d\u00f6gum.\u201c<\/p>\n\n\n\n
N\u00faria virti mig fyrir s\u00e9r og leit s\u00ed\u00f0an aftur \u00e1 myndina \u00ed hendi m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00dea\u00f0 getur ekki veri\u00f0,\u201c sag\u00f0i h\u00fan. \u201eJulia d\u00f3 fyrir fimm \u00e1rum. H\u00fan var amma m\u00edn.\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u201e\u00d3,\u201c sag\u00f0i \u00e9g bara til \u00feess a\u00f0 segja eitthva\u00f0. \u00c9g var ringla\u00f0ur vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g var viss um a\u00f0 konan \u00e1 myndinni v\u00e6ri s\u00fa sama og \u00e9g haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 undanfarna daga. \u201e\u00c9g hef a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum fari\u00f0 mannavillt.\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u201eH\u00fan var g\u00f3\u00f0 kona,\u201c sag\u00f0i N\u00faria dreymin um lei\u00f0 og h\u00fan t\u00f3k vi\u00f0 myndinni \u00far h\u00f6ndum m\u00e9r. \u201eH\u00fan var f\u00e6dd \u00ed Austurr\u00edki en flutti til Sp\u00e1nar me\u00f0 foreldrum s\u00ednum sem barn. H\u00fan giftist sp\u00e6nskum verksmi\u00f0jueiganda og vann st\u00f3ran hluta l\u00edfs s\u00edns vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00f3l\u00e1ns\u00f6mum verkam\u00f6nnum a\u00f0 vinna bug \u00e1 \u00e1fengisvanda.\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g star\u00f0i \u00e1 myndina sem gestgjafinn lag\u00f0i fr\u00e1 s\u00e9r \u00e1 sinn sta\u00f0 \u00e1 komm\u00f3\u00f0unni. Hugsanirnar hringsnerust \u00ed kollinum \u00e1 m\u00e9r er \u00e9g reyndi a\u00f0 fara yfir atbur\u00f0i s\u00ed\u00f0ustu daga.<\/p>\n\n\n\n
\u201eHva\u00f0 m\u00e1 bj\u00f3\u00f0a \u00fe\u00e9r?\u201c spur\u00f0i Xavi sem haf\u00f0i sn\u00fai\u00f0 aftur til stofunnar. \u201eBj\u00f3r? V\u00edn?\u201c<\/p>\n\n\n\n
\u00c9g hika\u00f0i. \u00deessa stundina langa\u00f0i mig ekki \u00ed neitt \u00e1fengt.<\/p>\n\n\n\n
\u00deessi sm\u00e1saga birtist \u00ed sm\u00e1sagnasafninu 999 Erlendis.<\/p>\n\n\n\n
Ef \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gaman a\u00f0 s\u00f6gunni \u00fe\u00e1 hvetjum vi\u00f0 \u00feig til \u00feess a\u00f0 styrkja \u00fatg\u00e1funa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa eintak af b\u00f3kinni.<\/p>\n\n\n\n
Sm\u00e1saga eftir B\u00f6rk Sigurbj\u00f6rnsson. \u00c1 p\u00f6bbar\u00f6lti me\u00f0 vinum s\u00ednum hittir Vilhelm J\u00fal\u00edu, dularfulla konu fr\u00e1 Austurr\u00edki sem s\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00fea\u00f0 til a\u00f0 birtast of hverfa \u00ed s\u00edfellu.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":489,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"advanced_seo_description":"","jetpack_seo_html_title":"","jetpack_seo_noindex":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":false,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","default_image_id":0,"font":"","enabled":false},"version":2}},"categories":[2],"tags":[6],"class_list":["post-65","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-smasogur","tag-barir-kaffihus","col-md-6 col-sm-6"],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/urbanvolcano.net\/is\/wp-content\/uploads\/2011\/12\/julia.png?fit=1024%2C1024&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/65","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=65"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/65\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2500,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/65\/revisions\/2500"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/489"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=65"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=65"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/urbanvolcano.net\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=65"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}