Urban Volcano

Skáldskapur Barkar Sigurbjörnssonar

Örsögur

Álfasvik

„Íslenska trúin á álfa og huldufólk er nú eitt aldeilis bölvað helvítis rugl,“ sagði amma þar sem við sátum í samkomusal elliheimilisins og tefldum.

Álfasvik — Myndskreyting Börkur Sigurbjörnsson
Myndskreyting Börkur Sigurbjörnsson

„Hvað þá?“ spurði ég hissa og fannst þessi athugasemd hafa verið gripin úr ansi lausu lofti. „Hvers vegna segir þú það?“

„Þegar ég var ung,“ hóf amma söguna eins og gerði svo oft á sínum efri árum. „Þá var ég send að sækja kýrnar út á tún á hverjum degi. Hvern einasta dag gekk ég því fram hjá Breiðahrauni sem var altalað fyrir að vera byggð álfa og huldufólks. Í hvert sinn sem ég gekk framhjá álfabyggðinni talaði ég til álfanna og óskaði mér að ég yrði skáld.“

Amma gerði hér hlé á sögu sinni á meðan hún drap peð með biskup og skákaði mig.

“Og hvað gerðist svo?“ hélt hún svo áfram að drápi loknu. „Ég flutti til Reykjavíkur, lærði lögfræði, stofnaði mína eigin stofu og endaði uppi sem dómari í hæstarétti.“

Hún gerði aftur hlé á máli sínu, leit upp frá taflborðinu og út um gluggann.

„Ég varð hins vegar aldrei skáld.“

Þessi saga byggir á sannsögulegum atburðum.

Börkur er áhugasamur sögumaður með næmt auga fyrir sérstökum sögupersónum, fyndnum samtölum og lifandi umhverfislýsingum. Skrif Barkar flokkast að mestu leyti undir raunsæisstefnu og sögurnar hans eru oftar en ekki byggðar á sönnum atvikum í lífi höfundarins. Þó sögurnar innihaldi fjölmörg sannleikskorn þá eru þau rækilega blönduð skáldskap sem vekur upp forvitni lesandans um það hvar mörkin liggi milli raunveruleika og skáldskapar.

https://www.borkur.net/