Örsögur
Örsögur (eða smáprósar) Barkar Sigurbjörnssonar eru eins og nafnið bendir til stuttar smásögur, frá einni málsgrein til einnar blaðsíðu, og lýsa jafnan einu afmörkuðu augnabliki eða varpa ljósi á sérkennilega sögupersónu. Smáprósarnir eru myndskreyttir af höfundinum sjálfum. Úrval smáprósanna er að finna í örsagnasöfnunum 52 augnablik (2017) og Meðal Annars (2024). Auk íslensku þá skrifar Börkur örsögur á ensku og spænsku.
-

Leynibókin
Örsaga eftir Börk Sigurbjörnsson. Bókaormur veltir fyrir sér lesefni samferðafólks síns en strandar á leynibók.
-

Að sitja á strák sínum
Örsaga eftir Börk Sigurbjörnsson. Saga um þá speki að stundum er best að sitja á strák sínum.



