Smásögur

Smásögur Barkar Sigurbjörnssonar fylgja flestar raunsæisstefnu en eru með blandi af fantasíu og óljósum mörkum milli skáldskapar og raunveruleika.​ Smásögurnar eru myndskreyttar af höfundinum sjálfum eða vinum hans. Úrval sagnanna má finna í smásagnasöfnunum 999 Erlendis og Talaðu við ókunnuga. Auk íslensku þá skrifar Börkur einnig smásögur á ensku og spænsku.